Fréttir - Eyjafréttir - 27.11.2008, Blaðsíða 13
Frcttir / Fimmtudagur 27. nóvember 2008
13
Agi er það sem skiptir mestu
-segir ívar Orn Bergsson, sem vann bikarkeppni IFBB í vaxtarækt
ívar Öm Bergsson gerði sér lítið
fyrir og sigraði í vaxtarrækt í bikar-
móti IFBB, alþjóðasambands lík-
amsræktarmanna um síðustu helgi.
Keppt var í fitness, vaxtarrækt og
svonefndu módelfitness kvenna.
Ivar Örn Bergsson og Hrönn
Sigurðardóttir urðu bikarmeistarar í
vaxtarrækt. ívar hafði áður keppt
einu sinni á Islandsmeistaramóti í
vaxtarrækt og varð þá í 3. sæti.
„Stefnan var tekin á 1. sætið þannig
að ég er mjög ánægður því ég var
ekki sáttur við árangurinn á Islands-
meistaramótinu," sagði Ivar þegar
hann var spurður út í mótið.
En hvernig nœr maður þesswn ár-
angri ?
„Agi er það sem mestu máli skiptir.
Ef ég skipti þessu upp þá má segja
30% af árangrinum megi rekja til
æfmga og 70% má rekja til matar-
æðis sem er langstærsti hlutinn og
erfiðastur. Það er ekkert mál að
mæta í salinn og æfa en svo eru 23
tímar eftir af sólarhringnum. Ég æfi
á hverjum degi, hita aðeins upp og
lyfti og æfingin tekur á milli 60 til
80 mínútur. Síðan hjóla ég á hverj-
um degi til og frá í vinnu“
Hvernig undirbýrð þii þig fyrir
svona mót?
„Ég byrjaði að undirbúa mig fyrir
10 vikum en þá var ég 107 kíló og
endaði í 94,5 kílóum. Vikan fyrir
mót er erfiðust því þá er verið að
leggja lokahönd á verkið. Þá er
nauðsynlegt að minnka saltneyslu,
auka fitu og sleppa kolvetnum
alveg. Þetta fæst með því að taka inn
lýsi, borða lax og mikið af grænmeti
og ávöxtum Þessi vika tekur veru-
lega á en er þess virði þegar tak-
markinu er náð. I rauninni er ég að
borða meira en venjulega þessa
síðustu viku og þetta er allt hollur
matur.“
Ivar Örn var sá eini í Eyjum sem
æfði fyrir mótið og segir að það sé
mælt með því að keppendur hafi
félaga til að hvetja þá áfram. „Það
endast fáir í þessu en ég er með
yndislega aðstöðu hjá Nautilus í
Iþróttamiðstöðinni og þjónustan er
alveg frábær. Ég er mjög sáttur við
aðstöðuna ogjjarna eru fyrsta flokks
tæki, “ sagði Ivar Örn en bróðir hans
Sturla Bergsson hefur verið dug-
legur að æfa en býr nú á Selfossi.
„Sturla hefur nokkrum sinnum tekið
þátt í fitnesskeppni en var ekki með
núna. Hann tók hins vegar alveg
óvænt þátt í lyftingamóti á Selfossi
um helgina og gerði sér lítið fyrir og
setti Islandsmet í réttstöðu."
ívar segir að það sé mjög skemmti-
legt að taka þátt í svona keppni.
„Maður nær eins langt og konan og
fjölskyldan leyfir," segir Ivar og
brosir og er greinilega ánægður með
stuðninginn sem hann fær heima
fyrir. „Það taka allir þátt í þessu og
auðvitað er mataræðið öðruvísi á
heimilinu en strákarnir eru duglegir
að borða hollan mat. Hugarfarið
breytist og það að komast alla leið
reynir á, og sýnir andlegan styrk. Ég
stefni á Islandsmeistaramótið um
næstu páska og ætla að gera eins vel
og ég gerði núna. Þá verð ég sáttur
eins og ég er núna. Ég vil þakka
Þórunni Kristínu, konunni minni,
fyrir allan stuðninginn. Hún er ein-
stök, tekur fullan þátt í þessu og
sýnir þessu jafnvel meiri áhuga en
ég sjálfur “ sagði ívar Örn ánægður
með mótið og stuðninginn.
Félagsstarf á Suðurlandi
Suðurglugginn ehf safnar nú upplýsingum um hvers kyns
félags- og menningarstarf sem er í boði á Suðurlandi og
opið er öllum almenningi. Ljóst er að félagslíf á Suðurlandi
er blómlegt, en nokkuð skortir á að upplýsingar um það
félagsstarf sem er í boði séu aðgengilegar almenningi.
