Fréttir - Eyjafréttir - 27.11.2008, Side 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 27. nóvember 2008
Landssamband íslenskra útvegsmanna vill úr Samtökum atvinnulífsins vegna vilja SA til að ganga í ESB
Skiptar skoðanir um Evrópu-
sambandsaðild meðal Eyjamanna
Landssamband íslenskra útvegs-
manna hefur samþykkt einróma að
verði Samtökum atvinnulífsins beitt
fyrir inngöngu íslands í Evrópu-
sambandið þá muni stjórn LÍÚ
leggja til við félagsmenn að LÍÚ segi
sig úr Samtökum atvinnulífsins.
I fjölmiðlaumræðu á undanförnum
vikum hefur greinilega komið fram
að hugur margra innan Samtaka
atvinnulífsins stendur til inngöngu í
ESB. Forystumenn samtakanna hafa
t.d. lýst vilja sínum til samninga-
viðræðna um inngöngu. Ljóst er að
samtökin eru klofm í afstöðu sinni til
ESB. Þeir félagsmenn sem tengjast
útgerð og fiskvinnslu eru flestir mót-
fallnir aðild en aðrir virðast flestir
vera því hlynntir að hefja samninga-
viðræður.
Bréf til félagsmanna
A mánudag var eftirfarandi bréf sent
út til félagsmanna LIÚ og SF:
„Frá því að Samtök atvinnulífsins
voru stofnuð hefur það legið fyrir að
samtökin beiti sér ekki í málefnum
sem ganga gegn grundvallarhags-
munun einstakra aðildarsamtaka.
Þess vegna hafa Samtök atvinnulífs-
ins ekki tekið afstöðu með eða á
móti inngöngu íslands í Evrópusam-
bandið. Mikil breyting hefur orðið á
málflutningi fyrirsvarsmanna Sam-
taka atvinnulífsins á síðustu mánuð-
um án þess að formlegri afstöðu
Verslunin Flamingo flytur í nýlt hús-
næði í dag. Gunnhildur Jónasdóttir,
kaupmaður, hefur rekið verslunina í
nítján ár við Heiðarveg en verslunin
verður nú staðsett í nýja húsinu við
Vesturveg, þar sem Baldurshagi stóð
áður. I Flamingo fæst nýtísku dömu-
fatnaður, skór og herrafatnaður og
nóg að gera því Gunnhildur á marga
góða viðskiptavini.
„Við opnum í dag klukkan tíu,“
sagði Gunnhildur sem hefur haft í
nógu að snúast undanfarið því unnið
hefur verið að því að innrétta nýja
húsnæðið síðastliðnar sex vikur.
„Það hefur gengið mjög vel og við
höfum unnið þetta mikið sjálf.
Óðinn tengdasonur minn og Trausti
vinur hans, hafa séð um smíði á
innréttingum og svo notum við sumt
af því sem við áttum fyrir. Það er
auðvitað gaman að byrja með
verslun í glænýju húsnæði. Við erum
með tvö hundruð fermetra sem er
nánast helmingi stærra en við höfum
verið í og þar af leiðandi erum við
með miklu betri lageraðstöðu."
Gunnhildur verður með sömu
vörumerki og hún hefur verið með
en hefur tekið inn stærri stærðir og
viðskiptavinir eru mjög ánægðir
með það. Hún merkir ekki samdrátt
samtakanna hafi verið breytt.
Stjórnarmenn í Samtökum atvinnu-
lífsins frá aðildarsamtökum í sjávar-
útvegi hafa eindregið farið þess á leit
að Samtökum atvinnulífsins verði
ekki beitt í málinu, heldur verði það
verkefni einstakra aðildarsamtaka að
halda skoðun sinni á lofti. Málið var
til umfjöllunar á síðasta stjórnar-
fundi Samtaka atvinnulífsins og þar
var stefnu samtakanna ekki breytt.
