Hrund - 01.05.1967, Blaðsíða 40
Frá rúmlega 500 stærstu listsöfnum,
einkasöfnum og kirkjum....
hið glæsilega heildarsafn myndlistarinnar
í 16 aldir
Allt frá tímum frummannsins, hellisbúans við Alti-
mira á Spáni, tíma forn-Grikkja og endurreisnar-
tímabils Evrópu til nútímamannsins í vistlegum
íbúðum tuttugustu aldarinnar — hefur maðurinn
leitazt við að auðga líf sitt með fegurð listaverka.
Það er hulin ráðgáta hvers vegna maðurinn skapar
listaverk — og þó hefur hann gert það og rrlun halda
því áfram. A öllum stigum tilveru sinnar, í öllum
hlutum heims og með öllum þjóðum skapar maður-
inn listaverk — ef til vill lausn hans á leit sinni að
fullkomnun í fegurð og formi.
The Book of Art er eitt vandaðasta og glæsilegasta
heildarsafn mvndlistarinnar — alþjóðleg útgáfa unnin
af prófessorum helztu háskóla heims—með hundruð-
um vandaðra eftirprentana af listaverkum allra tíma
— prentað í Mílanó á Italíu með fullkomnustu tækni
nútímans.
Hið vandaða listsafn heimilisins — safn þeirra, er
vilja njóta sköpunargáfu mannsandans, leit hans að
fullkomnun í fegurð og formi — hin dýrmæta menn-
ingareign heimilisins.
HANÐBÆKUR HF.
40