Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 9
Fréttir / Fimmtudagur 29. desember 2011
9
NÍTJÁN nemendur útskrifuðust frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum við hátíðlcga athöfn í lok vorannar; fjórtán nýstúdentar, einn af starfsbraut og fjórir véistjórar með B-stig.
Athygli vakti að hvergi var and-
staðan meiri en í Suðurkjördæmi,
þar sem 73% kjósenda voru á móti.
Oddurinn hættir
Kristleifur Guðmundsson, sem
rekið hafði ritfangaverslunina
Oddinn við Faxastíg, tilkynnti að
hann hygðist hætta rekstrinum, þetta
hefði einfaldlega ekki gengið upp.
„Ég hætti með bros á vör, áður en
skuldimar verða óviðráðanlegar,"
sagði Kristleifur sem ekki var lengi
verkefnalaus þar sem hann var
fljótlega ráðinn sem verslunarstjóri í
Krónunni.
Aðeins þriðjungur mætti
Fermingar fóru fram í apríl en nú
settu samgöngur nokkurt strik í
reikninginn. Ekki hafði verið unnt
að sigla í Landeyjahöfn og gestkom-
andi settu það fyrir sig, margir
hveijir, að sigla frá Þorlákshöfn.
Við bættist að nú var ekkert flug á
Bakka, aðeins til Reykjavíkur. í
eina veisluna hafði verið boðið 170
manns en aðeins 58 mættu, flestir
búsettir í Eyjum, hinir boðuðu for-
föll vegna samgangna.
Nýtt nafn - ný verslun
Versluninni 11-11 í Goðahrauni var
breytt í Kjarval. Nýr eigandi er
Norvik, sem á auk Kjarvalsverslan-
anna Byko, Intersport, Nóatún og
fleiri verslanir.
Þjónustustjóri ráðinn
Ekki var nóg með að Eyjamenn
væru óánægðir með að ekkert hafði
verið siglt í Landeyjahöfn, heldur
vom líka ýmsir hnökrar á afgreiðslu
í sambandi við miðapantanir og
miðasölu. Eimskip réði því
sérstakan þjónustustjóra í afgreiðslu
Herjólfs í Vestmannaeyjum og var
Sara Pálsdóttir ráðin. Hún var þó
aðeins tímabundið í þessu starfi og
síðar á árinu var Gunnlaugur
Grettisson, skrifstofustjóri hjá sýsl-
umannsembættinu, ráðinn í starfið.
I starf Gunnlaugs hjá sýslumanni
var ráðin Lára Ósk Garðarsdóttir.
Björguðu félögum sínum
Talið var að hárrétt viðbrögð áhafn-
ar hefðu bjargað mannslífum þegar
þrír af skipverjum á Hugin VE urðu
fyrir eitmn í dælurými skipsins.
Félagar þeirra um borð brugðu
skjótt við, sýndu fumlaus og ömgg
viðbrögð í björgunarstörfum sem
má þakka að ekki fór verr. Tveir
þeirra sem fyrir eitmninni urðu
komust fljótt til meðvitundar aftur
en sá þriðji var fluttur með
sjúkraflugi til Reykjavíkur. Munu
þeir ekki hafa beðið heilsutjón
vegna þessa.
Lúðrasveitin bæiarlista-
maður
Sú hefð hefur skapast á sumar-
daginn fyrsta að þá er tilkynnt hver
hafi orðið fyrir valinu sem Bæjar-
listamaður Vestmannaeyja. Að
þessu sinni varð Lúðrasveit
Vestmannaeyja fyrir valinu og þótti
flestum það vel við hæfi, nú þegar
100 ár voru liðin frá fæðingu stofn-
anda hennar, Oddgeirs Kristjáns-
sonar.
Maí
Loks fært í Landeyjar
Loksins þann 4. maí var siglt í
Landeyjahöfn en hún hafði verið
lokuð frá 12. janúar, eða í 16 vikur.
Þó varð Herjólfur að sæta sjávar-
föllum þar sem dýpi var enn ekki
nægilegt á fjömnni.
í deilum við Stígamót
Páll Scheving lenti í nokkrum
deilum við forsvarskonur Stígamóta
vegna orða sem hann lét falla á
opnum borgarafundi, og fjölluðu um
þjóðhátíð og aðkomu eða aðkomu-
leysi Stígamóta að hátíðinni.
