Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2008, Page 1
35. árg. I 52. tbl. I Vestmannaeyjum 30. desember 2008 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
FRAMHALDSSKÓLANUM var slitið laugardaginn 20. desember og hér eru stúdentarnir fimmtán sem útskrifuðst af haustönn. Auk
þess útskrifuðust tíu sjúkraliðar. Mynd Óskar Pétur.
Engar bætur fyrir skipalyftuna - Málið aftur á byrjunarreit:
Þingmenn fá falleinkunn
-segir talsmaður Skipalyftunnar - Skoða á aðra möguleika
Á fundi framkvæmda- og hafnar-
ráðs var upplýst að engar bætur
komi til vegna tjóns sem varð á
skipalyftunni fyrir rúmuin tveimur
árum þegar verið var að taka Gandí
VE upp. Síðan hafa upptökumann-
virkin verið ónothæf en bundnar
voru vonir við að bætur fengjust frá
hinu opinbera. Samþykkti Alþingi
bótagreiðslu 2007 en vonast var eftir
hærri upphæð til að hægt yrði að
byggja stærri lyftu.
Á fundum formanns ráðsins og
hafnarstjóra með fulltrúum sam-
gönguráðuneytisins og Siglinga-
stofnunar var upplýst að fyrir lægi
úrskurður ESA dómstólsins í
Brussel um að óheimilt væri að
greiða tjónabætur til Vestmanna-
eyjahafnar vegna tjónsins þrátt fyrir
að Alþingi hafi samþykkt slíka bóta-
greiðslu vorið 2007. Á fundi
framkvæmda- og hafnarráðs var því
lýst yfir að aðrir möguleikar verði
skoðaðir í framhaldinu við að
byggja upptökumannvirki í Vest-
mannaeyjum.
Stefán Jónasson, hjá Skipalyft-
unni, segir þetta gríðarleg vonbrigði.
„Það er búið að draga okkur á
asnaeyrunum í meira en tvö ár í
þessu máli. Eg get ekki betur séð en
að það hafi aldrei verið alvöru áhugi
fyrir því að endurbyggja skipalyft-
una. Flestir þingmenn Suðurkjör-
dæmis hafa ekki sýnt þessu máli
mikinn áhuga. Þar má fyrstan nefna
oddvita núverandi stjórnarflokka,
fjármálaráðherra og viðskiptaráð-
herra. Þá hefur aðkoma hafnar-
stjómar verið innantóm því ef þeir
ásamt bæjarstjóm hefðu lagst á eitt í
þessu máli þá væri lyftan komin
upp. Það var allan tímann raunhæf-
ur möguleiki því það vantaði sára-
lítið upp á að fjármagnið skilaði sér.
Það var t.d. búið að tjónameta lyft-
una eftir slysið en það fékkst svo
ekki í gegn í Brussel. Þá var farið í
B-Ieið þar sem ríki og bær ætluðu að
endurbyggja lyftuna en aftur var því
hafnað í Brussel á þeim forsendum
að aðkoma ríkisins væri ekki lögleg
vegna samkeppnissjónarmiða,"
sagði Stefán og minnti á að ríkið
keypti flotkví á Akureyri og afhenti
hafnaryfirvöldum sem síðan endur-
leigir kvína til einkafyrirtækja.
„Auk þess var það síðasta verk
Islenskra aðalverktaka í ríkiseigu að
byggja yfir slippinn í Njarðvík og
eitthvað hefur það kostað ríkið. Það
virðist því ekki vera sama hvar á
landinu svona framkvæmdir eru og
ég segi það að þingmenn kjör-
dæmisins fá algjöra falleinkunn og
þeir eiga að skammast sín. Auk þess
finnst mér aðkoma ákveðinna
embættismanna bæjarins mjög mátt-
laus.“
Um áhrifin á rekstur Skipa-
lyftunnar sagði Stefán að þeir haldi
sínu striki. „Við erum með tuttugu
menn í vinnu og það hefur gengið til
þessa. Þetta er bara svo óöruggur
rekstur og við sjáum ekki langt fram
í tímann varðandi verkefni. Við
hefðum hins vegar verið í kjör-
aðstöðu til að fjölga íbúum hér því
góð lyfta hefði kallað á fjölgun
iðnaðarmanna hjá okkur og nú sæk-
ist fólk eftir því að flytja út á land.
