Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.02.2013, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 14.02.2013, Qupperneq 6
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Úrvalið er í Útilíf Láttu hart mæta hörðu Nú eru hjálmadagar í Útilíf, 20% afsláttur af öllum skíða- og brettahjálmum. Á R N A S Y N IR Aðalfundi Hestamanna- félagsins Kjóavöllum frestað Aðalfundi Hestamannafélagsins Kjóavöllum sem átti að vera kl 20:00 fimmtudaginn 14. febrúar 2013 er hér með frestað til kl 20:00 þriðjudaginn 19. febrúar 2013. Staðsetning og dagskrá er óbreytt frá því sem áður var auglýst. Stjórn Hestamannafélagsins Kjóavöllum. BANDARÍKIN, AP Christopher Dorner brann inni í fjallabústað eftir skot- bardaga við lögreglu, tíu dögum eftir að hann framdi fyrstu morðin. Lögreglan hafði leitað hans á þessum slóðum síðan á fimmtudag, þegar bifreið hans fannst brunnin og yfirgefin á bílastæði í San Bern- ardino-fjöllunum, skammt utan við Los Angeles. Á mánudag komst lögreglan svo á sporið þegar Dorner stal bifreið. Eftir eltingarleik og árekstur þar sem skipst var á skotum komst Dorner undan á hlaupum. Nokkru síðar umkringdi lög- regla fjallabústað, þar sem hann hafði komið sér fyrir. Enn kom til skotbardaga, sem kostaði einn lög- reglumann lífið en annar særðist illa. Á endanum kviknaði í bú- staðnum, sem var orðinn mettaður af táragasi. Þegar eldurinn var að mestu kulnaður fannst í bústaðnum brunnið lík. Í fjölmiðlum vestan hafs og austan hefur vaknað grunur um að lög reglan hafi vísvitandi kveikt í bústaðnum með því að nota mikið af táragasi, sem vitað er að kviknað getur í. Birtar hafa verið orðréttar tilvitnanir í samtöl lögreglumanna, þar sem talað er um að „brenna kvikindið“. Í margra blaðsíðna yfirlýsingu, sem Dorner hafði birt á Facebook- síðu sinni, sagðist hann búast við því að deyja í lokaátökum við lög- regluna. Hann lýsti þar yfir stríði gegn lögreglunni í Los Angeles og hótaði að drepa fjölda fólks til að vekja athygli á málstað sínum. Hann var ósáttur við að hafa verið vikið úr starfi árið 2009, stuttu eftir að hann sakaði starfsfélaga sinn um að hafa beitt ofbeldi við handtöku. Í yfirlýsingunni sakar hann lög- regluna í Los Angeles um kynþátta- fordóma og fullyrti að ekkert hefði breyst síðan hópur lögreglumanna misþyrmdi blökkumanninum Rod- ney King árið 1991, en sjálfur var Dorner dökkur á hörund. Alls hefur tíu daga hefndarher- ferð Dorners kostað fjögur líf, auk þess sem nokkrir hafa særst illa. Hann náði því fram að lög reglan í Los Angeles ákvað að hefja nýja rannsókn á tildrögum þess að honum var sagt upp á sínum tíma. Óvíst er þó hvað kemur út úr þeirri rannsókn. gudsteinn@frettabladid.is Brann í bústað eftir harðan skotbardaga Tíu daga leit lögreglumanna í Los Angeles að Christopher Dorner, fyrrverandi starfsfélaga þeirra, lauk við fjallabústað í San Bernardino-fjöllunum. Grunur hefur vaknað um að lögreglan hafi vísvitandi reynt að brenna Dorner inni. LÖGREGLAN Í LOS ANGELES Yfirmenn á leið til blaðamannafundar. NORDICPHOTOS/AFP Í margra blaðsíðna yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni rekur Christopher Dorner ástæður þess að hann sagði lögreglunni í Los Angeles stríð á hendur. Hann segir að sér hafi verið ranglega sagt upp eftir að hann sakaði félaga sinn um ofbeldi við handtöku. Hann segir uppsögnina stafa af kynþáttahatri félaga sinna í lögreglunni. Hann hótar fyrrverandi félögum sínum og fjölskyldum þeirra og boðar mikið blóðbað til að vekja athygli á þessu ranglæti. Einnig lýsir hann í löngu máli skoðunum sínum og afstöðu til ýmissa dægurmála, gefur leikurum og tónlistarfólki einkunnir og ávarpar ýmsa ættingja