Stjórn LIÚ hefur fjallað um málið
og samþykkt einróma að verði
Samtökum atvinnulífsins beitt fyrir
inngöngu Islands í Evrópusam-
bandið þá muni stjórnin leggja það
til við félagsmenn að LÍÚ segi sig úr
Samtökum atvinnulífsins.
Nú hefur framkvæmdastjórn Sam-
taka atvinnulífsins, þrátt fyrir að við
höfum óskað eftir að málið verði
áfram á vettvangi stjórnar samtak-
anna, ákveðið að fram fari skoðana-
könnun meðal aðildarfyrirtækja um
það hvort fyrirtækin vilja að Samtök
atvinnulífsins beiti sér fyrir aðild
Islands að Evrópusambandinu.
Við fórum þess á leit þegar Ijóst var
að ekki var stuðningur fyrir því í
framkvæmdastjórn Samtaka at-
vinnulífsins að halda óbreyttri stefnu
að aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnu-
lífsins verði spurð um það hvort þau
vilji að Samtök atvinnulífsins beiti
sér fyrir aðild að Evrópusambandinu
og upptöku evru þrátt fyrir að því
fylgi afsal á yfirráðum yfir fiski-
vegna efnahagsástandsins en segir
að verslunarmenn hafi verið svolítið
á tánum og farið varlega. „Eg hef
reyndar alltaf keypt svolítið inn eftir
hendinni og geri ekki stórar pantanir.
Þeir sem ég versla við úti eru allir
skilningsnkir og ég verð ekki vör við
annað en vinsemd í okkar garð
erlendis og það eru allir virkilega
hjálpsamir."
Gunnhildur er að byrja að taka inn
vörur fyrir jólin enda mikil verslun
framundan í desember. „Við erum að
miðunum við ísland og að forræði á
samningum um sameiginlega fiski-
stofna færist til ESB. Þessari ósk
okkar var hafnað. Þá fórum við þess
einnig á leit að spurt verði hvort að-
ildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins
séu hlynnt eða andvíg því að taka
upp annan gjaldmiðil á íslandi í stað
krónu án inngöngu í ESB. Þessari
ósk okkar var einnig hafnað.
Undir þetta bréf rita, fyrir hönd
Landssambands íslenskra útvegs-
manna og Samtaka fiskvinnslustöð-
va, Adolf Guðmundsson formaður
LÍÚ, Eiríkur Tómasson varafor-
maður LIÚ, Friðrik J. Arngrímsson
framkvæmdastjóri LIÚ, Arnar
Sigurmundsson formaður SF og
Gunnar Tómasson varaformaður SF.
Útvegsbændafélagið
sammála LÍÚ
Þórður Rafn Sigurðsson, formaður
Útvegsbændafélags Vestmannaeyja,
segir félagsmenn í Eyjum mjög svo
sammála þessu. „Allir þeir sem hafa
atvinnu af sjósókn og fiskverkun
hljóta að vera þessu sammála. Ef
við göngum í ESB þá missum við
yfirráð yfir fiskimiðunum sem og
samningsréttinn. Menn eru að tala
um undanþágur en það er vitað að
slíkar undanþágur eru aðeins gefnar
til skamms tíma og gilda yfírleitt í
eitt ár. Skotar og Irar í þessum at-
vinnugreinum, menn sem vita um
taka upp nýjar vörur og svo koma
þær jafnt og þétt inn í verslunina.
Flamingo verður með tískusýningu á
konukvöldinu á laugardag þannig að
það er nóg að gera, “ sagði Gunn-
hildur og var í framhaldinu spurð
hvort hún eigi von á meiri verslun í
Eyjum en undanfarin ár. „Fólk hefur
verið að tala um að það ætli að versla
hér heima og það væri auðvitað
skemmtilegt. Ég á mjög góða við-
skiptavini og fólk er almennt mjög
jákvætt héma.“
hvað málið snýst, hafa sagt við
okkur að við skulum ekki láta okkur
detta þetta í hug. Við tökum því
heils hugar undir það sem segir í
þessu bréfi,“ sagði Þórður Rafn
Sigurðsson.
