Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Qupperneq 2

Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Qupperneq 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 31. mars 2011 -Sigurmundur hjá Viking Tours óhress með stöðu í samgöngumálum Tíu ára markaðsvinna í súginn - Tilkynnt var um sumaráætlun ferjusiglinga á halelújasamkomu - Segir Eyjamenn eiga betra skilið - Vill fá að sigla í Landeyjahöfn LANDEYJAHÖFN Þannig var umhorfs í Landeyjahöfn á mánudaginn þar sem Lóðsinn var inni í höfninni og Skandia að dæla í hafnarminninu. Nú hefur höfnin verið iokuð frá því í byrjun janúar. Mynd Guðmundur Alfreðsson. „Við vomm í tíu ár að markaðssetja okkur í jaðarferðaþjónustu og feng- um hópa fyrir og eftir sumarið til að lengja tímabilið. Við fengum breska skólahópa sem komu í lok febrúar, mars og apríl og svo eftir sumarið í október og nóvember. í fyrra voru fjörutíu hópar bókaðir en enginn í ár - þeir eru uppi á landi,“ sagði Sigur- mundur Einarsson, ferðamálafröm- uður hjá Viking Tours og munar um minna í ferðaþjónustu. „Tilkynnt var um sumaráætlun ferjusiglinga til Eyja á halelúja sam- komu í Höllinni 16. mars síðast- liðinn. Og allir ægilega ánægðir og grátandi yfir því að þeir sem stýra þessum málum skuli láta sjá sig á svona fundi. Viking Tours gat hins vegar ekki kynnt sumaráætlunina fyrir ferðaþjónustuaðilum og þar af leiðandi koma engir til okkar. Ferða- þjónustan er búin að selja þessar ferðir úti í Bretlandi. Þegar Heij- ólfur hætti siglingum í Landeyja- höfn síðasta haust misstu Viking Tours og Einsi kaldi af 1500 manns sem ætluðu að koma til Eyja,“ sagði Sigurmundur sem sjálfur hefur staðið í baráttu og vill sigla á ferju- bátnum Viking í Landeyjahöfn. „Frá 2008 hef ég sent bréf til Reykjavíkur með ósk um leyfi til siglinga í Landeyjahöfn og ekki fengið eitt svar. Svo heyrir maður frá starfsmanni Siglingastofnunnar á fundi 16. mars að aðrir bátar en Herjólfur hafi ekki leyfi til að fara í Landeyjahöfn af því þeir haft ekki leyfi til áætlanasiglinga þangað. Við höfum aldrei beðið um það leyft. Við viljum bara fá aðstöðu og leyft til að sigla með okkar eigin farþega og það er í mörgum tilfellum til að bjarga klúðrinu með Heijólf,“sagði Sigurmundur og heldur áfram. „Það sem mér finnst furðulegt er að fulltrúar í bæjarstjórn mæti tárvotir og þakklátir þrátt fyrir að búið sé að klúðra þessum málum algjörlega. Til dæmis er ölduhæðin í Landeyja- höfn í dag [þriðjudag] rétt rúmur einn metri. Öllum skipum sem eru með farþegaflutninga er bannað að sigla þarna inn. Ég tel að staður sem flytur út 15% af öllum fiskútflutn- ingi Islands eigi betra skilið. Það er verið að byggja göng fyrir minni bæjarfélög, fjórum sinnum dýrari en Landeyjahöfn. Af hverju er ekki keypt alvöru dæluskip til að halda höfninni opinni? Dallurinn sem kom hingað er algjört brak. Það eiga mjög margir hagsmuna að gæta, ferðaþjónustuaðilar, ÍBV, verslun, höfnin, flugvöllurinn og svo mætti lengi telja,“ sagði Sigurmundur og er eðlilega óhress enda hefur hann misst af ferðamönnum vegna stöðunnar sem nú er uppi. MIKIÐ er að gera í Vinnslustöðinni enda mikið flskirí á Drangavík og öðrum skipum félagsins. Fylltu á einum og hálfum sólarhring Atvinnusköpun og ferðaþjónustu: Fundur og fræðsla um handverk og hönnun Föstudaginn 8. apríl nk. klukkan 12:00 á Kafft Kró verður haldinn fundur á vegum Atvinnuþró- unarfélags Suðurlands, Frétta og Nýsköpunarmiðstöðvar íslands um tækifæri atvinnulífsins í handverki, listiðnaði og hönnun sem er liður í fundaröðinni, Tækifæri í atvinnusköpun og ferðaþjónustu. Gestir fundarins eru: Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmda- stjóri Handverks og hönnunar, Margrét Guðnadóttir, listiðnaðar- maður og Guðný Hafsteinsdóttir, leirlistamaður. I kjölfar hádegisfundarins verða haldnir fræðslu- og vinnufundir í Fab Lab smiðju Nýsköp- unarmiðstöðvar Islands á föstu- deginum og laugardeginum til þess að vinna nánar í samstarfi við heimafólk varðandi tækifæri í atvinnusköpun og ferðaþjónustu með handverki, listiðnaði og hönnun. Nánar verður greint frá því í næstu Fréttum. Áhugasamir hafi samband við Hrafn, hrafn@sudur.is (4812961) eða Frosta, frosti@nmi.is (481 3355) Drangavík var á veiðum á Selvogs- banka þegar Fréttir náðu tali af Magnúsi