Stfgamótakonur tóku þessi ummæli
mjög óstinnt upp og varð af þessu
veruleg deila.
Enginn lundi?
Á sama borgarafundi var m.a.
tilkynnt hverjir myndu skemmta á
þjóðhátíð, sem og að Páli Óskari
Hjálmtýssyni hefði verið falið að
semja þjóðhatíðarlagið. Að sjálf-
sögðu skiptust menn í tvær fylk-
ingar gagnvart því enda Páll Óskar
ekki í uppáhaldi hjá öllum. Hið
sama varð uppi á teningnum þegar
lagið var kynnt skömmu fyrir
þjóðhátíð. I textanum var nefnilega
hvergi minnst á lundann, Herjólfs-
dal, fagrar meyjar eða góða veðrið í
Eyjum. Engu að síður voru flestir
að lokum nokkuð sáttir við lagið,
sem var svolítið öðruvísi en
þjóðhátíðarlög hafa verið fram til
þessa.
Endurbætur á Krónunni
Gagngerðar endurbætur stóðu yfir á
verslun Krónunnar í Vestmanna-
eyjum stóran hluta af aprílmánuði.
Þann 4. maí var svo verslunin opnuð
á ný, stærri og rúmbetri en áður.
Kveðjutónleikar Guðmundar
Kór Landakirkju fagnaði 100 ára
afmæli kórsins með tónleikum sem
fram fóru bæði í Landakirkju og
Safnaðarheimilinu. Einsöngvarar
voru þau Gissur Páll Gissurarson og
Sólveig Unnur Ragnarsdóttir. Þetta
voru kveðjutónleikar Guðmundar H.
Guðjónssonar en hann lét af störfum
vegna aldurs, bæði sem organisti og
kórstjóri Landakirkju og einnig sem
skólastjóri Tónlistarskólans.
20 útskrifuðust
Við skólaslit Framhaldsskólans í lok
maí útskrifuðust 14 nýstúdentar,
einn af starfsbraut, einn sem húsa-
smiður og fjórir vélstjórar með B-
stig.
Heimaey VE 1
Nýju skipi Isfélags Vestmannaeyja
var hleypt af stokkunum í Chile og
hlaut skipið nafnið Heimaey VE 1.
Búist er við að skipið verði afhent
fullbúið í mars á næsta ári.
Fjórar frá Vöruvali
Meðal þess náms sem boðið var upp
á í Visku eftir áramót var svonefnt
verslunarfagnám. Alls útskrifuðust
sjö nemendur, þar af fjórir starfs-
menn verslunarinnar Vöruvals og
var Ingimar, kaupmaður í Vöruvali,
hinn ánægðasti með stelpurnar
sínar, sagði þær góða starfsmenn og
væntanlega enn betri eftir þetta nám.
Fjölmenntu til Grimsby
Hópur Eyjamanna hélt í lok maí til
Grimsby í Englandi til að minnast
giftusamlegrar björgunar áhafnar-
innar á Glað VE, sem sökk í apríl
1954. Áhöfnin komst í gúmbjörg-
unarbát og síðan var þeim bjargað
um borð í enska togarann Hull City
frá Grimsby. I þessum hópi voru
fulltrúar sjómannafélaganna í
Eyjum, Björgunarfélagsins, sjó-
mannadagsráðs, Útvegsbænda-
félagsins og Landakirkju, sem og
ættingjar áhafnarinnar á Glað. Séra
Kristján Bjömsson söng messu í
Grimsby og heiðursskildir og
viðurkenningar vom afhentar.
Nýr eigandi
Eigendaskipti urðu á versluninni
66° Norður við Bámstíg. Rakel
Einarsdóttir keypti verslunina af
þeim Kolbrúnu Rúnarsdóttur og
Birgi Nielsen.
Björguðu fólki á Spáni
Þeir bræður Sindri, Daði og Einar
Gauti Ólafssynir komu að björgun
tveggja mannslífa við Torrevieja á
Spani þegar þeir vom þar í sumar-
fríi. Þeir, ásamt fleimm, björguðu
karli og konu úr sjónum en bæði
vom orðin mjög þrekuð.
