Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 31. mars 2011 13 Kirkjugerði - Þar er starfandi sérkennslustjóri: Astæður fyrir þörf barna á sérstuðningi eru margar í leikskólanum Kirkjugerði er starf- andi sérkennslustjóri sem ber ábyrgð á og stjómar skipulagningu og framkvæmd þeirrar sérkennslu sem þar er veitt. Astæður fyrir þörf bama á sér- stuðningi em margar, má þar nefna frávik í framburði, slakan mál- þroska og ýmis önnur þroskafrá- vik. Tvítyngd böm og erlend böm þurfa líka oft sérstakan stuðning. Ef gmnur er um að bam þurfi stuðning eða sérkennslu, kemur beiðni um athugun, ýmist frá for- eldmm eða deildarstjóra bamsins. Bam fer aldrei í nánara mat á þroska eða í greiningu nema með samþykki foreldra. Ymis matstæki em notuð í leikskólanum til að skima og meta þroska bama. Einnig höfum við aðgang að ráð- gjafarþroskaþjálfa, talmeinafræð- ingi og sálfræðingi. Þegar vandi er greindur hjá ung- um bömum á leikskólaaldri og farið er að vinna með bamið í framhaldi af því, er talað um snemmtæka íhlutun. Miklu máli skiptir að byrja sem fyrst að vinna með bam sem glímir við þroska- frávik. Bömin em ýmist þjálfuð ein eða í hóp, það fer eftir því hvað verið er að þjálfa. Með snemmtækri íhlutun hefur áhersla verið lögð á að auka félags- fæmi barna með þroskafrávik og að koma í veg fyrir þróun hegðunar- erfiðleika. Félagsfæmi og hegðun hafa líklega enn meiri áhrif á það hvernig bömum, sem búa við fötlun af einhverju tagi, vegnar síðar á lífsleiðinni, en greind eða vitsmunaþroski. Félagsfærniþj álfun fer eðlilega fram í bamahópnum. Þar þarf að kenna bömum hegðun og samskipti í leik og starfi. I október ár hvert em lögð fyrir öll fimm ára böm skimunarpróf í leikjaformi (Hljóm-2). í prófinu er gerð athugun á hljóð- og málvitund leikskólabama. Ut frá niðurstöðum þessa prófs er hægt að spá fyrir um lestrarfæmi hjá bömum. Ef bömin hafa fæmi undir meðallagi eru þau þjálfuð sérstaklega og prófuð aftur í febrúar. Þetta er gott dæmi um snemmtæka íhlutun, þar sem vandinn er greindur snemma og reynt að koma í veg fyrir seinni tíma vandamál. Til em margvísleg kennslugögn sem nýtast vel í vinnu með leik- skólaböm. Ýmsir sérfræðingar hafa gefið út mjög góðar verk- efnabækur fyrir böm. Framburðarefni Bryndísar Guð- mundsdóttur, talmeinafræðings, hefur til dæmis reynst einstaklega vel. Þegar breytingar urðu á starf- semi Leikfangasafns Vestmanna- eyja fékk leikskólinn töluvert af kennslugögnum sem nýtast vel í sérkennslunni. Það liggur ljóst fyrir að snemm- tæk íhlutun getur veitt einstaklingi farsælli framtíð og um leið verið mikill spamaður fyrir þjóðfélagið. Segja má að valið standi um það hvort vandamálin og erfiðleikamir fái að vaxa og festa sig í sessi, eða hvort gripið sé inn í snemma á lífs- leiðinni og þróuninni beint til betri vegar. Hamingja og velferð bamsins er alltaf það sem skiptir mestu máli, þegar upp er staðið. Svava Hafsteinsdóttir, sérkennslustjóri. Fræðslu- og menningarráð: Bókasafnið 150 ára á næsta ári -og 80 ár frá stofnun Byggðarsafnsins Á síðasta fundi fræðslu- og menninganáðs lá fyrir erindi frá Kára Bjamasyni, forstöðu- manni Bókasafns Vestmanna- eyja. Leggur hann til að stofnaður verði starfshópur til að minnast þessara tímamóta hjá Bóka- og Byggðasafni Vestmannaeyja á næsta ári. Ráðið beinir því til stjómenda Bókasafns og Byggðasafns að hefja þegar í stað undirbúning að afmælisárinu og felur Kára Bjamasyni, forstöðumanni bókasafns, að leiða slíka vinnu fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar. Ráðið óskar eftir því að svo fljótt sem verða má liggi fyrir drög að því hvernig best verði að afmælinu staðið. Minning - Jóhanna Víglundsdóttir -Fædd: 17. 7. 1943, dáin: 18. 3. 