Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 8
Framtakssjóður Íslands (FSÍ),
stórir lífeyrissjóðir og aðilar
tengdir MP banka hafa undan-
farnar vikur átt í viðræðum við
slitastjórn Glitnis um kaup á 95
prósenta hlut hennar í Íslands-
banka. Viðræðurnar eru á byrj-
unarstigi þótt þær hafi átt sér
langan aðdraganda. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins vonast
bjóðendurnir til að fá bankann
töluvert undir innra virði hlutar
Glitnis, sem er um 133 milljarðar
króna. Þær verðhugmyndir sem
nefndar voru við Frétta blaðið
voru að greiða á bilinu 0,55-
0,70 krónur fyrir hverja krónu.
Það myndi þýða að kaupverðið
sem bjóðendurnir eru tilbúnir
að borga fyrir 95 prósenta hlut
Glitnis er á bilinu 73 til 93 millj-
arðar króna. Þeir hafa líka áhuga
á að kanna kaup á 87 prósenta
hlut þrotabús Kaupþings í Arion
banka.
Á byrjunarstigi
DV greindi frá því í gærmorgun
að þreifingar ættu sér stað um
sölu Íslandsbanka. Þar var sagt
að þær væru á milli MP banka
og slitastjórnar Glitnis. FSÍ stað-
festi hins vegar í gær að sjóðurinn
kæmi að slíkum þreifingum, en að
málið væri skammt á veg komið.
Þá fékk Fréttablaðið einnig
staðfest að stórir lífeyrissjóðir
stæðu einnig að baki mögulegum
kaupum. Er þar um að ræða sömu
sjóði og eiga FSÍ að mestu.
Steinunn Guðbjartsdóttir, for-
maður slitastjórnar Glitnis, segir
málið á byrjunarstigi. „Það er
áhugi á bankanum. Hann hefur
ekki verið í virku söluferli en
Glitnir er í slitameðferð og hluti
af því ferli er að selja þær eignir
sem Glitnir á. Það hefur því legið
lengi fyrir að Íslandsbanki er til
sölu.“ Spurð um hvort þrotabú
Glitnis vonist til að sala Íslands-
banka liðki fyrir því að Seðla-
banki Íslands samþykki undan-
þágu frá gjaldeyrishöftum fyrir
nauðasamninga Glitnis segist
Steinunn ekki hafa neina skoðun
á því. „Það sem er mikilvægast
er að það komi traustir framtíðar-
eigendur að Íslandsbanka.“
Forsvarsmenn MP Banka
vildu ekkert tjá sig um málið
þegar leitað var upplýsinga um
við ræðurnar í gær. Samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins er
bankinn þó viðriðinn þær sem ráð-
gjafi. Auk þess er vilji innan eig-
endahóps MP banka að koma að
kaupunum ef af þeim verður. Skúli
Mogensen, stærsti eigandi MP
banka, er þar sérstaklega nefndur.
Líklegt er að aðrir stórir fjár-
festar, á borð við tryggingafélög
eða eignastýringarsjóði annarra
banka, myndu einnig koma að
bankakaupunum ef af þeim
verður, enda um mjög stóra fjár-
festingu að ræða.
Hafa líka áhuga á Arion
Heimildir Fréttablaðsins herma
að FSÍ, og stærstu lífeyris sjóðir
landsins, hafi í töluverðan tíma
verið að vinna að þeim möguleika að
kaupa Íslandsbanka og Arion banka.
Spilar margt þar inn í. Í fyrsta lagi
er mikill skortur á arðvænlegum
fjárfestingatækifærum á Íslandi.
Gjaldeyrishöft gera það síðan að
verkum að sjóðirnir mega ekki fjár-
festa erlendis. Þeir hafa því yfir
miklum fjármunum að ráða sem
erfitt er að ávaxta. Bankar væru því
kjörin fjárfesting að þeirra mati.