Júní
Almenn óánægja
Sjómannadagurinn var hátíðlegur
haldinn á hefðbundinn hátt fyrstu
helgina í júní. Svo komu tvenn
frumvarpsdrög sjávarútvegsráðherra
um stjómun fiskveiða eins og köld
vatnsgusa framan í Eyjamenn.
Félagasamtök kepptust við að lýsa
vanþóknun sinni, Útvegsbændur,
Sjómannafélagið Jötunn, Verðandi,
Drífandi stéttarfélag og loks bæjar-
ráð Vestmannaeyja sem sendi frá sér
harðorða ályktun. Svo fór enda að
annað frumvarpið, sem mestur
styrrinn stóð um, var dregið til baka
í óbreyttri mynd eftir að fjölmargir
aðrir en Eyjamenn höfðu lýst yfir
vanþóknun sinni á því.
Gott framtak
Tónlistarmenn í Eyjum efndu til
minningartónleika sem nefndust Vor
við sæinn og þar var lögum
Oddgeirs Kristjánssonar gerð góð
skil. Þama komu fram flestir af tón-
listarmönnum Vestmannaeyja og
þóttu þessir tónleikar einstaklega vel
heppnaðir. Allur ágóði af þeim rann
til styrktar þeim Styrmi og
Hólmfríði sem áður var minnst á í
annálnum, en þau stóðu uppi með
ónýtt hús af völdum veggjatítlu.
Tvær góðar sýningar
Að vanda vom sýningar settar upp í
kringum sjómannadagshelgina.
Eyjakonan Sigurdís Harpa Arnars-
dóttir sýndi í Akóges og seldi rétt
um helming þeirra verka sem hún
sýndi þar. Þá vakti sýning
Ásmundar Guðmundssonar á tré-
skurðarmyndum í Einarsstofu í
Safnahúsinu, verðskuldaða athygli
en Ásmundur er lamaður á hægri
hluta líkamans og vinnur öll sín
verk með vinstri hendi.
Færri mál en í fyrra
Á fyrstu fimm mánuðum ársins
höfðu alls átta fíkniefnamál komið
til kasta lögreglunnar í Vestmanna-
eyjum. Á sama tíma árið áður voru
þau reyndar tíu talsins en þrátt fyrir
þessa fækkun þótti flestum sem
þessi mál væru of mörg.
Minnismerki um Lifró
Vinnslustöðin og Vestmannaeyjabær
ákváðu að koma upp minnismerki
um Lifrarsamlag Vestmannaeyja á
horni Flata og Strandvegar.
Upplýsingaskilti um samlagið var
sett upp og auk þess var gamli
gufuketillinn úr verksmiðjunni
settur á stall.
Makríltöm
Vinna í fiskvinnsluhúsunum ein-
kenndist af tömum þetta árið og í
raun má segja að meirihluti ársins
hafi verið ein samfelld töm. I júní
hófst enn ein slík þegar makríl-
vinnsla hófst. Unnið var á vöktum
allan sólarhringinn í þremur frysti-
húsum og gerði ekki betur en hafast
undan. Allir fengu vinnu sem vettl-
ingi gátu valdið og sumarið hrein
uppgrip fyrir fólk, ekki síst
skólafólk sem ekki kvartaði yfir
löngum vinnudegi. Að auki var
humarvinnsla á fullu sem að miklu
leyti var mönnuð enn yngra fólki.
Hvítasunnumenn á 17. júní
Dagskrá þjóðhátíðardagsins 17. júní
þótti óvenju fjölbreytt að þessu
sinni. í prýðisveðri kom fólk saman
á Stakkagerðistúni eftir skrúðgöngu,
hlýddi á lúðrablástur, söng og ávarp
Fjallkonu, horfði á íþróttir og tók
þátt í leikjum. Hvítasunnumenn
voru mjög sýnilegir í þessum
hátíðahöldum í söng og leikjum en á
árinu fagnaði söfnuðurinn í Eyjum
90 ára afmæli sínu.
írskir ferðalangar
Irska seglskútan Ar Seachrán (á
íslensku Ferðalangur) kom til Eyja í
júní. Tilgangurinn var að sigla í
Á SLÓÐUM PAPANNA. írska skútan Ar Seachrán kom við í Eyjum í þeim tilgangi að sigla í kjölfar
papanna. Á myndinni má sjá hluta áhafnarinnar ásamt sr. Kristjáni Björnssyni sóknarpresti.