Fréttir - Eyjafréttir - 20.11.2008, Blaðsíða 1
Bílaverkstæðið BrAGGINN sf. Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
35. árg. I 47. tbl. I Vestmannaeyjum 20. nóvember 2008 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
jpp i ■ NPlf/sit
WL fc ,; , IBi jífí/, ■ v ■« N uStð íil
Ályktun stýrihóps vegna ferjusiglinga:
Leita að skipi sem hentar
- Gamli Herjólfur notaður áfram, finnist slíkt skip ekki. - Jafnvel inni í
dæminu að sigla í Landeyjahöfn á sumrin en til Þorlákshafnar yfir
vetrartímann
Þorgerður
fékk nesti í
Nýsköpunar-
miðstöðinni
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, menntamálaráðherra,
kom við í Vestmannaeyjum í
upphafi vikunnar. Hún að-
stoðaði m.a. við fyrstu skófiu-
stunguna að nýju útisvæði við
Iþróttamiðstöðina en þegar
hún kom við í útibúi Ný-
sköpunarmiðstöðinni fékk hún
óvæntan glaðning. Frosti
Gíslason og félagar hans í
útibúinu höfðu útbúið nesti
fyrir ráðherrann, sérmerkt
samlokubrauð með merki
Sjálfstæðisflokksins. Uppá-
tækið vakti mikla kátínu meðai
viðstaddra og tók ráðherrann
brauðið með sér í höfuð-
borgina.
Aðaitilgangur ferðarinnar
var hins vegar að kynna nýja
menntastefnu í Eyjum en það
gerði Þorgerður í sal FIV.
Fundurinn þótti takast vel og
var ágætlega sóttur en nánar
er fjallað um kynningu nýrrar
menntastefnu á síðu 13.
Eins og fram hefur komið í fréttum,
ákvað ríkisstjórnin í síðustu viku að
hætta samningaviðræðum um smíði
nýs Herjólfs. Málinu verði frestað
fram í mars á næsta ári en þá verði
það endurmetið. Þetta er gert vegna
aðstæðna í efnahagslífi landsins.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri. lýsti
því yfir, þegar þetta iá ljóst fyrir, að
þetta væru vonbrigði. Haft var eftir
honum að ríkið hlyti að halda úti
grunnþjónustu eins og samgöngum,
sama hvað á bjátaði í efnahags-
málum. Þá óskaði hann eftir því að
stýrihópurinn, sem hann situr í
vegna ferjusamgangna, yrði kallaður
saman í þessari viku.
Og stýrihópurinn fundaði á þriðju-
dagsmorgun. Elliði segir að þar hafi
verið farið yfir málin og hann hafi
lýst yfir vonbrigðum sínum fyrir
hönd samfélagsins í Eyjum með
þessa niðurstöðu. Hópurinn hafi
reifað hvaða möguleikar væru í
stöðunni. Eftirfarandi samþykkt var
gerð á fundi stýrihópsins:-
Ferja í nýja Landeyjahöfn
„Efnahagsástandið á Islandi hefur nú
sett smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju
í uppnám og hefur ráðuneyti sam-
göngumála fallið frá því að ferja
verði keypt á meðan gjaldeyris-
kreppa ríkir hér á landi. Málið
verður tekið upp að nýju þegar betur
árar í fjármálum þjóðarinnar í ljósi
þeirra forsendna sem þá verða uppi.
Ráðgert var að Landeyjahöfn yrði
tilbúin síðla sumars 2010 og enn er
stefnt að því að sú áætlun haldi. En
þar sem nú liggur fyrir að ný ferja
verður ekki tilbúin á þeim tíma er
nauðsynlegt að leita annarra leiða.
Stýrihópur um Landeyjahöfn hefur
einkum rætt tvo möguleika: Annars
vegar að nota gamla Herjólf eða hins
vegar að leigja tímabundið annars
staðar frá ferju sem hentar aðstæðum
betur. Herjólfur ristir rúma 4 metra
á meðan gengið var út frá því að
heppileg ferja risti ekki dýpra en 3,3
metra. Vegna djúpristu Herjólfs eru
frátafir áætlaðar 5-10% af tímanum
og yfir vetramánuðina jafnvel upp í
20%. Svo miklar frátafir eru ekki
ásættanlegur kostur. Því er ætlunin
að hefja leit að leiguferju þar sem
frátafir væru svipaðar eins og
upphaflega var lagt af stað með, 3%.