í lagi að kanna hvað er í boði
Stefán Friðriksson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar,
segir að hjá Vinnslustöðinni séu
menn mjög á sömu nótum og stjórn
LIÚ. „Persónulega fínnst mér
reyndar að athuga megi hvað er í
boði. Ef aftur á móti verður ekki
tekið tillit til okkar sjónarmiða og
við fáum ekki að stjórna okkar
auðlindum, þá höfum við ekkert
þangað að gera. Eins og umræðan er
í dag þá virðist það eiga að bjarga
öllu að ganga í ESB. Ég sé það ekki
fyrir mér sem einhverja allsherjar
lausn enda er ástandið ekki beysið í
öllum þeim Evrópulöndum sem eru í
ESB,“ sagði Stefán Friðriksson.
Einar Bjamason, hjá Godthaab í
Nöf, segist telja að skoða þurfi bæði
kosti og galla þess að sækja um aðild
að ESB. „Þetta umhverfi, sem við
erum að vinna í, er frekar óþægilegt
um þessar mundir og ljóst að eitt-
hvað verður að gera. Ég veit ekki
með vissu hvað í þessu felst og
hvernig sjávarútvegurinn mun koma
út úr þessu en ég tel að það sé allt í
lagi að skoða málið.“
Hefur tískan ekki breyst mikiðfrá því
þú byrjaðir með Flamingo?
„Tískan hefur breyst mjög mikið frá
því ég byrjaði með verslunina 1989
og maður getur ekki annað en flissað
þegar myndir frá þeim tíma eru
skoðaðar. Þá voru herðapúðarnir og
viscos dressin allsráðandi. Nú er
mikið um kjóla og leggings, fjólu-
blár er mjög vinsæll og svart er alltaf
vinsælt fyrir jólin. EMAMI kjóllinn
er líka mjög vinsæll núna en honum
er hægt að breyta á marga vegu. Ef
eitthvað er þá er meira um stutta
kjóla núna en það er engin ein lína í
gangi og hver og einn finnur sinn
eigin stíl,“ sagði Gunnhildur sem
hlakkar til að hetja verslun á nýja
staðnum. „Það má segja að lang-
þráður draumur sé að rætast með því
að flytjast í eigið húsnæði. Mér leið
vel í húsnæðinu við Heiðarveg, byr-
jaði með hárgreiðslustofu 1985 og
setti svo upp verslun í húsnæði við
hliðina 1989. Mér finnst hins vegar
mikilvægt að miðbærinn er að
þéttast og þar er að myndast góður
miðbæjarkjami. Þó við búum ekki á
stórum stað þá skiptir það samt
máli,“ sagði Gunnhildur og býður
viðskiptavini velkomna á nýja
staðinn.
l.des kaffi
í Höllinni
ídag
Kvenfélagið Líkn stendur fyrir
árlegri kaffisölu í Höllinni í dag,
fimmtudaginn 27. nóvember.
Mikill undirbúningur hefur
staðið yfír og t.d. voru 180 tertu-
botnar bakaðir í eldhúsi Heil-
brigðisstofnunar Vestmannaeyja
en þar fá Líknarkonur aðstöðu
endar rennur allur ágóði af
sölunni óskiptur til stofnunar-
innar. Auk þess sjá milli ftmm-
tíu og sextíu félagskonur um að
útbúa brauðtertur, heita brauð-
rétti, kleinur og annað bakkelsi.
Drífa Kristjánsdóttir, formaður
Líknar, sagði að um þrjátíu
konur ynnu við kaffisöluna í
Höllinni og að dætur félags-
kvenna kæmu sterkar inn enda
mikilvægt að kynslóðimar vinni
saman að þessu verkefni.
„Kaffísalan er fastur liður og
mörg fyrirtæki koma á hverju ári
með allt sitt starfsfólk. Styrkur
félagsins liggur í þessum mikla
stuðningi og við erum afar
þakklátar öllum sem hafa komið
að þessu mikilvæga starfi, “
sagði Drífa og vonast til að sjá
sem flesta í Höllinni í dag.
