Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Qupperneq 6
6 Fréttir / Fimmtudagur 31. mars 2011 Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður skrifar: Hvernig sinnum við löggæslu og sjúkraflutn- ingum best í Eyjum Það urðu mikil viðbrögð við stuttu viðtali við mig sem birtist fyrir tveimur vik- um í blaðinu, þar sem ég svaraði spurningum blaðamannsins um hvaða áhrif það hefði á starfsemi lögreglunnar í Vestmannaeyjum þegar sjúkra- flutningar færðust úr hendi hennar. Styrmir Sigurðarson, slökkvi- liðsmaður og bráðatæknir, skrifar grein um það hvernig bráðaþjón- ustan verði eftir framangreindar breytingar, en rennur mjög fljót- lega út af sporinu og kýs fremur að lýsa þeim störfum sem lög- reglan á að sinna og hverju ekki. Ekki ætia ég að elta ólar við að svara því sem Styrmir segir um starfsemi lögreglunnar eða hennar vandamál og vinnulag, ég held að bæjarbúar hafí fremur áhuga á því að vita hvernig sjúkraflutningum, bráðaþjónustu og löggæslu verði sinnt eftirleiðis og hvort öryggi bæjarbúa verði betra eða verra. Styrmir kýs að nefna það sem sérstakt haldreipi bráðaliða að lögreglan komi ætíð á staðinn. Það er alveg ljóst að ef lögreglan fær ekki fjármagn til að halda úti sólarhringsvakt þá verður hún byggð upp á bakvöktum eins og reyndar mér skilst að eigi að sinna bráðaþjónustu hér í Vestmanna- eyjum með nýju fyrirkomulagi. Slíkt kerfi er auðvitað aldrei eins viðbragðsfljótt og viðbragð manna sem eru á vakt á starfsstöð. Þjónusta beggja, bæði lögreglu og bráðaliða, hlýtur því að markast af þeim fjármunum sem ríkið er tilbúið að leggja í þessa þjónustu og ef hún er skorin við nögl þá er ekki von á góðu, en það er dýru verði keypt ef það á að kosta heilsu eða fjör sjúklinga hér í bænum. Kannski er það mögu- leiki að bæjaryfirvöld komi að þessu með einhverju framlagi eins og Styrmir gefur einnig í skyn. I sama blaði er líka greinarstúfur frá félögunum úr Reykjavík þar sem mér er ætlað að hafa sagt að leggja ætti sjúkraflutninga niður í Vestmannaeyjum. Þessi fullyrð- ing er ekki svaraverð, en endur- speglar þá togstreitu sem komin er í þetta mál þar sem sumir virðast vilja að stéttahagsmunir verði settir ofar almannahagsmunum. Málið er í raun ofureinfalt - það vantar fjármagn til þess að sinna bæði sjúkraflutningum og lög- gæslu betur í Vestmannaeyjum, því bæjarbúar eiga það besta skil- ið og ekkert minna. Og ef þetta fjármagn er ekki til þá þarf að svara þeirri spurningu hvernig þetta verður gert best úr garði með öryggi bæjarbúa að leiðarljósi. Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. HRESS Brugðið á Ieik í saltfískvinnslunni í Vinnslustöðinni. Brjálað að gera í bolfiski -Fiskurinn flakaður, snyrtur og saltaður - Unnin stykki flutt út fersk „Það er brjálað að gera í fiski. Þegar loðnan var búin, rann þetta svolítið saman og vetrarvertíðin byrjaði um leið og veðrið fór að lagast, “ sagði Anna Sigríður Hjaltadóttir, vinnslu- stjóri Vinnslustöðvarinnar, þegar hún var spurð út í stöðuna á vinnslunni. Sömu sögu er að segja í Isfélaginu og Godthaab. „Það er að mestu leyti sama kjamafólkið sem kemur að vinnsl- unni þó það sé alltaf einhver hreyf- ing á mannskapnum. Vinnutíminn er alveg 10 til 12 tímar og 15 tímar hjá þeim sem standa lengst," sagði Anna Sigríður. Fjölbreytt framleiðsla Hvað eruð þið að vinna núna? „Uppistaðan er þorskur og ufsi. Þorskinn fletjum við og setjum í salt og seljum á Portúgal eða seljum ferskan, vinnum hnakka og flök, og sendum í gámum á Evrópu. Við frystum svo hráefnið sem er lausara í sér og vinnum sem hnakka og bita og sendum til Frakklands og