Fréttir - Eyjafréttir - 11.12.2008, Blaðsíða 1
Bílaverkstæðið BrAGGINNsf. Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð ■ Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
35. árg. I 50. tbl. I Vestmannaeyjum 11. desember 2008 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
LEIKFÉLAG Vestmannaeyja frumsýndi á laugardag, frumsamið jólaleikrit, Grýla gerir uppreisn. Verkið sömdu þær Alma Eðvalds-
dóttir, Arndís Osk Atladóttir, Eva Lilja Árnadóttir og Steinunn Ragnhildur Guðmundsdóttir. Hér eru Grýla og Leppalúði. Bls. 14.
Útkall - Flóttinn frá
Heinpaey og Edda:
Árita
Utkallsbækur Óttars Sveinssonar
hafa verið í efstu sætum metsölu-
listanna í hálfan annan áratug og
hafa verið gefnar út víða um
heim. Nú eru Vestmannaeyjar
sögusviðið og hefst atburðarásin
aðfaranótt 23. janúar 1973 þegar
um 1,8 km löng gossprunga
myndast á Heimaey. Eldstrókar
rísa með hvellum og drunum.
5.300 íbúar eru í hættu.
Óttar, sem verður í Vestmanna-
eyjum í dag, fimmtudag, til að
árita bókina segist mjög ánægður
með viðtökurnar, ekki síst í
Eyjum. „Eyjamenn, sem ég hef
rætt við, segjast fá nýja sýn á það
sem gerðist í gosinu, ekki síst
sjálfa gosnóttina. Það segir mér
að ég hafi náð því fram sem ég
ætlaði mér,“ sagði Óttar.
I bókinni kemur m.a. fram að
sumir afskrifuðu ástvini sína og
fannst gossprungan komin inn í
bæ. Fólk óttaðist um líf sitt og í
fyrsta skipti kemur fram áhrifa-
rík saga níu manna fjölskyldu á
Heimaey þegar hjónin Sigvaldi
Heiðar Árnason og Inga Ingi-
bergsdóttir týna fjórum barna
sinna í tæpa tvo sólarhringa. Saga
Eddu er sögð í samnefndri bók
Herdísar Egilsdóttur.
Edda er með Óttari í för. „Við
ætlum að nýta tímann og lesa upp
úr bókunum í Grunnskólanum og
svo áritum við bækurnar í Penn-
anum frá kl. 14.00 til 14.45,“
sagði Óttar.
Landeyjahöfn:
Grjót frá Eyjum?
Elliði Vignisson, bæjarstjóri
staðfesti við Fréttir að Suðurverk
hafi sýnt áhuga á að kaupa grjót
héðan úr Eyjum.
Hann sagði að slík ákvörðun
verði þó ekki tekin nema að fyrir
liggi að til sé nægt grjót í
stórskipahöfn og aðrar mikil-
vægar framkvæmdir.
„Eg hef engan heyrt minnast á
að til standi að fresta fram-
kvæmdum við Landeyjahöfn
enda í hróplegri andstöðu við
yfirlýsingar ríkisstjórnar um að
áfram skuli haldið með mann-
frekar framkvæmdir og þá ekki
síst mannfrekar," sagði Elliði.
Biðlistar eftir leikskóla
-Sagt jákvætt fyrir byggðarlagið - Leitað leiða til að leysa vandann sem fyrst
Upp er komin sú staða að biðlistar
hafa myndast eftir leikskólaplássum
í Vestmannaeyjum og hefur slíkt
ekki gerst síðustu ár.
Guðrún Helga Bjamadóttir, yfir-
maður leikskólamála hjá Vest-
mannaeyjabæ, segir þetta vera já-
kvætt vandamál. „I september var
staðan þannig að öll börn, 18 mán-
aða og eldri, sem vildu, gátu fengið
leikskólapláss. Svo í október breytt-
ist þetta, aðsóknin fór að aukast og
nú eru átta börn, á aldrinum þriggja
til fimm ára, á biðlista. Eitthvað
sem við höfum ekki séð í mörg ár.
Fyrir mér er þetta jákvætt vandamál
sem við þurfum að leysa og við
erum einmitt að vinna að því þessa
stundina."
Guðrún Helga segir að þrátt fyrir
fjölgun dagmæðra sé staðan sú að
aðeins eitt pláss sé laust þar og ekki
sé hægt að setja eldri böm með hvít-
voðungum hjá dagmæðmm. „En
við leysum þetta mál. Við stækkum
auðvitað ekki leikskólana en við
munum engum vísa frá sem þarf á
leikskólavist að halda og þetta mál
hefur algeran forgang hjá okkur.“
Ástæðan fyrir þessu er sú að íbúum
er að fjölga í Vestmannaeyjum.
Guðrún Helga segir að hingað sé að
flytja fólk af höfuðborgarsvæðinu,
sem og útlendingar og einnig sé að
koma hingað fólk sem verið hefur í
námi ytra og kýs að setjast að hér
frekar en á höfuðborgarsvæðinu.
„Þetta ástand er auðvitað ekki
skemmtilegt fyrir bömin eða for-
eldra þeirra, en okkur fínnst þetta
jákvætt fyrir byggðarlagið og emm
að leita leiða til að leysa þennan
vanda á næstu dögum,“ sagði
Guðrún Helga Bjarnadóttir.
Lífeyrissjóður Vm ekki dýr í rekstri
í Morgunblaðinu í gær segir að
Gildi lífeyrissjóður hafi ákveðið
10% lækkun launa hjá stjómarmön-
num sjóðsins og æðstu stjómendum
frá næstu áramótum. Munu fleiri
sjóðir ætla að gera það sama.
Kemur fram að forstjórar stærstu
lífeyrissjóðanna hafi verið með 20
til 30 milljónir króna í árslaun.
Hæstur var forstjóri Lífeyrissjóðs
verslunarmanna með tæpar 30
milljónir króna og næstur forstjóri
Gildis með 21,5 milljónir króna.
I ársreikningi Lífeyrissjóðs Vest-
mannaeyja fyrir árið 20007 kemur
fram að heildarlaun og þóknanir til
stjómenda sjóðsins á árinu 2007
námu kr. 11,1 milljón að viðbættum
kr. 160 þúsund. Þar er Torfi Sig-
tryggsson, framkvæmdastjóri, með
7, 5 milljónir
Þú færö allar vörurnar okkar í póstkröfu
Hringdu í póstkröfusímann
eða kíktu ó heimasíðuna okkar!
www.rumfatalagerinn.is
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA
VÉLA- OG BÍLAVIÐGERÐIR
net^Éhamar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
<3F ÞJÓNUSTUAÐILITOYOTA í EYJUM / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...!
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM. 864-4616