Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Síða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Síða 1
Viðgerðir og smurstöð - Sími 48 7 3235 Réttingor og sprautun Bílaverkstæði - Flötum 20 " Simi 48 i 1535 38. árg. I 13. tbl. I Vestmannaeyjum 31. mars 2011 I Verð kr. 300 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is Fræðslu- og menningarráð: Skráning og mat á lista- verkum A síðasta fundi fræðslu- og menn- ingarráðs lá fyrir erindi frá Kára Bjamasyni, forstöðumanni Bóka- safns Vestmannaeyja, þar sem hann leggur til að fengnir verði sérfræðingar til að meta lista- verkasafn Vestmannaeyjabæjar. Ráðið þakkar ábendinguna, en yfir 500 listaverk - mörg menn- ingarlega mikilvæg og sum ómet- anleg, eru í eigu bæjarins og því mikilvægt að standa vörð um þau. Ráðið felur framkvæmdastjóra stjómsýslu og fjármálasviðs að útfæra þetta nánar í samráði við Kára. Áætlaður kostnaður við mat safnsins er allt að kr. 100.000.- f framhaldinu er Kára falið að endurskoða útlánareglur safnsins með tilliti til verðmæta. Vélstjórar stofna deild Á aðalfundi VM-félags vélstjóra og málmtæknimanna síðastliðin laugardag var samþykkt að stofna deild í Vestmannaeyjum sem hluta af félaginu. Til deildarinnar var stofnað samkvæmt 18. grein laga VM- félags vélstjóra og málmtækni- manna með 35 undirskriftum fé- lagsmanna VM í Vestmannaeyj- um. Stofnfundur deildarinnar verður í kvöld, fimmtudaginn 31. mars 2011 kl 19:30 í Básum á Básaskersbryggju og er það von aðstandenda að sem flestir félags- menn sjái sér fært að mæta á stofnfund VM deildar í Vest- mannaeyjum. Aðdragandi að þessari þróun er töluvert langur, eða allt frá því að sameining við VSFÍ varð á sínum tíma og Vélstjórafélag Vest- mannaeyja var lagt niður. Síðar sameinaðist VSFI Félagi járn- iðnaðarmanna í VM- félag vél- stjóra og málmtæknimanna að því er kom fram hjá Friðrik Björg- vinssyni, vélstjóra. LANDBURÐUR af físki. Fiskirí hefur verið mjög gott eftir að tíðin breyttist til hins betra. Gengur vel bæði hjá netabátum og togskipum og er mikil vinna í öllum húsum. Þessi mynd er úr Vinnslustöðinni þar sem verið er að vinna fisk í salt. Sjá bls. 2 og 6. Þolinmæðin á þrotum s -Sigurður Ass: Skil það vel - Skandia vinnur við mjög erfiðar aðstæður Þolinmæði Vestmannaeyinga vegna Landeyjahafnar minnkar nú með hverjum deginum og er nánast á þrotum. Á stórum samgöngufundi í Höllinni var talað um að það tæki fjóra til fimm daga að opna höfnina. Nú hálfum mánuði síðar hefur höfnin ekki enn verðið opnuð þrátt fyrir gott veður undanfama daga. „Ég skil vel óþolinmæði Vest- mannaeyinga og er mjög ósáttur með þetta,“ sagði Sigurður Áss Grétarsson hjá Siglingastofnun þegar hann var spurður út í málið. „I suðvestan öldu koma alltaf stakar öldur sem vilja taka dýpkunarskipið og kasta því til. Það eru því erfíðar aðstæður í Landeyjahöfn og verk- takinn er að þjösnast á tækjunum. Búnaðurinn er oft að bila og verkið að stöðvast og mesta hættan er að . í suðvestan öldu koma alltaf stakar öldur sem vilja taka dýpk- unarskipið og kasta því til. Myndina tók Hermann Sigur- geirsson sem er í áhöfn Skandia. Skandia verði fyrir alvarlegu tjóni og hún stöðvist í einhvem tíma,“ sagði Sigurður Áss og var þá spurður hvers vegna tímasetningar stæðust ekki. „Við höfum reynt að spá fyrir um hvenær höfnin opnast en það hafa náttúrulega verið spár og með fyrir- vara. Ein leiðin er að segja ekki neitt og kannski er það best en þá verða menn ósáttir með það. Von mín um að það tæki fjóra til fimm daga að dýpka höfnina er ekki að ganga eftir. Við þurfum líklega tvo daga til viðbótar í vinnu til að höfnin opnist.“ Þegar Sigurður var spurður hvort til greina hefði komið að fá Perluna til starfa við Landeyjahöfn ásamt Skandia sagði hann Perluna vera að dýpka á ísafirði. „Þar fyrir utan þá gæti hún ekkert dýpkað í hafnar- mynninu þar sem flöskuhálsinn er. Höfnin á eftir að standa í marga áratugi og þeir erfiðleikar sem við stöndum í núna em vegna nátt- úruhamfara og byrjunarörðugleika. Eftir að höfnin opnast núna þá er allt sem bendir til þess að við náum að halda henni opinni m.t.t. dýpis um ókomin ár. Það verður í undan- tekningartilfellum að höfnin komi til með lokast vegna dýpis. Við emm ekki búnir að útiloka að höfnin opnist aðfaranótt fimmtudags en vegna veðurs þá verður ekki unnt að sigla fyrr en á laugardag, samkvæmt nýjustu ölduspánni. Við munum gefa út fréttatilkynningu um málið á morgun [miðvikudag] en þá liggur þetta betur fyrir,“ sagði Sigurður Áss. Síðstu spár benda til þess að Land- eyjahöfn verði ekki opnuð fyrir helgi. VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eeimskip _________) 6eim$kip VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA... ...SVOÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / ÞJÓNUSTUAÐILI IO/O l/\ í EYJUM FLATIR 21 / S. 481-1216 / GSM. 864-4616

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.