Fréttablaðið - 14.02.2013, Side 4

Fréttablaðið - 14.02.2013, Side 4
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 4 milljarða króna bankaábyrgð var veitt af Íslandsbanka vegna kaupa á Formúlu 1-liðinu Williams. LÖGREGLUMÁL Slitastjórn Glitnis kærði í janúar veitingu fjögurra milljarða króna bankaábyrgðar vegna kaupa á Williams Formúlu 1-liðinu sumarið 2008 til sérstaks saksóknara vegna rökstudds gruns um umboðssvik. Engir einstaklingar eru sérstak- lega kærðir heldur er þess óskað að embættið rannsaki málið í heild. Málið snýst um að Jón Ásgeir Jóhannes- son, þá forstjóri Baugs og einn aðaleigenda Glitnis, gerði samkomulag um að bresk félög í eigu Baugs gerðust styrktaraðilar Williams- liðsins í desember 2007. Í janúar 2008 gerði hann síðan samning, í nafni dótturfélags Baugs að nafni Sports Investments, um að kaupa stóran hlut í Williams-liðinu. Jón Ásgeir gekk í persónulegar ábyrgðir fyrir þessum kaupum. Þegar líða tók á árið 2008 kom í ljós að bæði kaup- og styrktarsamning- arnir voru vanefndir. Var þá ráðist í að gera breytingarsamninga vegna beggja samning- anna og hluturinn sem átti að kaupa í Willi- ams þar festur sem tíu prósent. Í ágúst 2008 kynnti Lárus Welding, þá for- stjóri Glitnis, fyrir áhættunefnd bankans að Sports Investments væri að leita að 20 milljóna punda, fjögurra milljarða króna, bankaábyrgð til að kaupa hlut í og gera styrktarsamninga við Williams-liðið. Sports Investments var á þessum tíma eignalaust félag. Kynningin fyrir áhættunefndinni var þó til málamynda þar sem Lárus Welding og Magn- ús Arnar Arngrímsson, þá framkvæmda- stjóri fyrirtækjasviðs Glitnis sem sat einnig í áhættunefnd bankans, höfðu samþykkt veit- ingu ábyrgðarinnar daginn áður en hún fór fram. Með þessum gerningi var ábyrgð á upphæðinni velt yfir á Glitni. Síðar kom í ljós að aldrei var skrifað undir breytingarsamn- inga vegna kaupa á hlut í Williams-liðinu og voru þau á endanum látin ganga til baka. Eftir hrun Glitnis gerði Williams-liðið hins vegar 10,75 milljón punda, rúmlega tveggja milljarða króna, kröfu í bú bankans vegna vanefnda á styrktarsamningnum. Þeirri kröfu var hafnað sem varð til þess að Willi- ams-liðið stefndi Glitni fyrir dóm. Málið verður tekið fyrir á morgun. thordur@frettabladid.is Kaup á formúluliði til sérstaks saksóknara Slitastjórn Glitnis telur að bankaábyrgð upp á fjóra milljarða sem veitt var vegna kaupa á Formúlu 1-liðinu Williams 2008 sé umboðssvik. Málinu var vísað til sér- staks saksóknara í janúar. Williams gerði kröfu í bú Glitnis vegna ábyrgðarinnar. Samhliða ábyrgðarbeiðninni sem lögð var fyrir áhættunefnd Glitnis var lagt fram minnisblað frá Bjarna Jóhannessyni, við- skiptastjóra Baugs hjá bankanum, þar sem hann lýsir mála- vöxtum. Í minnisblaðinu segir meðal annars að unnið sé að sölu á Williams-liðinu í heild og að óskuldbindandi tilboð hafi borist upp á 250 milljónir punda, um 50 milljarða króna, frá aðilum frá Dubai. Ekki voru nánari upplýsingar um hverjir það voru í minnisblaðinu. Samkvæmt þessu tilboði átti tíu prósenta eignar- hluturinn í Williams-liðinu að vera 25 milljóna punda, um fimm milljarða króna, virði, eða mun meira en ábyrgðin sem veitt var. Aðilarnir frá Dubai keyptu aldrei hlutinn. Tilboð frá Dubai lagt til grundvallar Landsnet reynir við heimsmetið 1 VESTMANNAEYJAR Skrifað hefur verið undir samning um lagningu nýs sæ-strengs úr Landeyjahöfn til Vestmannaeyja. Landsnet segir heimsmet verða sleg- ið náist að leggja nýjan streng næsta sumar. Komið hafi fram í viðræðum Landsnets, verktakans og svissneska strengjaframleiðandans ABB að aldrei hafi þá skemmri tími liðið frá upphafi undirbúnings til loka framkvæmda. „Með undirritun samnings við ABB, hefur Landsnet tryggt