Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.02.2013, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 14.02.2013, Qupperneq 2
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Það þarf að gera mikið fyrir þessa grein hérna heima svo hún geti vaxið og dafnað líkt og í nágrannalöndum okkar. Ásta Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri verslunarinnar ATMO DÓMSMÁL Átján ára piltur, Dómald Dagur Dómaldsson, var í gær dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir hrottafengna og lífshættulega árás á fyrrverandi ástkonu föður síns. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða konunni rúmar þrjár millj- ónir króna í bætur. Konan bjó í sama húsi og pilturinn og faðir hans en í annarri íbúð. Pilturinn ruddist inn í íbúð- ina til hennar aðfaranótt 21. apríl í fyrra, vopnaður stórum hnífi. Hann stakk konuna marg sinnis í líkamann, þannig að hnífurinn gekk meðal annars í gegnum þind, kviðarhol og maga. „Ég ætla að drepa þig fyrst og nauðga þér svo,“ sagði hann síðan, áður en hann tók hann hana kyrkingartaki aftan frá. Konan bjargaði sér með snarræði, tók hnífinn af piltinum og flúði undan honum, en hann elti hana með snjóskóflu í hönd þangað til faðir hans yfirbugaði hann. Skurðaðgerð þurfti til að konan biði ekki bana af atlögunni. Pilturinn kvaðst ekki hafa ætlað að drepa konuna, en dómur- inn kemst engu að síður að þeirri niður stöðu að honum hafi mátt vera ljóst að langlíklegast væri að árásin, sem sögð er hrottaleg og tilefnislaus, myndi draga konuna til dauða. Hann er því dæmdur fyrir tilraun til manndráps. - sh Átján ára piltur stakk fyrrverandi ástkonu föður síns margsinnis með hníf og reyndi að kyrkja hana: Fimm ár fyrir hrottafengið morðtilræði Árásin hefur haft miklar afleiðingar fyrir konuna, að hennar eigin sögn. „Líf hennar, eins og hún þekkti það, hafi endað þetta kvöld. Hún hafi misst heila fjölskyldu og mikilvægustu manneskjuna í lífi sínu, sem hafi verið faðir ákærða. Hún hafi misst allt traust á mannkynið og persónuleiki hennar sé gjörbreyttur. Hún þekki sjálfa sig ekki lengur og þurfi að taka kvíðastillandi lyf og svefnlyf,“ segir í dómnum. Ástand hennar hafi versnað undanfarið og nú sofi hún lítið sem ekkert. Svefnvana og trúir ekki á mannkynið ALÞINGI Rannsóknarnefnd Alþingis um starfsemi Íbúðalánasjóðs mun ekki skila skýrslu sinni nú um miðjan febrúar eins og stefnt var að. Þetta staðfestir formaður nefndarinnar, Sigurður Hallur Stefánsson, við Fréttablaðið. Rannsóknarnefndin fundaði með forsætisnefnd þingsins í byrjun desember og þar kom fram að stefnt væri að skilum um miðjan febrúar. „Skýrslan er ekki hér til afhendingar,“ segir Sigurður núna. Það verði hún ekki heldur á næstu dögum. Hann segist ekki geta fullyrt hvenær vinnunni ljúki og vilji ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Rannsóknarnefndin um Íbúðalánasjóð og önnur um sparisjóðakerfið voru skipaðar haustið 2011, sú fyrr- nefnda í byrjun september og sú síðarnefnda í ágúst- lok. Íbúðalánasjóðsnefndin átti upphaflega að skila skýrslu sinni til Alþingis sex mánuðum eftir skipun, eða í byrjun mars í fyrra, og sparisjóðanefndin átti að skila af sér 1. júní í fyrra. Það hefur síðan frestast ítrekað. Hjá Hrannari Má S. Hafberg, formanni sparisjóða- nefndarinnar, var fátt um svör í gær þegar spurt var um gang vinnunnar. Hann kveðst vilja upplýsa þingið um stöðuna fyrst. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingforseti segir nefndirnar munu gera forsætisnefnd grein fyrir stöðu rannsóknanna á fundi á mánudaginn kemur. - sh Rannsóknarnefndir um Íbúðalánasjóð og sparisjóðina eru enn að störfum: Skýrsluskilin frestast enn lengur HEILBRIGÐISMÁL Fimm samkyn- hneigðir karlmenn greindust með HIV-veiruna í fyrra. Þetta er sami fjöldi og árið 2010 en árið 2011 greindist einungis einn, samkvæmt nýjustu tölum frá Landlæknisembættinu. Hommum, sem hafa greinst síðustu ár, hefur fækkað og er það talið aukinni notkun smokka að þakka. Árið 1997 greindust fimm karlar með veiruna en á árunum til 2010 rokkaði fjöldinn frá einum og upp í þrjá. Lesbíur sem greinast með HIV eru í raun flokkaðar sem gagn- kynhneigðar í tölfræði land- læknis, en smitleiðir með kyn- mökum eru ekki taldar ástæðan hjá þeim eins og hjá samkyn- hneigðum karlmönnum. - sv Fimm greindust í fyrra: Fleiri HIV-smit hjá hommum NÁTTÚRA Ríkið hefur keypt jörðina Teigarhorn í Djúpa- vogshreppi fyrir um fimmtíu milljónir króna, en jörðin hefur verið til sölu um árabil. Á jörðinni eru