Takk fyrir
Við strákamir í 5. flokki karla í
handbolta fórum í góða ferð til
Akureyrar og unnum við 5 af 7
leikjum okkar. Langar okkur að
koma á framfæri þökkum til
þeirra sem styrktu okkur:
Vinnslustöð Vestmannaeyja,
Kaupás / 11-11, Heildverslun
Karls Kristmans, Amór bakari
og þá viljum við þakka öllum
þeim bæjarbúum sem keyptu af
okkur. Takk kærlega fyrir okkur.
Strákarnir í 5. fl í handbolta
Vantar festingar
Lesandi Frétta hafði samband og
vill hvetja verslunareigendur til
að setja upp króka eða festingar
fyrir utan verslanir sínar svo hægt
sé að festa hunda í taumi meðan
eigandinn skeppur inn og verslar.
Lesandinn benti á að slík festing
væri fyrir utan Eyjatölvur og
vonast til að aðrir taki það til
fyrirmyndar. „Ef maður er að
labba í bænum og vill skreppa inn
í búð þá vantar festingar til að
það sé mögulegt að binda
hundinn. Ekki vill maður vera að
þvælast með hundana inn í búðir,
það er ekki viðeigandi," sagði
hundaeigandinn og er annars
mjög sáttur og ánægður með
verslunareigendur í bænum enda
vömúrval og þjónusta til fyrir-
myndar.
Haustsmölun
Tómstundabændur í Eyjum ætla
að smala heimalandið næsta
sunnudag Allir þeir sem hafa
áhuga á útiveru og góðum
félagsskap eru velkomnir til að
hjálpa við smölunina. Mæting er
við réttina suður á eyju klukkan
10.00. Féð verður nú sett í hús og
fóðrað enda vetur genginn í garð.
STOÐTÆKJAFRÆÐINGUR
Guðmundur R. Magnússon, stoðtækjafræðingur
verður með móttöku á Heilbrigðisstofnuninni í
Vestmannaeyjum miðvikudaginn 19. nóvember.
Tímapantanir í síma //Ér"/liy)«|
565-2885 JA STuÐ
Leiðrétting
Á gömlu myndinni, sem
birtist í síðasta blaði, af
Eykyndilskonum við
undirbúning á sjómanna-
kaffi í KFUM húsinu, voru
tvær kvennanna rangt
tilgreindar. Hið rétta er að
konan í efri röð, þriðja frá
vinstri, er Sigurbjörg
Magnúsdóttir, eiginkona Axels Halldórssonar og sú sem er önnur frá hægri
í neðri röð er Elín Halldórsdóttir, eiginkona Ágústs Sigfússonar og amma
Guðbjargar, blaðamanns á Fréttum.
Flamingó í nýtt og glæsilegt húsnæði
Gunnhildur ásamt þeim Önnu Huldu Long og Ólöfu Helgadóttur
Útgefandi: Eyjasýn elif. 480278-0549 - Vestmannaeyjum. RitBtjóri: Omar Garðarsson.
Blaðamenn: Gnðbjörg Siguigeirsdóttir og Júlíus Ingason. Iþróttir: Ellert Scheving.
Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjapient. Vestinaimaeyjiim. Aðsetur ritBtjórnar: Strandvegi 47.
Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti; 481-1293. Netfang/rafpóstur: frottir@eyjafrettir.is.
Veffang: http//wwvv.eyjafrettir.is
FRÉ'iT'iK korna út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskiift og einnig í lausasölu á Kletti,
Tvistínum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Klughafnarversluninni, Krónunni, Isjakantun,
verslun 11-11 og Skýlinu i Friðarhöfn.. FRÉ'iTIK eru prentaðar i 2000 eintöknm.
FRÉTTTR eru aðilar að Samtökum hæjar- og héraðsfréttablaða. Eftírprentun, hljóðritun,
notkun ljósmynda og annad or óheimilt nema heimilda sé getið.