Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Síða 18
18
Fréttir / Fimmtudagur 31. mars 2011
Snorri Jóns á rólegu nótunum í Svölukoti
Það svifu notalegheit yfir viitnunum á Ijóðakvöldi Snorra Jóns í Svölukoti á dögunum. „Það var fámennt en
góðmennt,“ sagði Snorri sem var ánægður með hvernig tii tókst. „Ég hef fyrir löngu gert mér Ijóst að
Vestmannaeyingar eru ekki mikið fyrir Ijóð en það var gaman að sjá hvað mikið af ungu fólki mætti.“
Snorri, sem ort hefur lengi, er ekki vanur að standa í svona uppákomum og sagðist hann hafa verið stress-
aður þegar stundin nálgaðist. „Það er eðlilegt að vera stressaður svona í fyrsta skipti en svo var þetta bara
notalegt, spjallað á milli og boðið upp á kaffl. Mér var fyrir nokkrum árum boðið á ársþing hagyrðinga sem
haldið var á Hellu sem var mjög skemmtilegt. Þeim fannst svo merkilegt að finna hagyrðing í sjávarútvegi
því yfirleitt eru þetta bændur og kennarar sem eru að dunda við þetta,“ sagði Snorri að endingu en fyrir
nokkrum árum gaf hann út ljóðabókina Frumkvæði sem hann sagði ætlaða Eyjamönnum.
_ *
UNGFRUSUÐURLAND Alls taka níu stúlkur þátt í keppninni Ungfrú Suðurland 2011.
Vestmannaeyingar eiga fjóra fulltrúa í keppninni að þessu sinni. Sitjandi frá vinstri eru Guðný Osk
Ómarsdóttir og Brynhildur Helgadóttir og standandi frá vinstri Kristrún Ósk Hlynsdóttir og Fjóla Sif
Ríkharðsdóttir. Keppnin verður haldin á Hótel Selfossi föstudaginn 8. apríl. Mynd Sunnlenska.
GEIR JÓN, yfirlögregluþjónn er meðal þeirra sem birtast fólki á
sýningu Sigurdíar.
Sigurdís Harpa sýnir í Gallerí Fold
Sigurdís Harpa hefur sett upp sýningu í Gallerí Fold með myndum af 31
skeggjuðum karlmanni. Sýningin er sölusýning og mun þriðjungur af and-
virði verkanna renna til styrktar Mottumars, átaks Krabbameinsfélagsins.
Um er að ræða myndir unnar með blandaðri tækni sem eiga það sameigin-
legt að þær eru allar gerðar í mars árið 2011 og sýna skeggjaða einstak-
linga úr manniífi og sögusviði íslands í bland við þekkta erlenda karlmenn.
„Mig langaði að styrkja þetta þarfa átak svo ég ákvað að taka þátt á minn
máta og mála skeggjaða karlmenn og styrkja Krabbameinsfélagið um
þriðjung af andvirði verkanna en verði þeirra er stillt í hóf og kostar hvert
þeirra 30.000. Ég vil einnig koma þakklæti á framfæri við stuðning Gallerí
Foldar við söfnunina," sagði Sigurdís en sýningin stendur yfir til 4. apríl.
Sýningin er opin daglega frá 10-18, laugardag frá 11-16 og sunnudag frá
14-16. Verkin verða jafnframt birt á heimasíðu Sigurdísar www.sigurdis.is .
Einnig má benda Eyjamönnum, sem eru á faraldsfæti, á að nú stendur líka
yfir sýning á verkum Sigurdísar í Ostabúðinni við Skólavörðustíg.