ómetan legar náttúru- og menningar minjar sem sumar hafa alþjóðlegt verndar gildi og er því brýnt að varðveita, segir í svari um- hverfis- og auðlindaráðuneytisins til Austurfréttar. Á Teigarhorni er einn þekkt- asti fundarstaður geislasteina í heiminum og hluti jarðarinnar er friðlýstur vegna þessa. Jörðin hefur gegnt mikilvægu hlutverki í skráningu veðurfars og þar hafa verið stundaðar athuganir síðan 1881. Verið er að móta hug- myndir um framtíðarskipulag jarðarinnar. - þeb 50 milljónir fyrir jörðina: Ríkið keypti Teigarhorn KJARAMÁL Nýr stofnanasamningur á Landspítalanum færir hjúkrunar- fræðingum á bilinu fimm til 9,6 prósenta launahækkun, en samningur- inn var undirritaður á þriðjudag og kynntur á tveimur fundum í gær. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga, segir að undirtektirnar á fundunum í gær gefi tilefni til að halda að flestir séu sæmilega sáttir við það sem liggur á borðinu. „Mér fannst sæmilega gott hljóð í fólki.“ Elsa segir að í samningnum sé einnig að finna ákvæði um næstu skref í jafnlaunaátakinu og endurmat á röðun í starfaflokka. Sú vinna haldi áfram næstu mánuði. Hjúkrunarfræðingar hafa tíma til kvölds til að draga uppsagnir sínar til baka, en nokkrir höfðu þegar gert það í gær, að sögn Elsu. „Við vitum á föstudaginn [á morgun] hvernig staðan er í raun.“ - shá Hjúkrunarfræðingar hafa daginn til að ákveða sig: Telur fólk nokkuð sátt við tilboð FUNDAÐ Björn Zoëga, forstjóri LSH, mætti ásamt sínu fólki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM RANNSÓKNARNEFNDIR Alþingi skipaði nefndir um íbúða- lánasjóð og sparisjóðakerfið haustið 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SPURNING DAGSINS VIÐSKIPTI „Ef það eru ekki til vörur til að selja neyðist maður til að draga saman seglin,“ segir Ásta Kristjáns- dóttir, framkvæmdastjóri verslun- arinnar ATMO við Laugaveg, en efri hæð verslunarinnar stendur nú tóm, vegna of mikillar sölu að hennar sögn. „Það gengur ekki að láta stóra hæð í 3.000 fermetra húsi standa hálf tóma,“ segir Ásta. „Þess vegna erum við búin að færa allt tímabundið niður af efri hæðinni.“ Ásta segir forsvarsmenn ATMO ekki hafa gert ráð fyrir svo mikilli sölu strax í upphafi, en búðin hefur verið starfrækt í tæpa þrjá mánuði. „Fólk er greinilega mjög ánægt með íslenska hönnun og salan er búin að ganga mjög vel, en þetta hangir allt saman. Þetta er hringrás, hönnuður þarf að koma frá sér vöru, framleiða hana og svo skila henni til okkar. Ef eitthvað stoppar í þessari hringrás þá erum við alveg stopp, því við reiðum okkur eingöngu á íslenska hönnuði og íslenskar vörur,“ segir Ásta. Vandamálið að hennar mati er að íslenskir hönnuðir eigi oft í mjög miklum vandræðum með fram- leiðslu. Hún kallar þess vegna eftir meiri stuðningi frá hinu opinbera og telur einkennilegt að hönnuðir þurfi að borga fullan virðisaukaskatt þegar aðrar skapandi greinar borga minna. „Það er mjög erfitt að koma á fót nýjum vörumerkjum í núverandi umhverfi. Ef ríkið myndi styðja okkur betur gætum við verið sam- keppnishæfari við erlendar vörur, en allir þessir skattar og innflutnings- gjöld gera okkur erfitt fyrir,“ segir Ásta. Reksturinn á ATMO mun halda áfram í smækkaðri mynd. Starfsfólki hefur fækkað nokkuð en kjarninn af upprunalega starfsfólkinu er enn til staðar. Ásta segist heilt yfir mjög ánægð með verkefnið, enda hafi yfir 30.000 manns lagt leið sína í verslunina. „Við stefnum á að færa okkur aftur upp á efri hæðina, en þá myndi stuðn- ingur frá hinu opinbera hjálpa mikið. Það þarf að gera mikið fyrir þessa grein hérna heima svo hún geti vaxið og dafnað líkt og í nágrannalöndum okkar,“ segir Ásta. Þá segist hún horfa björtum augum til framtíðar og sér fram á að fá inn nýjar vörur í mars eða apríl. - jhg Segist loka heilli hæð vegna of mikillar sölu Framkvæmdastjóri ATMO við Laugaveg segist glíma við vöruskort þar sem sala hafi gengið mjög vel. Hún kallar eftir meiri stuðningi frá hinu opinbera og segir einkennilegt að fatahönnun sitji ekki við sama borð og aðrar skapandi greinar. MIKIL SALA Verslunin Atmo hefur verið starfrækt í tæpa þrjá mánuði og hefur salan farið gríðarlega vel af stað. ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR Jón Halldór, eigið þið erfitt með að kyngja þessu? „Nei, við tökum þetta bara með munnskolinu.“ Borgarstarfsmenn vinna að því hörðum höndum þessa dagana að hreinsa tyggjó af götum með háþrýstidælum. Jón Halldór Jónasson er upplýsingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.