Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Blaðsíða 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 31. mars 2011 Herdís Gunnarsdóttir vann við hjálparstörf á Indlandi og í Kenýa: Met allt mun betur sem ég hef -Langar mikið til að fara aftur út og helst bara strax á morgun Herdís Gunnarsdóttir, tvítug Eyja- stelpa, hleypti heimdraganum í upphafi árs. Ferðinni var heitið heimshorna á milli en Herdís hafði skráð sig í ferð sjálfboðaliða sem áttu að aðstoða fátæka í Indlandi og Kenýa. Herdís hélt úti bloggsíðu meðan á ferðinni stóð en þar kom fram að hún fékk að upplifa ótrú- lega mikla og sára fátækt sem bitnar auðvitað mest á bömum þessara þjóða. Hún segir að ferðin hafi breytt sér mikið og helst vilji hún fara aftur út sem fyrst til að hjálpa til. Lengi langað út í heim „Mig hefur alltaf langað til að gera þetta og hafði verið að skoða vef- síður um sjálfboðaliðastörf. Svo hitti ég vinkonu mína úr fótbolt- anum með ÍBV, Eddu Maríu Birgis- dóttur, á Laugaveginum í Reykjavík og hún sagði mér að hún væri í sömu hugleiðingum. Hún sendi mér upplýsingar um þessa ferð og Múltí kúltí samtökin, en við vorum á þeirra vegum. Ég hafði bara örfáa daga til að ákveða mig og ákvað að lokum að slá til. Það hefur alltaf verið draumur minn að ferðast og sjá heiminn í nýju Ijósi.“ Hvað eru Múltí kúltí samtökin? „Múltí kúltí eru frekar ný samtök sem styðja við samvinnuverkefni sjálfboðaliða á íslandi og sjálf- boðaliða í Kenýa, Indlandi og öðr- um stöðum þar sem áhugi er fyrir slíku. Samtökin skipuleggja sjálf- boðaliðaferðir til Indlands og Kenýa og eru með undirsamtök sem heita Vinir Indlands og Vinir Kenýa. Þau safna peningum hér á landi fyrir mannúðarverkefni í þessum löndum. Við erum annar stóri hópurinn sem fer út á vegum samtakanna en við fórum í gegnum ítarlegt námskeið áður en við fórum út. Þar var farið í gegnum allt sem við gætum upplifað. Við vorum sex stelpur og þrír strákar sem fóru út og vorum í átta vikur, þrjár á Indlandi og fimm í Kenýa. Svo þurftum við auðvitað að fá ótal sprautur og tókum malaríutöflur allan tímann í Afrfku og í tvær vikur eftir að við komum heim.“ Sofið á gólfinu Ferðin hófst 11. janúar en fyrst var haldið til Indlands. „Við flugum til London, þaðan til Kuwait, þaðan til Bombay í Indlandi og þaðan til Chennai sem voru okkar höfuð- stöðvar.“ Hvernig var Indland? „Eftir á að hyggja var flest að mörgu leyti mun strangara á Indlandi en Kenýa. T.d. var klæðaburðurinn talsvert öðruvísi og strangari reglur. Við máttum ekki vera í stuttbuxum, það mátti ekki sjást í axlimar og bolur, sem hefði ekki verið talinn fleginn hér á íslandi, var allt of fleginn. Indverjar eru mjög trúaðir og kristin tákn víða. Einnig er mjög mikið um hindúatrú sem eru aðal- trúarbrögðin. Vegna hennar er mikil stéttaskipting í landinu. Ef fólk fæðist fátækt þá verður það alltaf fátækt, og eins ef það fæðist ríkt. Maður sá t.d. pör eða hjón aldrei leiðast eða kyssast á almannafæri, það var einfaldlega bannað. Fyrstu vikuna var hitinn í lagi en svo fór að hitna og raka- stigið hækkaði, þannig að þetta var orðið dálítið óþægilegt, sérstaklega út af rakanum. Svo er mikil mengun á Indlandi og í umferðinni er ein regla, hún er að það er engin regla í umferðinni. Við sváfum mest á gólfinu á þunnum bambus- mottum. Það var