Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Side 8
8
Fréttir / Fimmtudagur 31. mars 2011
ÞAÐ er oft mikið líf og fjör á sviðinu og þar spila Iög ABBA stórt hlutverk.
Leikfélagið sækir í smiðju ABBA - Mamma Mia frumsýnd á laugardag:
Góð leið til að kveðja veturinn
-segir Guðjón Þorsteinn, leikstjóri, sem lofar skemmtilegri sýningu
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir
á laugardaginn söngleikinn
Mamma mia. Verkið er vel þekkt
enda hefur það gengið fyrir fullu
húsi í London í áratugi og bíómynd
eftir söngleiknum sló í gegn fyrir
nokkrum árum. Söngleikurinn er
byggður í kringum hin geysivin-
sælu lög ABBA. Leikstjóri upp-
setningar Leikfélags Vestmannaeyja
er Eyjamönnum að góðu kunnur en
Guðjón Þorsteinn Pálmarsson setti
upp leikritið Bláa hnöttinn hjá
félaginu fyrir nokkrum árum.
Margir koma að verki
Um 40 manns koma að sýningunni,
langflestir standa á sviðinu en í
sýningunni er lifandi tónlist með
öflugri hljómsveit heimamanna.
Auk þess eru fjölmargir sem að-
stoða við sviðsmynd, lýsingu,
búninga og annað sem til fellur.
Með helstu hlutverk fara Elín Sól-
borg Eyjólfsdóttir, Sólveig Unnur
Ragnarsdóttir, Birkir Högnason,
Sigurhans Guðmundsson og Sindri
Freyr Ragnarsson. Leikhúsbandið
skipa þeir Birgir Nielsen, trommur,
Gísli Stefánsson, gítar, Högni
Hilmisson, bassi, Páll Viðar
Kristinsson, hljómborð og Matthías
Harðarson, hljómborð og blástur.
Guðjón Þorsteinn sagði í samtali
við Fréttir að hann hafi mætt smá
fordómum þegar hann lagði til að
þetta verk yrði fyrir valinu.
„Kannski eðlilega en stjórnin var
klolln í afstöðu sinni um hvaða
verk ætti að sýna. Ég lagði því til
að þetta verk yrði næsta verkefni en
það þótti bara asnalegt að syngja
Abba lögin á íslensku. En svo
þegar þau fóru að rýna betur í text-
ana snerust þau og í dag er að
myndast heljarinnar veisla fyrir
augu og eyru.“
Guðjón segir að hópurinn fari
frekar frjálslega með söguna.
„Enda er sagan í raun og veru
ekkert ýkja merkileg. Eg las það
reyndar þegar ég fór á sýninguna í
London á sínum tíma að handritið
hefði verið í fjögur ár í smíðum og
ég gat ekki annað en brosað út í
annað.
En við bætum og breytum og
staðfærðum söguna t.d. til Vest-
mannaeyja. Það er reyndar agalega
gott veður en við slepptum því að
staðfæra veðrið," sagði Guðjón og
brosti. „En oft verða bestu hug-
myndirnar til úr einhverjum mis-
tökum eða klúðri. Ég man líka að
leikstjóri myndarinnar Mamma Mia
var spurður að því hvenær hann
ætlaði að gera sína fyrstu þrívídd-
armynd. Svarið var ósköp einfalt.
Hann sagðist í fjölmörg ár hafa
unnið í þrívídd, í leikhúsi sem er
hin eina sanna þrívídd."
Það er að fæðast glæsileg
sýning
Að baki er tveggja mánaða æf-
ingaferli með öllu sem því fylgir en
Guðjón segir að þetta hafi verið
gefandi vinna. „Þetta er stór hópur
og allskonar karakterar þarna
saman komnir. En á endanum
leggjast allir á eitt, sérstaklega
þegar þau fóru að sjá hvað þau geta
búið til stórkostlega hluti. Þetta er
eitt af því sem fær mann til að vera
í þessu starfi, að fylgjast með ungu
fólki þroskast."
En afhverju eiga Eyjamenn að
koma á sýninguna?
„Það eru fjölmargar ástæður fyrir
því. Ég er fyrir það fyrsta ákaflega
ánægður með leikarahópinn því nú
er að fæðast glæsileg sýning og
Eyjamenn væru hreinlega klikkaðir
að sleppa henni. Þetta er lika
ofboðslega góð leið til að kveðja
veturinn. í Mamma Mia er svo
mikið sumar, gleði og jákvæðni.
Og ef ég væri Eyjamaður, þá myndi
ég ekki vilja missa af því að sjá
Mamma Mia í Eyjabúningi. Það er
bara eitthvað sem Eyjamenn verða
að sjá. En umfram allt, þá lofa ég
góðri sýningu," sagði Guðjón Þor-
steinn að lokum.
Fræðslu- og menn-
ingarráð:
Hundrað ár
frá fæðingu
Oddgeirs
-Stýrihópur um 100
ára fæðingarafmæli
Oddgeirs Kristjáns-
sonar
„í ár eru hundrað ár frá fæðingu
Oddgeirs Kristjánssonar. Af því
tilefni telur Vestmannaeyjabær
afar brýnt að gera minningu þessa
merka tónlistarmanns, sem er
orðinn órjúfanlegur hluti af tón-
listarsögu Vestmannaeyja og
landsins alls, hátt undir höfði,“
segir í fundargerð fræðslu- og
menningarráðs.
