Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Page 9
Fréttir / Fimmtudagur 31. mars 2011
9
Þriggja ára áætlun 2012 til 2014 - Gert ráð fyrir fjölgun íbúa - Bættar
samgöngur skjóti sterkari stoðum og meiri fjölbreytni undir atvinnulífið:
Framkvæmt fyrir 1100 milljónir
-Söfnin, menningarstarf,málefni aldraðra og umhverfismál verkefni næstu ára
Þriggja ára áætlun Vestmanaeyja-
bæjar var lögð fram á síðasta fundi
bæjarstjómar. Byggir hún á mark-
miðum um rekstur og framkvæmdir
sveitarfélagsins fyrir árin 2012 til
2014. í framsögu sagði bæjarstjóri
að leitast haft verið við að vanda til
áætlunar forsendna og gert er ráð
fyrir helstu breytingum sem em
áætlaðar og fyrirsjáanlegar.
Áætlunin ber með sér að staða
bæjarins er sterk og hægt að beita
bæjarfélaginu til að draga úr áhrif-
um kreppunnar fyrir bæjarbúa, að
mati Elliða Vignissonar, bæjarstjóra.
„Vestmannaeyjar hafa verið í for-
ystu sjávarbyggða í gegnum tíðina
og áætlun sú sem nú er lögð fram
miðar að því að sú staða verði varin.
Þá ber áætlunin þess glögg merki að
mikil þróun er að eiga sér stað í
samfélaginu og bæjarfélagið að
móta sér stefnu inn í framtíðina.
Áætluninni er ætlað að gefa heild-
armynd af þróun tekna og gjalda
auk samsetningar efnahagsreiknings
og fjárstreymis," sagði Elliði.
Erfitt að áætla tekjur af
útsvari
I framsögu sinni sagði Elliði að
Vestmannaeyjar séu sennilega það
sveitarfélag á íslandi sem á hvað
erfiðast með að áætla tekjur sem
standa og falla með gengi sjávar-
útvegsfyrirtækjanna sem sannarlega
sveiflast eftir duttlungum náttúr-
unnar og duttlungum stjórnmála
sem nú hafa aðrar hugmyndir um
velferð en hann. „Sérstaklega er
erfitt að ákvarða tekjur af útsvari
þegar fyrir liggur stefna ríkisstjómar
um aðferðir sem að mati mínu
myndu án vafa skaða atvinnulíf
Vestmannaeyja meira en tárum
taki,“ sagði Elliði.
Hann sagðist vonast til að skyn-
semin verði látin ráða og á því bygg-
ist áætlun um útsvar næstu þrjú árin.
Utsvarstekjur hafa hækkað umfram
áætlun undanfarin ár sem rekja má
til velgengni í sjávarútvegi. Nú er
gert ráð fyrir að ákveðnu hámarki sé
náð í vexti sjávarútvegsfyrirtækj-
anna. „Þá standa vonir einnig til að
bættar samgöngur skjóti sterkari
stoðum undir atvinnulífið og auki
fjölbreytni. Velgengni atvinnulífsins
er nú það sem skilar bæjarfélaginu
bættum hag,“ sagði Elliði en áætlað
er að tekjur af útsvari hækki að jafn-
aði um 5% á ári frá fjárhagsáætlun
2011.
„Þetta er nokkuð undir þeirri
hækkun sem verið hefur síðastliðin
ár enda vöxtur seinustu ára verið
hreint ævintýralegur. Þá liggur fyrir
að varlega verður farið í launa-
hækkanir," sagði Elliði sem minnti á
mikilvægi þess að stöðugleika verði
gætt.
„Ástæða er til að vekja sérstaka
athygli á því að áætlaðar skatttekjur
2012 em rúmlega 6% hærri en gert
er ráð fyrir í fjárhagsáætlun fyrir
árið 2011. Engu að síður er þar um
9,5% lægri tekjur að ræða en raun-
tekjur ársins 2010 sem enn sýnir
hversu varlega er farið í áætlunar-
gerð hjá Vestmannaeyjabæ."