Ef sú leit skilar ekki viðunandi ár-
angri verður reynt að nota gamla
Herjólf. Til að lágmarka óhjákvæmi-
legar frátafir myndi hann sigla til
Landeyjahafnar frá apríl fram í
nóvember en yfir vetrarmánuðina til
Þorlákshafnar þegar tíðarfar er
rysjóttara.
Markmiðið með Landeyjahöfn og
nýrri Vestmannaeyjaferju hefur
ávallt verið að bæta samgöngur við
Vestmannaeyjar. Þó nú hafi komið
bakslag í smíði á nýrri ferju vegna
efnahagsástandsins munum við
halda ótrauð áfram. Að baki þeim
áföngum sem þegar hafa náðst liggur
gríðarlegt starf fjölmargra og þar
liggja verðmæti sem ekki mega
tapast. Sá þröskuldur sem erfitt efna-
hagsástand er þessari framkvæmd og
þjóðmálum flestum, er ekki óyfir-
stíganlegur og stýrihópurinn stefnir
að því að sigla málinu í höfn.“
I stýrihópnum eiga sæti, auk Elliða,
þeir Eiríkur Bjamason og Róbert
Marshall frá samgönguráðuneytinu,
Sigurður Ass Grétarsson frá Sigl-
ingastofnun, Kristín Haraldsdóttir
frá Vegagerðinni og Unnur Brá Kon-
ráðsdóttir, sveitarstjóri í Landeyjum.
Fastlega má reikna með að sam-
gönguráðuneytið sé samþykkt þess-
ari niðurstöðu stýrihópsins þar sem
tveir fulltrúar ráðuneytisins eru í
hópnum.
Bilun Herjólfs:
Hægt að
taka skipið
upp fyrir
norðan
Nú hefur komið í ljós að það tekur
rúmt hálft ár eða 34 vikur að fá
varahluti í Herjólf en eins og áður
hefur komið fram bilaði annar af
jafnvægisuggum skipsins í síðustu
viku. Einn uggi hefur þó 60%
virkni miðað við fulla ferð
skipsins en ugginn hefur ekkert
verið notaður síðan hinn bilaði.
Hins vegar er hætt við að fleiri
ferðir falli úr, nú þegar versta
vetrarveðrið gengur yfir. Ekki
þarf að sigla skipinu utan til
viðgerðar þar sem hægt er að taka
uggann út í flotkvínni á Akureyri.
Bæjarráð
tekur undir
með stýri-
hópnum
Bæjarráð fjallaði um ferjumálið á
fundi sínum á þriðjudag. Þar lýsti
ráðið yfir vonbrigðum sínum með
að samningaviðræðum um smíði
skipsins hafi verið hætt. Bæjarráð
bendir einnig á að í umfjöllun um
efnahagsvanda hafi ríkisstjórnin
lýst því yfir að staðinn verði
vörður um grunnþjónustu. Því
bendir bæjarráð á að samgöngur
teljast til grunnþjónustu ríkisins
og á það jafnt við um Vestmanna-
eyjar og aðra staði. Síðan er tekið
undir ályktanir stýrihópsins og
segir orðrétt í bókun bæjarráðs:
„Bæjarráð hvetur samgönguráð-
herra til að leita sem fyrst allra
leiða til að bjóða út smíði skipsins
á ný og verður það þá í þriðja
skipti sem sú smíði verður boðin
út. I ljósi efnahagsástandsins
hvetur bæjarráð ennfremur til þess
að allra leiða verði leitað til að
auðvelda íslenskum fyrirtækjum
að bjóða í nýsmíðina.
Að lokum leggur bæjarráð þunga
áherslu á að haldið verði áfram
með framkvæmdir í Landeyja-
höfn sem hófust í haust með vega-
gerð og verður í vetur unnið að
gerð grjótvarnargarða. Næstu
skref stýrihóps um framkvæmd-
ina hljóta að verða kortlagning á
millileiðum til að tryggja að hægt
verði að nýta Landeyjahöfn til að
bæta samgöngur til Vestmanna-
eyja eigi síðar en 1. júlí 2010, til
dæmis með leigu á skipi eða
breytingum á núverandi Herjólfi."
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA
VÉLA- OG BÍLAVIÐGERÐIR
ne^hamar
VÉLA- OG BlLAVERKSTÆÐI
ÞJÓNUSTUAÐILI í EYJUM / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...!
FLATIR 21 / S. 481-1216 / GSM. 864-4616