Bret- lands. Ufsahnakkar og flök fara út fersk og ufsinn er líka frystur og seldur í bitum. Við erum með mjög góðan markað á ferskum afurðum enda erum við yfirleitt með ferska og góða vöru og stöndum vel miðað við aðra sem eru í útflutningi hvað varðar gæði,“ sagði Anna Sigríður. Skip Vinnslustöðvarinnar voru öll á sjó á þriðjudag.. „Brynjólfur VE og Kristbjörg VE eru á netum og Drangavík VE, Gullberg VE og Jón Vídalín VE eru á togveiðum. Það er ágætis veiði eftir því sem ég best veit, á öllum skipunum," sagði Anna Sigríður og nóg að gera í land- vinnslunni og sannkölluð vertíðar- stemmning í húsinu. Allt í góðum gír „Það er verið að vinna alla virka daga,“ sagði Björn Brimar, vinnslu- stjóri Isfélagsins, þegar leitað var frétta hjá honum á þriðjudag. „Suðurey VE og Þorsteinn ÞH sjá frystihúsinu hér og á Þórshöfn fyrir hráefni og það dreifir álaginu. Við höfum verið mest í ýsu og hún fer fersk á Evrópu og við frystum flök á Bandarrkin. Þetta er allt í góðum gír, við unnum yfirvinnu þrjá daga í síðustu viku og gerum það ef á þarf að halda,“ sagði Björn Brimar. Nóg framboð af fiski Það er nóg að gera.Við erum að vinna á laugardögum og það er unnið frá 07.00 til 17.00 alla virka daga. Svo byrja alltaf einhverjir, eftir atvikum, fyrr á morgnana,“ sagði Einar Bjamason hjá Godt- haab en þar hefur verið nóg að gera síðustu tvær til þrjár vikur. „Við höfum verið með bland, þorsk, ýsu og ufsa og flytjum út ferskt og frosið. Það er allt í gangi og við kaupum hráefni beint af út- gerðum og svo af fiskmarkaðnum. Það er nóg framboð og gengur vel,“ sagði Einar og var ánægður með ganginn í Gothdhaab. Seld 1365 tonn fyrir 362 milljónir Mikið hefur verið að gera á Fiskmarkaði Vestmannaeyja frá áramótum og er hann einn af fáum fiskmörkuðum sem haldið hefur í horfmu á þessu ári. Á mánudaginn höfðu 1365 tonn farið í gegnum markaðinn og söluverðmætið er rétt um 362 milljónir króna. Kári Hrafnkelsson, framkvæmda- stjóri, sagðist ekki geta verið annað en ánægður með ganginn frá ára- mótum og í mars hefur ríkt sann- kölluð vertíðarstemmning hjá þeim. „Við erum búnir að taka á móti 355 tonnum af þorski frá áramótum og er verðmætið 124 milljónir og meðalverðið 350,57 krónur. Hæsta og lægsta verð fer svo eftir stærð en hæst höfum við séð kílóið fara yfir 420 krónur,“ sagði Kári. Hann er ekki síður ánægður með heildaraflann, 1365 tonn. „Fyrir þennan afla höfum við fengið 361,7 milljónir króna og meðalverðið er 350,70 krónur sem er mjög gott.“ Þann 28. mars, á mánudaginn, höfðu þeir tekið á móti 281 tonni af þorski í mars og var verðmætið 99,1 milljón. I heildina höfðu 842 tonn farið í gegn hjá þeim og var verð- mætið 229,3 milljónir. „I síðustu viku var mjög mikið að gera en þá tókum við á móti 414 tonnum sem seldust á 110 milljónir króna." Kaupendur eru vítt og breitt um landið en í Vestmannaeyjum er Godthaab stærsti kaupandinn. Við sendum mikið til Hafnarfjarðar þaðan sem fiski er dreift um nánast allt land,“ sagði Kári að lokum. Á Fiskmarkaðnum starfa tveir auk Kára, Pétur Ámmarsson og Ámi S. , Pétursson. PETUR með myndarlegan þorsk og ufsa sem seldir voru á mánudag. wrnsi) w VélvirM óskast Þjóðhátíðarnefnd auglýsir Úskum að ráða vélvirkja til starfa. Þjóðhátíðarnefnd óskar eftir húsnæði fyrir starfsfólk nefndarinnar yfir hátíðina. Þjóðhátíðarnefnd heitir skilvísum greiðslum og tekur fulla ábyrgð á húsnæðinu. Upplýsingar lijá Nethamri, sími 897 7530. Áhugasamir geta haft samband í síma 481-2060 eða sent tölvupóst á ibv@ibv.is ne^hamar,, dalurinn.is Þjóðhátíðarnefnd dalurinn.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.