íbúum fjölgar
Fram kom hjá Elliða að áætlanir
seinustu ára hafi allar gert ráð fyrir
að íbúum í Vestmannaeyjum hætti
að fækka árið 2008 og hafi fjölgað
um 1% á ári, árin 2009, 2010 og
2011. „Þessi áætlun hefur náð fram
að ganga og er það mikið fagn-
aðarefni fyrir alla Eyjamenn enda
hafði íbúum í Vestmannaeyjum
fækkað nánast stöðugt frá 1993.
Mörgum þótti sem bæjarfulltrúar
væru full bjartsýnir í þessum spám
sínum en svo reyndist ekki vera.
FJÖLNOTA íþróttahúsið er stærsta einstaka framkvæmd bæjarins á
síðustu árum. Það var tekið í notkun í vetur.
Margt leggst á eitt til að gera þetta
að veruleika," sagði Elliði og vísaði
til eflingar sjávarútvegs, stórbættra
samgangna, aukinnar ferðaþjónustu
og fjölmargra vaxtarsprota í ný-
sköpun.
„Stórbættar samgöngur hafa þegar
haft mikil áhrif, eiga án efa enn eftir
að hafa veruleg áhrif á íbúaþróun og
munu auka almennt trú á vaxtar-
möguleika Vestmannaeyja.“
Þá sagði hann skipta máli sú mikla
og góða þjónusta sem Vestmanna-
eyjabær veitir. Vísaði hann m.a. til
könnunar Capacent í 16 stærstu
sveitarfélögunum sem sýnir að
Eyjamenn eru ánægðustu íbúar alls
landsins þegar spurt er um þjónustu
bæjarfélagsins. Staðan sé því sterk.
„I ljósi íbúaþróunar seinustu ár er
nú gert ráð fyrir því að íbúum í Vest-
mannaeyjum fjölgi áfram næstu
árin. Fjölgunin árið 2008 og 2009
var um 1,2% og fjölgaði þeim á
þessum tveimur árum úr rétt rúm-
lega 4040 í 4135. Það sem af er ári
2010 hefur íbúum enn fjölgað og
vonir eru til þess að fjölgunin haldi
áfram.
Núverandi spá gerir því ráð fyrir að
fjölgunin verði 1,2% á ári næstu
þrjú ár.“
Fasteignagjöld gefa meiri
tekjur, en tekjur af Jöfn-
unarsjóði lækka
Gert er ráð fyrir að uppbygging og
vöxtur atvinnulífs, fyrirhugaðar
byggingar íbúðarhúsa, nýtt versl-
unar- og þjónustuhúsnæði, bygging
iðnaðarhúsnæðis og hækkun fast-
eignaverðs muni skila sér í hækkun
tekna af fasteignagjöldum. Áætlað
er að hækkunin nemi 3% á ári að
jafnaði yfir tímabilið og þannig
hækka líka tekjur af sorphirðu, förg-
un og holræsagjaldi. „Vestmanna-
eyjabær hefur átt viðræður við fjöl-
marga fulltrúa atvinnulífsins. Hjá
þeim er umtalsverð framkvæmda-
þörf og framkvæmdavilji. Þá hefur
mikið verið um fyrirspurnir um
lóðir fyrir bæði einbýlishús, parhús
og raðhús. Áætlað er að 10.000 fer-
metrar verði fullbyggðir á tímabil-
inu,“ sagði Elliði.
Gert er ráð fyrir að tekjur vegna
jöfnunarsjóðs verði 3% lægri árið
2012 en í gert er ráð fyrir í fjár-
hagsáætlun 2011. Hins vegar er gert
ráð fyrir því að þá verði botninum
náð og eftir það taki þær mið af
almennri verðþróun og verði um 3%
Utgjöld - Rekstur
Fram kemur að eftir talsverðar
launahækkanir seinustu ár hafi
dregið úr þeim í kjölfarið á stöðug-
leikasáttmálanum. Gert er ráð fyrir
því að laun og tengd gjöld hækki um
2,5% frá fjárhagsáætlun 2011, sem
og að aðrar tekjur og annar kostn-
aður hækki um 2,5% árið 2012
miðað við fjárhagsáætlun 2011.
Gert er ráð fyrir að vaxtastig fari
verulega lækkandi á tímabilinu enda
þanmörk fyrirtækja og heimila
löngu brostin.
Það gerir að verkum að tekjur Vest-
mannaeyjabæjar af innlánum koma
til með að lækka og reiknaðir vextir
milli stofnana sömuleiðis. Áfram,
eins og frá 2007, er gert ráð fyrir
fjármagnstekjum en þó 27% lægri
árið 2012 en í fjárhagsáætlun 2011.
