Fréttir - Eyjafréttir - 27.11.2008, Blaðsíða 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 27. nóvember 2008
Kristín Jóhannsdóttir, menningarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar:
Kynnti Vestmannaeyjar í Karlsruhe
s
-bauð upp á harðfisk úr Godthaab á Islandskynningu í Þýskalandi
Á Islandskynningu í Karlsruhe í
Þýsklandi fyrr í mánuðinum var
sérstök áhersla lögð á Vestmanna-
eyjar og m.a. boðið upp á harðfisk
frá Godthaab í Nöf. Kristín
Jóhannsdóttir, menningarfulltrúi
Vestmannaeyja var á staðnum og var
spurö út í ferðina og móttökurnar
sem Islendingar og Vestmannaeyjar
fengu í Þýskalandi.
„Það var bæði gagnlegt og
áhugavert að fá tækifæri til þess að
taka þátt í íslandskynningu erlendis
á þessum erfiðu tímum. Þjóðverjar
hafa alltaf verið mjög áhugasamir
um ísland og maður hafði því áhygg-
jur af orðspori landsins á þessum
mikilvæga markaði í kjölfar fregna
af gjaldþroti landsins og óvissu um
reikninga Þjóðverja hjá Kaupþingi,"
sagði Kristín en margir hafa haft
áhyggjur af ímynd íslands í kjölfarið
á bankahruninu.
„Við sem mættum þarna fyrir hönd
landshlutanna fórum ekki varhluta af
því að Þjóðverjar voru vel inni í
ástandinu á Islandi, það hefur mikið
verið fjallað um það í þýskum
fjölmiðlum rétt eins og í fjölmiðlum
margra annarra landa. Engu að síður
mættum við einungis velvild og
áhuga, vissulega var einnig spurt um
ástandið í landinu, hvort við byggj-
um við vöruskort og hvort við héld-
um að hótel og flugfélög ættu eftir
að standa af sér kreppuna. Við
lögðum ríka áherslu á að sannfæra
fólk um að hér væri allt á sínum stað.
Nú sem aldrei fyrr_ væri rétta tæki-
færið til að skoða ísland, verðlagið
hafi jú aldrei verið hagstæðara fyrir
handhafa evrunnar. Sem fyrr yrði
tekið vel á móti öllum og mikilvægi
gjaldeyristekna væri meira en
nokkru sinni fyrr.“
Vestmannaeyjar voru kynntar á
sýningarbás Suðurlands. Kristín
sagði að það hefði verið bæði
skemmtilegt og hvetjandi að tala um
Vestmannaeyjar við Þjóðverja.
„Þeir eru flestir vel að sér, margir
muna eftir gosinu, hafa séð greinar
og myndir, tala um hraunið, lundann
og fagra náttúru og þó nokkrir höfðu
einnig heyrt af Eldheimum eða
Pompei Norðursins. Eg kann Godt-
haab í Nöf sérstakar þakkir fyrir að
gefa harðfisk sem smakkaðist vel og
varð til þess að vekja enn frekari
athygli á Vestmannaeyjum. Fólk
staldraði lengur við í básnum hjá
okkur og kynntist betur því sem við
höj'Lim fram að færa.
Á meðan leiðin að fjölsóttum
ferðamannastöðum Suðurlands er
greið þarf alltaf að beita miklum
sannfæringarkrafti við að kynna
leiðina til Eyja. Fólk hefur ákveðna
fordóma gagnvart veðrinu og það
verður því sífellt að hamra á því að
oftar en ekki sé hægt að fljúga á
sumrin og að Herjólfsferð sé örugg
ferð,“ sagði Kristfn og er sannfærð
um að þetta verði miklu einfaldara
þegar Bakkafjörusiglingarnar verða
famar að liggja að hringveginum.
SÝNINGAGESTIR f ÞÝSKALANDI BORÐA HARÐFISK FRÁ GODTHAAB. Kristín segir að harð-
fiskurinn hafi vakið enn meiri athygli á Vestmannaeyjum og básnum á sýningunni og að
gestir hafi staldrað lengur við.
Stúlknaskákmót 2. desember
Skákíþróttin er líka fyrir stelpur
Hópur stúlkna sem æfa skák ásamt þjálfurum sínum.
Taflfélag Vestmannaeyja býður nú
stelpum í bænum upp á þá nýjung að
mæta á sérstakar skákæfingar.
Æfmgarnar eru á þriðjudögum kl. 17
og hafa heldur betur slegið í gegn,
sjö stelpur mættu á fyrstu æfmguna
þann 11. nóvember, en þær voru
tutlugu og tvær á þriðjudaginn í
síðustu viku. Stelpur í Eyjum hafa
ekki sinnt skákíþróttinni eins vel og
strákar hingað til, en nú virðist það
vera að breytast og þær mæta fullar
áhuga.
Karl Gauti Hjaltason og Björn ívar
Karlsson sjá um skákkennsluna, en í
vetur hafa börn í Hamarsskóla
fengið skákkennslu í skólanum.
Krakkarnir kunna vel að meta fram-
takið og mæta mörg hver líka á
æfingar hjá Taflfélaginu. Páll
Sigurðsson, stjórnarmaður í Skák-
sambandinu heldur jafnvel að aldrei
áður haft jafnmargar stúlkur mætt á
eina æfingu eins og þriðjudaginn 18.
nóvember hér í Vestmannaeyjum.
Ber þetta vitni um hinn mikla kraft
sem er í starfmu hér í Eyjum. Barna-
og unglingastarf á vegum TV er til
fyrirmyndar og nánast hvergi á land-
inu er þátttaka eins góð og hér.
I framhaldi af þessari góðu byrjun
stendur Taflfélagið fyrir sérstöku
stúlknaskákmóti næsta þriðjudag 2.
desember, sem hefst kl. 17.00 í hús-
næði félagsins. Allar stúlkur,
mömmur og konur í bænum eru
hvattar til að mæta og verður boðið
upp á Ijölbreytt verðlaun og góð-
gæti. Þær sem ekki treysta sér til að
tefla hefðbundna skák keppa bara í
peðaskák sem er mun einfaldari.
Aðventukaffi og basar
Sunnudaginn 30. nóvember 2008 kl. 15.00 heldur Kvenfélag Landakirkju
sinn árlega basar og aðventukaffi í Safnaðarheimilinu. Einnig verður hluta-
velta í anddyri Safnaðarheimilisins, 100 krónur miðinn, engin núll.
Allur ágóði hlutaveltu rennur til hjálparstarfs kirkjunnar.
Kvenfélag Landakirkju
Vestmannaeyjabær
Bæjarstjórnarfundur
Almennur fundur verður haldinn í bæjarstjórn
Vestmannaeyja í dag kl. 18.00 í Akógeshúsinu við
Hilmisgötu.
Útvarpað verður frá fundinum á ÚV FM 104,0
Bæjarstjóri
Frá manntali
Unnið er að gerð nýrrar íbúaskrár 1. des. 2008 og eru þeir,
sem eiga eftir að tilkynna um breytt lögheimili, vinsam-
legast beðnir að ganga frá skráningu hið fyrsta eða eigi
síðar en 5. desember nk.
Þeir sem hafa í hyggju að flytja fram til 1. desember eru
einnig beðnir um að hafa samband í síma 488 2024
eða líta við í Ráðhúsinu.
Ráðhúsinu f 902 Vestmannaeyjum | kt. 690269-0159,
sími 488 2000 | fax 488 2001 | www.vestmannaeyjar.is