Ríkharðssyni, skipstjóra á miðvikudagsmorgun. „Þetta er búið að vera ljómandi gott. Eftir að veðrið fór að lagast hefur þetta verið glimrandi gott,“ sagði Magnús þegar hann var spurður hvemig fiskaðist. Við höf- um verið mest héma á Selvogsbanka og fengið blandaðan afla, ýsu, þorsk og ufsa. Við fórum út aðfararnótt mánudags og emm að setja í síðustu körin og löndum í dag“ sagði Magnús en áður höfðu þeir landað fullfermi eftir einn og hálfan sólar- hring. Hann var því mjög sáttur og sagði að veiði væri góð hjá þeim skipum sem væm á svæðinu. Fiskistofa fór með fleipur og biðst afsökunar Margir Eyjamenn voru mjög óánægðir með umfjöllun um sjávarúttveg í Vestmannaeyjum í þættinum Hér og nú í kvöldfréttatíma Sjónvarpsins 20. mars sl. Meðal annars kannaðist enginn við tölur um útflutning á ferskum fiski sem fram komu í þættinum. Nú er komið í ljós að ekki var við Fréttastofu að sakast sem byggði fréttina um útflutninginn á tölum frá Fiskistofu sem reyndust rangar. í fréttatíma RÚV á þriðjudaginn kom yfirlýsing frá Fiskistofu og beðist afsökunar á því að stofnunin hafi sent frá sér rangar upplýsingar um landaðan afla frá Vestmannaeyjum. „I ljós hefur komið að gögn sem Fiskistofa staðfesti til fréttastofunnar voru röng. Sá hluti afla sem landað er í Vestmannaeyjum til endurvigtunar erlendis var ekki talinn til hluta afla sem landað er í Vestmannaeyjum við vinnslu upplýsinga fyrir frétta- mann og skekkir það því niðurstöður um hlutfall afla sem fluttur er óunninn frá Vestmannaeyjum," segir í yfir- lýsingu Fiskistofu. Hið rétta er að á fiskveiðiárinu 2008 til 2009 var landað 20.663 tonnum af botnfiski í Eyjum og að auki var land- að 19.510 tonnum sem voru flutt óunnin á erlenda markaði. Hlutfallið var rúm 48% sem sent var út. Á sama hátt var landað 22.385 tonnum á fiskveiðiárinu 2009 til 2010 og 14.948 tonn voru flutt til endurvigtunar erlendis. Hlutfallið er því um 40%. Upplýsingasvið Fiskistofu harmar mistökin og biður hlutaðeigandi aðila afsökunar og lofar bót og betrun. Framkvæmda- og hafnarráð fundar: Skandia dældi of miklu Á fundi framkvæmda- og hafnar- ráðs á mánudaginn var rætt tjón sem varð vegna dýpkunar í kví upptökumannvirkja. Ólafur Þ. Snorrason, fram- kvæmdastjóri, greindi frá tjóni sem varð á stálþili í kvínni. Fram kom að talið er að Skandia hafi dýpkað of mikið upp við þilið og því hafi þilið sprungið út. Greint var frá því að tafir vegna þessa væru líklega tvær til þrjár vikur. Óljóst er hver ber ábyrgð á tjóninu en mat starfsmanna Vest- mannaeyjabæjar er að Skandia beri stærstu ábyrgðina. Ráðið felur stýrihóp um endur- byggingu upptökumannvirkja framgang málsins. g ■ ^^00^^^ Ekki pláss fyrir sjúkrabíl Fyrir fundinum lá bréf frá Gústaf A Gústafssyni varðandi sjúkrabif- reið Rauða Krossins en Heil- brigðisstofnunin í Vestmanna- eyjum hefur tekið yfir rekstur sjúkraflutninga í Vestmanna- eyjum. Öskaði bréfritari eftir því að að- staða fyrir sjúkrabíl verði á Slökkvistöð Vestmannaeyja. Þrátt fyrir að ráðið geti tekið undir mörg þau sjónarmið sem fram koma hjá bréfritara er ekki hægt að verða við erindinu vegna plássleysis á Slökkvistöðinni. Ný hafnar- vog keypt Fyrir lá tilboð vegna nýrrar Cardi- nal hafnarvogar að upphæð 6.216.204 án VSK með flutningi til Vestmannaeyja. Áætlaður afgreiðslufrestur er 60 til 90 dagar frá staðfestingu pönt- unar. Ráðið samþykkti fyrirliggj- andi tilboð en það rúmast ásamt uppsetningu innan fjárhagsáætl- unar Hafnarsjóðs Vestmannaeyja fyrir 2011. Étgcfandi: Eyjasýn ehf. 480378-054!) - VestTnannaeyjum. RitBtjóri: Ómar Garðaisson. Blaðamonn: Guðbjörg Sigurgeirsdóttir og Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðars- son & Gísli Valtýsson. Prentvinna; Eyjasýu/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjómar: Strandvegi 47. Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur frettir@eyjafrettir.is. Veffang: http//ww\v,.eyjafrcttir.LS ERÉTEER koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistdnum, Toppnmn, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarvershminni, Krónunni, Isjakanum, versluu 11-11 og Skýlinu i Fridarhöfn.. FRÉTITR eru preritaðar í 2000 eintökum. FRET4'4fl eru adilar ad Samtökum bæjar- og héraðsfréttabladiL Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.