sér pláss í framleiðslulínu ABB á vormánuðum 2013 og líkur á því að heimsmet verði slegið stórauknar,“ segir á vef Landsnets. Árborg bannar munntóbakslíki 2 ÁRBORG Notkun á sænska munn-tóbaks líkinu Kickup hefur verið bönnuð í grunnskólum, félagsmiðstöðvum og íþróttahúsum sveitarfélagsins Árborgar. Í kynningu á málinu til foreldra kemur fram að vörunni svipi til hefðbundins munntóbaks og telja starfsmenn sveitar- félagsins að notkun hennar kunni að ýta undir tóbaksnotkun síðar meir. Þá sé dæmi um að nemandi hafi blandað venjulegu tóbaki við vöruna. Sömuleiðis er sagt erfitt fyrir starfsfólk sem vinnur með börnum að greina hvort um tóbak sé að ræða eða ekki. 60 fermetrum bætt á áætlun 3 ÍSAFJÖRÐUR Nýtt hjúkrunarheimili á Ísafirði verður um 60 fermetrum stærra en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. Byggja á tengibyggingu við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og stækka sal í miðrými. Frá þessu segir á vef Bæjarins besta. Þar segir að heildarstærð nýbyggingarinnar verði alls 2.310 fermetrar, en velferðarráðuneytið mun þó einungis leigja þá 2.250 fermetra sem það samþykkti. Mun ráðuneytið, að sögn Bæjarins besta, greiða tæpar sex milljónir á mánuði fyrir aðstöðuna. Byggingarkostnaður er áætlaður fimmtán til átján milljónir og munu þar verða þrjátíu rými. 233,376 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,45 128,05 198,62 199,58 171,83 172,79 23,025 23,159 23,297 23,435 20,243 20,361 1,3628 1,3708 195,26 196,42 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 13.02.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is „ROKK” OG RIGNING VIÐ ÞEKKJUM TILFINNINGUNA Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Vaxandi austanátt. NORÐLÆGAR áttir ríkjandi næstu daga en á laugardag lítur út fyrir austanátt og þykknar upp við suðurströndina. Yfirleitt bjart og fallegt veður um sunnan og vestanvert landið. 1° 10 m/s 1° 8 m/s 2° 4 m/s 5° 0 m/s Á morgun 3-8 m/s. Gildistími korta er um hádegi 2° 0° 3° 0° 0° Alicante Basel Berlín 17° 3° 2° Billund Frankfurt Friedrichshafen 1° 1° 1° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 1° 1° 21° London Mallorca New York 10° 18° 6° Orlando Ósló París 23° -2° 8° San Francisco Stokkhólmur 18° 1° 3° 3 m/s 4° 8 m/s 2° 7 m/s 2° 7 m/s 0° 6 m/s 2° 7 m/s -3° 6 m/s 0° 0° 0° 0° -1° BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkja- forseti boðar aðgerðir í mörgum umdeildum málum, svo sem innflytjendamálum, skatta- málum, skotvopnamálum og loftslagsmálum. Þar bauð hann andstæðingum sínum í Repú- blikanaflokknum byrginn, en bauð jafnframt upp á möguleika til samvinnu. Mesta áherslu lagði hann þó á efnahags- málin, aukinn hagvöxt og minni fjárlaga- halla, án þess þó að það bitnaði á þeim sem höllum fæti standa. „Við getum ekki beðið eldri borgara og verkafólk að taka á sig alla byrðina sem fylgir því að draga úr fjárlagahalla en krefjast jafnframt einskis af hinum auðugustu og valdamestu,“ sagði Obama í stefnuræðu sinni, sem hann flutti seint á þriðjudagskvöld. Þetta er fyrsta stefnuræða hans á seinna kjörtímabilinu. Öfugt við það sem algengt er að forsetar Bandaríkjanna geri í fyrstu stefnuræðu seinna kjörtímabils síns hafði Obama sára- lítið að segja um utanríkismál að þessu sinni. Hann kynnti þó áform um að kalla ríflega helming bandaríska herliðsins í Afganistan heim innan árs. Hamid Karzai, forseti Afganistans, fagnaði þessu í gær. - gb Bandaríkjaforseti lagði áherslu á efnahagsmál í fyrstu stefnuræðu seinna kjörtímabils: Obama býður repúblikönum samvinnu BARACK OBAMA Hafði fátt að segja um utanríkismál í stefnuræðu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LANDIÐ 1 3 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.