Stjórnir félagasamtaka eru hvattar til að senda eftirtaldar
upplýsingar fyrir 1. desember til skráningar í gagna-
grunninn á netfangið glugginn@sudurglugginn.is:
• Heiti félagsskapar • Stutt lýsing á starfssemi
• Starfssvæði • Fundarstaður og tími
• Heimasíða og /eða veffang umsjónaraðila
• Símanúmer tengiliðar.
Gert er ráð fyrir að gagnagrunnurinn verði þýddur á ensku
og á þriðja mál. Listinn verður birtur í héraðsfréttablaðinu
Glugganum en til framtíðar vistaður rafrænt á vegum opinbers
aðila á Suðurlandi og þar með aðgengilegur fyrir almenning.
Gagnagrunnurinn mun ná til félagsstarfs i Ámessýslu, Rangárvallasýslu,
Vestur-Skaftafellssýslu og I Vestmannaeyjum.
Verkefnið er styrkt af Menningarráði Suðurlands
OPIЄHEIMA" - HÚS
Arnardrangi að Hilmisgötu 11,2. des. kl 13-15
:: Jólin - undirbúningur sálarinnar
Gestur: Sr. Kristján Björnsson
flLLT FYRIR GÆLUDÝRIN
HÓLAGOTU 22 | S. 481-3153
Tónfundir
Tónlistarskólans
Þetta er síðasti
tónfundur
fyrirjól.
Næstu tónleikar
verða jólatónleikar
16. til 19. des-
ember á sama
tíma 17.30.
Allirvelkomnir
AA fundir
AA fundir eru haldnir sem
hér segir að Heimagötu 24:
sun. kl. 11.00
mán. kl. 20.30 Sporafundur
þri. kl. 18.00
mið. kl. 20.30
fim. kl. 12.10
fim. kl. 20.30
fös. kl. 19.00
lau. kl. 20.30 Opinn fundur
Atliuyið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath. símatíma okkar, sem eru hvern
dag, hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
' mf*
■■ÉHMyy jh jflja W / : -J
Grétar Mar Jónsson, Hanna Birna Jóhannsdóttir og Magnús Þór
Hafsteinsson á fundinum í sfðustu viku.
Fundur Frjálslyndra í síðustu viku:
Staðan grafalvarleg
Frjálslyndi flokkurinn hélt opinn
stjórnmálafund á Kaffi Kró sl.
fimmtudagskvöld. Grétar Mar
Jónsson, alþingismaður og Magnús
Þór Hafsteinsson, framkvæmdastjóri
flokksins, héldu framsögur og sfðan
var fundargestum gefinn kostur á
fyrirspurnum en fundurinn var
fámennur.
Grétar Mar sagði stöðu þjóðarinnar
grafalvarlega og þó svo að aðstæður
á landsbyggðinni virtust ekki eins
alvarlegar og á höfuðborgarsvæðinu
væru ýmsar blikur á lofti varðandi
sjávarútveginn. Hann væri mjög
skuldsettur og m.a. hefði LÍÚ beðið
um sérmeðferð ríkisstjórnarinnar en
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráð-
herra hafi gefið það út að fyrirtæki í
landinu fengju ekki sérmeðferð
umfram húsnæðiseigendur. Grétar
Mar sagði stöðuna í Vestmanna-
eyjum því ekki góða og taldi að
rekja mætti upphafið að vanda
þjóðarinnar til þess að frjálst framsal
á veiðiheimildum var heimilað.
Grétar Mar sagðist vita til þess að
útgerðarmenn þyrðu ekki að flytja
gjaldeyri heim þó svo að þeir hefðu
verið hvattir til þess af samtökum
útvegsmanna. Hann varaði við því
að krónan yrði sett á flot því hætta
væri á að jöklabréfm færu út og þar
með mest af þeim peningum sem
gjaldeyrissjóðurinn hefði lánað til að
rétta við fjárhag þjóðarinnar.
f máli Grétars og Magnúsar kom
fram að þeir vildu auka við
fiskveiðiheimildir, flýta virkjunar-
framkvæmdum og styrkja velferð-
arkerfið nú þegar illa áraði en fresta
samgöngumálum eins og í Bakka-
fjöru. Eins vilja þeir breyta fisk-
veiðistjórnunarkerfinu og lögðu
áherslu á að mikilvægt væri að
ganga til kosninga fljótlega.
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
Nudd er heilsurækt!
Nudd er lífsstíll!
Erla Gísladóttir
nuddari
Faxastíg 2a
Sími: 481 1612
Vilhjálmur Bergsteinsson
% 481-2943
% 897-1178
Happdrætti Handknattleiksdeildar
gengió verður í hús á fösudag og
seldir miðar. Veglegir vinningar í
boði, b.á.m. 200 evrur.