Ráðið leggur til að stofnaður
verði stýrihópur til að fara fyrir
aðkomu Vestmannaeyjabæjar.
Ráðið beinir því til stýrihópsins
að skoða sérstaklega möguleika
þess að setja upp sérstakt vef-
svæði á heimaslod.is um Oddgeir,
hafa sérstakan bás í Sagnheimum
undir farandsýningu tengda
Oddgeiri, útsetja 2 til 3 af lögum
hans fyrir lúðrasveit, tileinka Nótt
safnanna sérstaklega hans minn-
ingu og ýmislegt fieira.
Ráðið skipar Kristínu Jóhanns-
dóttur, menningarfulltrúa, Trausta
Hjaltason og Margréti Rós Ing-
ólfsdóttir í stýrihópinn.
Fulltrúi í
nefnd um
minningar-
sjóð
Fyrir ráðinu lá erindi frá fjöl-
skyldu Oddgeirs Krisjánssonar
þar sem gerð var grein fyrir stofn-
un minningarsjóðs um tónskáldið.
Stofnframlag sjóðsins kemur frá
vini Oddgeirs, Kjartani Bjarna-
syni frá Djúpadal í Vestmanna-
eyjum, sem með erfðaskrá sinni
ákvað að hluti eigna hans skyldi
renna í minningarsjóð um Odd-
geir.
Ennfremur lágu fyrir reglur um
starfsemi sjóðsins en þar er
kveðið á um tilgang sjóðsins,
skipan í stjórn, hvernig staðið
skuli að styrkumsóknum og annað
það sem viðkemur starfi slíks
sjóðs.
Þá er þess farið á leit við bæjar-
stjórn Vestmannaeyja að hún skipi
fulltrúa í stjóm Minningarsjóðs
Oddgeirs Kristjánssonar.
Ráðið þakkar fjölskyldu Odd-
geirs Krisjánssonar hjartanlega
fyrir tryggð við Vestmannaeyjar
og lýsir yfir ríkum vilja til sam-
starfs. Þá skipar ráðið Ólaf
Jónsson, tóniistarmann frá Lauf-
ási, í Minningarsjóðinn
Miðstöðin tekur inn raftæki
Miðstöðin er að víkka út starfsem-
ina með sölu raftækja af minni
gerðinni. Kemur þessi þjónusta til
viðbótar við það sem fyrir er í
Miðstöðinni sem hefur einbeitt sér
að byggingavöm, hreinlætistækjum
og málningu til þessa auk pípu-
lagningaþjónustu sem er önnur af
meginstoðum starfseminnar.
Fréttir ræddu við Marinó Sigur-
steinsson, eiganda Miðstöðvarinnar
og Helga Hjámarsson, verslunar-
stjóra. Þeir sögðu að meðal tækja
sem boðið er upp á séu kaffivélar,
mínútugrill, ryksugur, matvinnslu-
vélar, straujárn, rakvélar og hár-
blásarar svo dæmi séu tekin. „Þetta
er tilraun hjá okkur og hafa við-
tökur verið mjög góðar,“ sagði
Helgi og tók Marinó undir það.
„Við ætlum að einbeita okkur að
smærri tækjunum en látum öðrum
eftir að versla með stærri tækin eins
og þvottavélar og ísskápa," sagði
Marinó.
Vörunar koma frá ýmsum fram-
leiðendum. „Við bjóðum upp á
gæðamerkið Braun sem Pfaff flytur
HELGI: -Við renndum blint í sjóinn með raftækin en viðtökur hafa
farið fram úr okkar björtustu vonum.
inn. Við verslum líka talsvert við
Byggt og búið og erum að auka
úrvalið í pottum og pönnum," sagði
Helgi.
„Svo höfum við verið að bæta við
í vöruflokkum sem við höfum
byggt verslunina á frá upphafi sem
eru hreinlætistæki fyrir eldhús og
bað, líka flísar og allt er þetta
gæðavara sem við viljum fullyrða
að sé á góðu verði hjá okkur. Það á
líka við málninguna," sagði
Marinó.
Þeir eru bjartsýnir á framtíðina og
segja mikið að gera, bæði í versl-
uninni og pípulögnum. „Já, það er
fínt að gera. Við renndum blint í
sjóinn með raftækin en viðtökur
hafa farið fram úr okkar björtustu
vonum. Birgjar okkar í Reykjavík
eru líka hissa á hvað við erum að
selja mikið,“ sagði Helgi.
Marinó sagði ánægjulegt að auka
þjónustu við Vestmannaeyinga með
þessu móti og viðtökur sýni að þeir
kunna að meta það. „Um leið
styrkir það okkur í að reka fyrir-
tækið og borga fólkinu okkar laun.
Við erum 12 til 13 sem störfum hjá
Miðstöðinni. Það skiptir miklu
máli að versla í heimabyggð en þá
þarf verslun í bænum að standa sig
í stykkinu. Það teljum við okkur
gera með því að bjóða upp á fjöl-
breytta og góða vöru á hagstæðu
verði,“ sagði Marinó að endingu.