Til að hafa varann á er gert ráð fyrir
að annar fjármagnskostnaður sé
óbreyttur þótt líkur séu á að í raun
muni hann lækka eftir því sem lánin
lækka og detta út.
Reiknaðir liðir breytast lítillega á
tímabilinu. Þannig er gert ráð fyrir
að breyting lífeyrisskuldbindinga
hækki um 10 milljónir umfram það
sem gert var ráð fyrir í fjárhags-
áætlun 2011 og verði því um 100
milljónir. Ekki er gert ráð fyrir að
breytingar verði á afskriftum.
Stefnt er að því að á árunum 2010
til 2013 verði ekki tekin langtímalán
þótt áfram verði haldið að greiða
niður eldri lán og miklar fjárfesting-
ar séu framundan. Er það í takt við
þá stefnu sem rekin hefur verið sein-
ustu 4 ár.
Miklar framkvæmdir
Ráðist verður í töluverðar fram-
kvæmdir á tímabilinu. Fyrirliggj-
andi áætlun gerir ráð fyrir að alls
verði 450, milljónum varið til fram-
kvæmda árið 2012, 400 millj. árið
2013 og 250 millj. árið 2014.
Nánari útlistun á þessum fram-
kvæmdum verður lögð fyrir við
seinni umræðu. „Þó er þegar ljóst að
uppbygging á safnastarfi, menn-
ingarstarfi, málefnum aldraðra og
umhverfismálum verður fyrirferð-
armikil á næstu árum sé mið tekið af
stefnu þeirra flokka sem skipa
bæjarstjóm og umræðu á vettvangi
bæjarmála.
Helstu framkvæmdir aðrar eru
gatnagerð, viðhald félagslegs hús-
næðis, viðhalds stofnana og fleira.
Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna
lagninga nýrra gatna verði ekki telj-
anlegur enda áætlað að sala á lóðum
mæti þeim kostnaði," sagði Elliði í
lok framsögu um þriggja ára áætlun
sem var vísað til seinni umræðu.
Alhliða bókhaldsvinna
Fjárhagsbókhald:: Viðskiptamannabókhald
Sölu- og launabókhaíd:: Ársreikningar
Framtöl lögaðila og einstaklinga:: Mikil reynsla!
Erum í Eyjum
og í Reykjavík
s. 566-5026
og 892-9552
Friðrik Óskarsson er með aðsetur í Eyjum í gíuggaverksmiðjunni Gœsk
Frá Grunnskóla
Vestmannaeyja
Við skólann er laus 56% staða skólaliða
frá 1. apríl nk. Vinnutíminn er 12:00 -
16:30 alla virka daga.
GKV
GRUNNSKÓLI
VESTMANNAEYJA
Allar upplýsingar veitir Snorri í síma 861-4363 og 488-2203.
Umsóknum skal skila á skrifstofuna í Hamarsskóla sem fyrst.
Samstarf um rekstur tjaldsvæða
Vestmannaeyjabær óskar eftir samstarfi við áhugasama
aðila um rekstur tjaldsvæða. Innifalið í tilboði skal vera
allur rekstrarkostnaður við þjónustuna. Vestmanna-
eyjabær mun þó leggja til húsnæði og annan fastan
búnað.
Við yfirferð tilboða verður m.a. litið til:
1. Kostnaðar við þjónustu
2. Aðbúnaðar ferðamanna
3. Aðgengis að þjónustu svo sem tölvum, nettengingu,
veitingum, minjagripum og fl.
4. Framtíðarsýnar hvað samstarfið varðar
Vestmannaeyjabær áskilur sér rétt til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar og útlistun á hugmyndum
Vestmannaeyjabæjar um samstarf er hægt að fá í
afgreiðslu Ráðhússins eða með tölvupósti á netfangið
mararet@vestmannaeviar.is. Hugmyndum að sam-
starfi í samræmi við gögn ber að skila fyrir 8. apríl n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós
Ingólfsdóttir verkefnastjóri.
Róðhúsinu | 902 Vestmannaeyjum | kt. 690269-0159,
sími 488 2000 | fax 488 2001 | www.vestmannaeyjar.is