sína og vini. Þá lýsir hann þunglyndi, sem hann hefur átt við að stríða frá því honum var sagt upp. „Ef mögulegt er, þá vil ég að heili minn verði varðveittur í vísinda- og rannsóknarskyni, til að rannsaka áhrif alvarlegs þunglyndis á heila ein- staklings,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. „Það er hálf dapurlegt að ég verð ekki á lífi til að horfa á og njóta Hangover III. Aldeilis frábær þrí- leikur það,“ segir einnig. Yfirlýsing Dorners á netinu | 3. febrúar | 4. febrúar | 6. febrúar | 7. febrúar | 8. febrúar | 9. febrúar | 10. febrúar | 11. febrúar | 12. febrúar ATBURÐARÁSIN SUNNUDAGUR Aðstoðarþjálfari í körfu- bolta kvenna og kærasti hennar finnast myrt í bifreið sinni í bænum Irvine í Kaliforníu. Konan var dóttir yfirmanns í lögreglunni í Los Angeles. FIMMTUDAGUR Lögreglumenn í Los Angeles elta bifreið Dorners. Til skotbardaga kemur, byssumaðurinn flýr en stuttu síðar ræðst hann á tvo lögreglumenn, annar deyr en hinn er lífshættulega særður. Síðar finnst bifreið Dorners, brunnin og yfirgefin, í San Bernardino- fjöllunum. Í bifreiðinni fundust vopn og útilegubúnaður. ÞRIÐJUDAGUR Dorner skiptist á skotum við lögreglu sem nokkru síðar umkringir fjallabústað. Þar kemur enn til skotbardaga. Einn lögreglumaður lét lífið og annar særðist. Bústaðurinn brennur. FÖSTUDAGUR Tugir manna leita að Dorner í vetrarkulda í San Bernar- dino-fjöllunum. Einnig er gerð leit í húsi móður Dorners í La Palma og í geymslugámi í Buena Park. SUNNUDAGUR Lögreglan setur milljón dali til höfuðs Dorner. MÁNUDAGUR Dor- ner stelur bifreið í San Bernardino-fjöllunum. Eftir skotbardaga og árekstur kemst hann undan á hlaupum. VEISTU SVARIÐ? 1. Hverju leitar nú Matvælastofnunin að í íslensku nautahakki? 2. Hvað gera starfsmenn Véladeildar Reykjavíkurborgar meðan ekki snjóar? 3. Hvað vill Straumur fjárfestingabanki borga mikið fyrir Orkuveituhúsið? SVÖRIN 1. Hrossakjöti. 2. Hreinsa tyggjóklessur af götum. 3. Fimm komma einn milljarð króna. STJÓRNMÁL „Að ýmsu leyti hefur fyrirliggjandi sölusamningur yfir- bragð lánssamnings til 10-20 ára og í því ljósi má segja að Orku- veitan sé í raun að taka dýrt lán,“ bókuðu sjálfstæðismenn í borgar- stjórn þegar þar var samþykkt sala Orkuveitunnar á byggingum á Bæjarhálsi og Réttarhálsi. Orkuveitan selur Straumi fast- eignirnar fyrir 5,1 milljarð króna og skuldbindur sig um leið til að taka þær á leigu. „Það má ef til vill líta svo á að sá gerningur að „selja“ húsið og leigja það aftur sé neyðarúrræði þar sem eignasölu- hluti aðgerðaáætlunar OR hefur ekki gengið eftir,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks. „Líti menn svo á að um lánasamning sé að ræða, er um afar dýrt lán að ræða á mun verri kjörum en bæði OR og Reykja- víkur borg njóta.“ Í bókun sinni sögðust sjálf- stæðis menn hlynntir því að hús- næðið yrði selt en vilja að starf- semin flytji í ódýrara húsnæði. - gar Sjálfstæðismenn gagnrýna viðskipti í kringum höfuðstöðvar Orkuveitunnar: Telja söluna vera dýra lántöku HÖFUÐSTÖÐVAR OR Kostuðu 9,8 milljarða króna en seldar á 5,1 milljarð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DANMÖRK Lögreglan í Kaupmanna- höfn fylgist nú náið með ný stofn- uðum glæpasamtökum sem hafa látið til sín taka að undanförnu. Meðal annars tengjast þau hnífa- árás í upphafi viku. Fram kemur á vef BT að með- limir kalla klíkuna „Loyal to familia“, eða LTF, en hún telur nú á sjötta tug manna. Lögregla forðast að ræða mikið um klíkuna, þar sem hún vill ekki ljá henni vægi eða opinbera hve mikið lög- reglan veit um starfsemina. - þj Lögreglan í Danmörku: Óttast uppgang glæpagengis
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.