Við erum sárir og svekktir en höld-
um okkar striki," sagði Stefán.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri, segist
sjá mest eftir tímanum sem fór í að
vinna við regluverk ESB. „Auð-
vitað eru það mikil vonbrigði að fá
afgerandi neitun frá Brussel. Verra
var samt að láta draga sig svona
lengi á svörum enda þessi niður-
staða búin að liggja í loftinu í langan
tíma. Á fundi núna í desember
skýrðu svo fulltrúar Samgönguráðu-
neytis og Siglingastofnunar frá því
að fyrir lægi úrskurður ESA dóm-
stólsins í Brussel um að óheimilt
væri að greiða tjónabætur til hafnar
innar þrátt fyrir að Alþingi hafí
samþykkt slíka bótagreiðslu vorið
2007. Nú liggur það sem sagt fyrir
að ekki er króna að koma til þessarar
framkvæmdar frá ríkinu, ef hér við
situr, og það sem verra er að ekki
verður einu sinni staðið við tjóna-
bætur eins og stefnt var að,“ sagði
Elliði.
Hann segir Vestmannaeyjabæ þó
ekki hvika af stefnu sinni varðandi
uppbyggingu upptökumannvirkja
skipa. „Seinagangur og ótrúlegt
flækjustig í samskiptum við Brussel
hefur nú kostað okkur á þriðja ár.
Engu að síður þá er strax betra að
vera kominn með svar. Við munum
á næstu dögum funda með hags-
munaaðilum og skoða aðra
möguleika við að byggja upp upp-
tökumannvirki í Vestmannaeyjum
og fjármögnun slíkra framkvæmda.
Vestmannaeyjabær, sem er eigandi
Vestmannaeyjahafnar, hefur ekki
breytt stefnu sinni en ein getum við
ekki ráðist í framkvæmdir upp á
hundruð milljóna, slfkt myndi setja
höfnina á hnén.“
Skólaslit FÍV:
25 út-
skrifast
Framhaldsskólanum var slitið
laugardaginn 20. desember sl. I
allt útskrifuðust 25 nemar frá
skólanum á haustönn, tíu sjúkra-
Iiðar og fimmtán stúdentar.
Við skólaslit kom fram að
óvenju margir nemendur voru við
skólann í haust. Mestur var
fjöldinn 347 nemendur en í Iok
annarinnar voru þeir 318.
Ekki eru allir nemendur í fullu
námi og nemendaígildi og í
upphafi annar voru nemendur
skráðir í 5003 einingar og stóðust
þeir 3796 einingar. Nemendur
standast því 76% þeirra eininga
sem lagt er af stað með.
Þegar skoðaður er námsárangur
nemenda, þá eru 2% nemenda
með ágætiseinkunn í meðal-
einkunn, ágætiseinkunn er eink-
unn yftr 9. Um 35% nemenda hafa
meðaleinkunn á bilinu 7,25 til 9,
en það telst fyrsta einkunn. Um
37% nemenda eru því að standa
sig mjög vel í náminu.
Síldin
flokkuð
Síldveiðar og vinnsla gekk vel í
upphafi vertíðar, stærsti hlutinn
feit og góð síld sem unnin var til
manneldis. í byrjun desember fór
að bera á sýkingu í síldinni og
mikil óvissa ríkti um framhaldið
því allt benti til þess að sfldin væri
ekki hæf til frystingar og færi þar
af leiðandi í bræðslu. Það þýðir
mikið tekjutap fyrir alla sem
koma að veiðum og vinnslu sfld-
arinnar. Vinnslustöðin brást við
þessum aðstæðum með því að
breyta vinnsluferlinu.
„Við stöðvuðum veiðar um tíma
og breyttum aðeins vinnsluferlinu
og náðum að flokka skemmdu
síldina frá,“ sagði Sigurgeir
Brynjar Kristgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar þegar hann var spurður út í
stöðu síldarvinnslunnar. „Við
erum í samstarfí við íslensk heil-
brigðisyfirvöld og erlenda kaup-
menn og þessi vinnsluaðferð geldc
vel. Skemmda sfldin var tínd frá
og send í bræðslu og stærsti hluti
aflans frystur. Þetta borgar sig
fyrir alla, fyrirtækið og starfs-
fólkið."
Vinnslustöðin á talsvert eftir af
sfldarkvóta og veiðar hefjast aftur
í janúar. „Við eigum eftir að sjá
hvert ástand síldarinnar verður
eftir áramótin. Þetta lukkaðist
nokkuð vel hjá okkur," sagði
Binni en dæmi eru um að afli, sem
veiddist seinni hluta desember-
mánaðar, hafi allur farið í
bræðslu.
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA
VÉLA- OG BÍLAVIÐGERÐIR
mar
VÉLA- OG BlLAVERKSTÆÐI
&> ÞJÓNUSTUAÐILI í EYJUM / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...!
FLATIR 21 / S. 481-1216 / GSM. 864-4616