erfitt að venjast því fyrstu nætumar en svo kom maður sér upp tækni í þessu, sofa á þessu beini en ekki hinu, í þessari stellingu og þá fór ég að sofa eins og steinn. Svo var maður dálítið stressaður yfir skordýram sem hefðu getað skriðið eftir manni í svefni. Ég vaknaði aldrei við það og vil ekkert vita hvort þau hafi verið að skríða á mér. Ég var svo- lítið smeyk fyrir ferðina út af skor- dýrunum en þegar ég var komin út, þá var ég bara að leita að stóram kóngulóm í staðinn fyrir að forðast þær.“ Að færa börnum von Herdís segir að hópurinn, sem samanstóð af ungu fólki hefði haft það meginmarkmið að færa bömum von. „Ég fór á tvö munaðarleys- ingjaheimili og svo eitt venjulegt heimili úti á Indlandi. Við voram að kenna krökkunum ensku en aðalmarkmiðið hjá okkur gagnvart krökkunum var að gefa þeim von. Oft vora þetta böm sem höfðu misst foreldra sína eða áttu foreldra sem gátu ekki séð fyrir þeim. Sum vora jafnvel á götunni og höfðu upplifað ýmislegt misjafnt. í Kenýa er mikið um HIV smit og mörg bömin smituð. Okkar hlutverk var líka að benda þeim á mikilvægi menntunar og skemmta þeim í leiðinni. Kona á Indlandi hafði selt allt sitt til að halda úti munaðarleysingjahæli fyrir stelpur og núna er ég að reyna að fmna styrktaraðila fyrir þær. Þrátt fyrir þessa erfiðleika var mikil gleði hjá krökkunum. Þau voru alltaf brosandi, syngjandi og dans- andi. Þau reyndu að kenna okkur indverska dansa en með misjöfnum árangri." Hola í gólfinu „Salemisaðstaðan var líka mjög sérstök. Við gerðum þarfir okkar í holu í gólfinu. Reyndar var stund- um einhver skál á gólfinu en þú settist ekkert niður, annars var þetta bara hola. Það tók sinn tíma að venjast þessu og við reyndum flest að forðast það sem lengst að fara á klósettið. En svo vandist þetta og í lok ferðarinnar var maður frekar farinn að velja að kúka í holu en vatnssalemin, sem vora oft mjög skítug. Reyndar lentum við í því einu sinni að klósettið var við hlið- ina á fjósinu og maöur var þama við hliðina á beljunni og saman pissuðum við nánast í kross,“ sagði Herdís og hló. Skemmtilegra í Kenýa Dvölin í Indlandi stóð í þrjár vikur en að henni lokinni var haldið til Kenýa. Það leynir sér ekki að Her- dísi fannst skemmtilegra í Kenýa. „Það var öragglega af því að við fengum meira frelsi í Kenýa og hópurinn náði betur saman þar en í Indlandi. Við voram alltaf á sama staðnum um helgar, máttum klæða okkur nokkum veginn eins og við vildum og komumst í sund og sól- bað. Um helgar gátum við líka kíkt aðeins á dansmenninguna en á Indlandi vissum við aldrei hvað við áttum að gera. Það var meira hangs þar. í Afríku voram við að gera meira en á Indlandi og kannski þess vegna fannst mér skemmtilegra f Kenýa. Við kenndum í skólum, hjálpuðum til á heimilum t.d. með því að elda, sækja vatn í brann og bera það á hausnum. Við heim- sóttum munaðarleysingjahæli, fóram í skóla og héldum ræður, bjuggum til sápur og teppi, voram í garðyrkju, bjuggum til múrsteina, fræddumst um HIV og margt fleira. Við voram með okkar höfuðstöðv- HERDÍS með Jerry í fanginu. Jerry er tæplega þriggja ára en hann hafði nýlega misst föður sinn í bifhjólaslysi. Honum, móður hans og tveimur systkinum hans var boðið að búa á öðru heimili tii að sjá sér farborða. v

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.