Fréttablaðið - 12.02.2013, Blaðsíða 40
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Benedikt sextándi segir af sér
2 Menntaskólanemar eiga í ástarsam-
bandi við kennara sína í töluverðum
mæli
3 Númerslausir bílar hrannast upp
4 Þarf að greiða 20 þúsund þökk sé
einu símtali
5 Morðingi Bulgers “enn hættulegur”
Pascal fær 4 stjörnur
Gagnrýnandi bandaríska tónlistar-
vefjarins Allmusic.com gefur nýjustu
plötu Pascal Pinon, Twosomeness,
fjórar stjörnur af fimm mögulegum.
„Þær hafa yfir að ráða hárréttri
blöndu af sakleysi og fagmennsku
til að platan nái að hljóma svona
vel,“ sagði gagnrýnandi þessarar
virtu síðu. Platan hafði áður fengið
átta í einkunn af tíu mögulegum hjá
Clashmusic.com. „Æðislegar raddir
tvíburasystranna Jófríðar og Ást-
hildar sveima yfir naumhyggjulegri
blöndu af þjóðlaga- og raftónlist.“ - fb
Fæddi barn eftir
hlátursköst hjá Ara
Grínistinn Ari Eldjárn hitaði upp
fyrir sænska uppistandarann Johan
Glans á nokkrum sýningum í Lundi
um helgina. Ari vakti að venju mikla
lukku. Þunguð kona, sem mætti á
eina af sýningum þeirra félaga, hló
svo mikið að Ara að
hún missti vatnið.
Konan fór á spítala
til að fæða barnið,
sem kom í heim-
inn nokkru seinna,
og missti eðli máls-
ins samkvæmt af
uppistandi Johans.
Málið vakti athygli
sænskra fjöl-
miðla, sem
fjölluðu um
uppistandið
og fæð-
inguna um
helgina.
- þeb
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
KOMIN Í
KILJU Á
ÍSLENSKU!