Fréttir - Eyjafréttir - 06.11.2008, Blaðsíða 1
Bílaverkstæðið
BrAGGINN sf.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Sími 481 3235
Réttingar og sprautun - Sími 481 1535
35. árg. I 45. tbl. I Vestmannaeyjum 6. nóvember 2008 I Verð kr. 250 I Sími48l-l300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
GLÆSILEGAR Þær tóku sig vel út á Verslunarballinu, Gígja og Kolla, skörtuðu sínu fegursta eins og aðrir gestir. Nánar á bls. 14.
Lögreglan gómaði fíkniefnasala sem kom með Herjólfi:
Átján ára með 50
grömm af amfetamíni
-Auk 120 gramma af íblöndunarefnum - Söluverðmætið hátt í milljón
EFNIN sem lögreglan gerði upptæk á mánudaginn.
Á mánudagskvöldið var 18 ára
maður tekinn með umtalsvert magn
af amfetamíni og ætluðum íblönd-
unarefnum. Maðurinn var gripinn
þegar hann kom upp úr Herjólfi og
að sögn lögreglu hafði hún ekki
fengið ábendingu um maðurinn ungi
væri með fíkniefni í fórum sínum
heldur uppgötvuðust efnin við
venjubundið eftirlit. Áætlað sölu-
verð efnanna á götunni er tæplega
milljón.
Að sögn lögreglu fundust efnin við
leit í farangri en maðurinn var far-
þegi með seinni ferð Herjólfs á
mánudaginn. Er magnið 50 grömm
af amfetamíni og 120 grömm af
íblöndunarefnum sem ætluð eru til
að drýgja amfetamínið áður en það
selt. „Við yfirheyrslu viðurkenndi
maðurinn að eiga efnin og að þau
væru ætluð til sölu. Var honum
sleppt þegar játning lá fyrir,“ sagði
Jóhannes Ólafsson, yfirlögreglu-
þjónn í samtali við Fréttir.
Maðurinn hefur komið við sögu
lögreglu en ekki í alvarlegum
málum og ekki í tengslum við
ffkniefni. Jóhannes sagði að vissu-
lega sé þetta ansi brött byrjun hjá
unga manninum. „Þetta er með
stærri málum hjá okkur og ánægju-
legt að allt þetta magn skuli ekki
hafa komist í umferð hér í Eyjum.
Við reynum að hafa sem mest eftir-
lit með þeim sem koma til Eyja og
þetta er afraksturinn. Verðið á
grammi af amfetamíni er um 5000
krónur á götunni og þegar búið er að
bæta þessum 120 grömmum af
íblöndunarefnum við 50 grömm af
amfetamíni er söluverðið hátt í
milljón."
Jóhannes sagði að maðurinn hefði
viðurkennt að hafa keypt efnin í
Reykjavfk en ekki fékkst upp úr
honum hver sölumaðurinn er. Á
þessu ári hafa komið upp 34 fíkni-
efnamál í Eyjum sem er nokkur
fjölgun frá því í fyrra. „Eftirlitið
með Herjólfi er einn liðurinn í að
berjast gegn þessunt vágesti sent
fíkniefnin eru. Hvetjum við borg-
arana til að ganga í lið með okkur og
láta vita ef fólk fréttir af annaðhvort
sölu eða kaupum á efnum. Við heit-
um fullum trúnaði."
Ekki sagðist Jóhannes treysta sér
til að segja til um hvort notkunin sé
meiri og almennari nú en verið
hefur. „En við verðum að vera
stanslaust á verði og við njótum
velvildar fólks í okkar störfum.
Gott dæmi er að Kiwanismenn hafa
létt undir með okkur með því að
gefa embættinu fíkniefnahundinn
Lunu.“
Hljóðmælingar á Höllinni:
Ekki hægt
að taka
afgerandi
afstöðu
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
hefur staðið fyrir hljóðmælingum
frá Höllinni undanfarið en starfs-
leyfi Hallarinnar hefur takmarkast
við skemmtanahald til klukkan
eitt eftir miðnætti. Ástæðan er að
of mikill hávaði hefur mælst frá
staðnum og ekki talist viðunandi.
Eigendur Hallarinnar hafa staðið
fyrir breytingum og hljóðein-
angrun á húsnæðinu og Höllin
fékk undanþágu til dansleikja-
halds gagngert til að mælingar
gætu farið fram.
Elsa Ingjaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands, sagði að úrbætur
hefðu verið gerðar á húsnæði
Hallarinnar og því hefðu verið
gerðar tvær undanþágur til
dansleikjahalds til þess að gera
mælingar. „Niðurstöður voru
þess eðlis að ekki var hægt að taka
afgerandi afstöðu af eða á. Við
ákváðum því að mæla enn frekar,
m.a. umhverfishljóð og upplýs-
ingarnar um niðurstöðu mæling-
anna verða lagðar fyrir fund heil-
brigðisnefndar þann 20. nóvem-
ber. Þá verður tekin ákvörðun um
framhaldið,“ sagði Elsa þegar hún
var spurð út í málið.
Smíðin í
uppnámi
Smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju
er nú í talsverðu uppnámi þar sem
ekki hefur tekist að ganga frá
samningum við þýsku skipa-
smíðastöðina Fassmer sem
ákveðið var að semja við, eftir að
útboð um smíði nýrrar ferju fór
fram.
Nú treystir skipasmíðastöðin sér
ekki til að hefja smíðina nema að
greiðslur frá íslandi séu tryggar.
Róbert Marshall, aðstoðarmaður
samgönguráðherra og situr í stýri-
hópi um Landeyjahöfn, sagði að
frestur til undirritunar samninga
hefði verið framlengdur til 14.
nóvember. „Við erum ekki búin
að missa þetta frá okkur en höfum
ekki haft tækifæri til að ganga frá
málinu meðan þessa mikla óvissa
ríkir. Vonandi verðum við í betri
aðstöðu í næstu viku,“ sagði
Róbert og benti á að fulltrúar
Ríkiskaupa og Siglingastofnunar
kæmu að málinu.
Sjá bls. 2
VIÐ ERUM ÞJÓNUSTUAÐILI
TOYOTA í EYJUM
nelÉhamar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐ!
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMU
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM. 864-4616