2011 Elsku Lella frænka. Ég verð lengi að átta mig á því að þú sért ekki lengur hjá mér. Við áttum svo margar góðar stundir saman. Ég lærði svo mikið af þér, elsku Lella mfn, þú kenndir mér á klukku, fórst yfir alla mánuðina með mér og þannig lærði ég að þekkja afmælisdagana hjá svo mörgum í fjölskyldunni. Þú gast endalaust verið með mér að púsla, kubba og í boltaleik. Föstudagskvöldin vom okkar, ég gisti þá hjá þér og Gústa og horfð- um við þá saman á Útsvar og þið áttu alltaf til blátt nammi handa mér. Það var svo gaman þegar þú hringdir í mig eða ég í þig, stund- um oft á dag og mikið gátum við talað og hlegið saman. Lengi gátum við rökrætt um hlutina en oftast vann ég þó. Núna ertu sofandi hjá Jesú og líður vel. Elsku Lella frænka takk fyrir allar yndislegu stundimar sem við áttum saman. Ég mun aldrei gleyma þér. Ég fel íforsjá þína, Guðfaðir hana Lellu mína því nú er komin nótt. Um Ijósið lát mig dreyma og Ijúfir englar hana geyma svo ég sofi rótt. Þinn frœndi Daníel Smári. Höfnin, lífæð Vestmannaeyja Olafur Snorrason framkvæmda- stjóri umhverf- is- og fram- kvæmdasviðs Höfnin hefur verið lífæð Vest- mannaeyja frá upphafi byggðar og hafa menn alla tíð borið gæfu til að viðurkenna það að Vestmannaeyj- ar byggjast fyrst og fremst á sjáv- arútvegi. Vest- mannaeyjahöfn hefur í gegnum tíðina verið ein stærsta fiskihöfn landsins og er í dag fjórða stærsta höfn landsins með um 400 milljón króna tekjur. Rekstur hafna er aftur á móti mjög dýr og er algengt að hver metri af bryggjukanti kosti á bil- inu 1,5 til 2 milljónir. Fram til þessa hefur framlag Ríkissjóðs til uppbyggingar hafna numið 60% af stofnkostnaði en með nýjum hafnarlögum er þetta ákvæði fellt út. Hefur þeirri gildistöku reyndar verið frestað en umræða er um að taka þetta ákvæði inn aftur nú á næstu misserum. Flestar hafnir á íslandi hafa ekki tök á að ráðast í slíkar fram- kvæmdir án ríkisaðstoðar en fulltrúar Vestmannaeyjahafnar lögðu það til á Hafnasambands- þingi síðasta haust að framlag ríkisins væri ekki eingöngu bundið við nýframkvæmdir heldur líka stærri viðhalds- framkvæmdir á bryggjuköntum. Tilhneiging hefur verið að fara út í nýframkvæmdir á bryggjum í stað viðhaldsverkefna þar sem ríkisframlag hefur einungis komið í nýframkvæmdir. Vestmannaeyjahöfn hefur gengið í gegnum mikla endur- nýjun á síðustu árum og er svo komið að flestir bryggjukantar eru í vel nothæfu ástandi. Hefur þetta útheimt mikla fjármuni af hendi hafnarinnar en góður rekstur hennar undanfarin ár hefur létt verulega undir. Vest- mannaeyjahöfn skuldar nú um 210 milljónir króna og stendur í stórframkvæmd sem er endur- bygging upptökumannvirkja hafnarinnar. Sú framkvæmd kostar 370 milljónir en stór hluti þeirrar framkvæmdar er þegar gjald- færður í bókum hafnarinnar. Næsta skref í endumýjun hafn- arinnar er endurbygging Edin- Vestmannaeyja- höfn hefur í gegnum tíðina verið ein stærsta fískihöfn landsins og er í dag fjórða stærsta höfn landsins með um 400 milljón króna tekjur. borgarbryggju. Þar verður skipt um 60 metra kafla af stálþili og endurnýjuð 1200 fermetra þekja við FÉS að Nausthamars- bryggju. Er þetta verk á áætlun ársins 2011 en einnig er farið að huga að lagfæringum á Binnabryggju sem er orðin mjög illa farin. Binnabryggja er helsta útskip- unar -og uppskipunarsvæðið og á síðasta ári komu þar að 118 flutningaskip sem lágu þar sam- tals 131 dag. Samtals komu til Eyja í fyrra 197 skip sem lágu hér 263 daga sem jafngildir því að í höfninni hafi legið skip 75% af árinu. Gámainnflutningur nam rúmum 1000 TEU og útflutningur um 3000 TEU. Jafngildir það því að rúmar 11 gámaeiningar hafi verið fluttar inn eða út frá Vest- mannaeyjahöfn á hverjum degi á árinu 2010. Utan þessa er allur lausaflutningur svo sem mjöl, lýsi, olíur og þau frystiskip sem taka vöruna beint um borð. Hefur ekki verið minnst á fisk og fiskafurðir sem koma frá fiskiskipum en það er grund- vallarstarfsemi Vestmannaeyja- hafnar. Vestmannaeyjahöfn er stærsta fiskihöfn á Islandi og erum við stoltir af því. Markmið Vestmannaeyja- hafnar er að svo verði áfram og að búa flotanum bestu skilyrði sem möguleg eru á hverjum tíma á sem hagkvæmastan hátt. Það er sammerkt, að ef vel gengur í rekstri hafnarinnar, þá gengur vel í Vestmannaeyjum. Olafur Snorrason, fram- kvœmdastjóri umhverfis -og framkvœmdasviðs amsi<ip

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.