Í öðru lagi hafa lífeyris sjóðirnir
verið óánægðir með hvernig
íslensku bankarnir hafa losað um
eignarhald á þeim fyrirtækjum
sem þeir hafa tekið yfir. Þeim hefur
fundist þeir hafa verið að selja þau
of mikið til eigin viðskiptavina
og með því stækka það kerfislega
vandamál sem ríkir innan íslensks
viðskiptalífs.
Í þriðja lagi sjá þeir tækifæri
til að nýta bankana til að koma
íslensku atvinnulífi almennilega í
gang og þar af leiðandi fjölga fjár-
festingakostum sínum.BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala
Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070
SHIFT_
Eyðsla:
4,2 l/100 km*
RENAULT MEGANE II SPORT TOURER
1.5 dísil, sjálfskiptur. Verð 3.890 þús. kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
17
2
*
M
ið
a
ð
v
ið
b
la
n
d
a
ð
a
n
a
ks
tu
r
DACIA DUSTER – 4x4
Dísil, beinskiptur. Verð 4.090 þús. kr. Eyðsla:
5,1 l/100 km*
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
17
2
M
ið
a
ð
v
ið
b
la
n
d
a
SKYNSAMLEG
KAUP
Hrikalega gott ver
ð
NISSAN QASHQAI – 4x4
Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. Eyðsla:
4,6 l/100 km*
ELDSNEYTI
MINNA
NÝIR SPARNEYTNIR BÍLAR
FER 1.428 KM
Á EINUM TANKI
M.v. blandaðan ak
stur
VINSÆLASTI
SPORTJEPPINN
Samkv. Umferðars
tofu 2012
SUBARU XV – 4x4
Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr. Eyðsla:
6,6 l/100 km*
SPARNEYTINN
SUBARU
Ný vél, aukinn ben
sínsparnaður
Kröfuhafar Glitnis, sem að stórum hluta hafa keypt kröfur þeirra eftir fall
bankans, hafa líka hagsmuni af því að selja Íslandsbanka. Um helmingur
þeirra eru vogunarsjóðir, að mestu bandarískir, sem keyptu kröfur ódýrt og
vilja komast út úr íslensku hagkerfi sem fyrst með eins mikinn hagnað og
þeir geta.
Ljóst er á afstöðu Seðlabanka Íslands og stjórnvalda gagnvart þeim að
ekki stendur til að samþykkja nauðasamninga sem gera þeim það kleift á
næstunni. Auk þess er ljóst að vilji margra, til dæmis forsvarsmanna Fram-
sóknarflokksins, stendur til þess að þjóðnýta hluta af hagnaði þeirra. Því
lengur sem kröfuhafarnir halda á íslenskum banka því meiri verða líkurnar
á því að gripið verði til óhefðbundinna aðgerða gegn þeim.
Auk þess horfa kröfuhafarnir til þess að lífeyrissjóðir landsins eiga
miklar erlendar eignir. Þegar þrotabú bankanna samþykktu að gera
upp gjaldmiðlasamninga við lífeyrissjóðina fyrir skemmstu var liðkað
fyrir þeirri samningsgerð eftir fjögurra ára þrátefli með því að sjóðirnir
borguðu hluta uppgjörsins með erlendum eignum sínum. Þeir gætu verið
tilbúnir að gefa afslátt á verðinu sem þeir vilja fá fyrir bankana ef hluti
kaupverðsins verður greiddur með erlendum eignum lífeyrissjóðanna.
Kröfuhafar sjá leið út
Sjóðirnir vilja kaupa
báða einkabankana
Þreifingar eru hafnar á milli Framtakssjóðs Íslands, lífeyrissjóða og aðila tengdra
MP banka og slitastjórnar Glitnis um kaup á Íslandsbanka. Hluti bjóðenda horfir
einnig til Arion banka. Þeir vilja fá að kaupa fyrir brot af innra virði bankanna.
VERÐMÆT EIGN Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, staðfestir að áhugi sé á bankanum og að vilji sé til
þess að selja hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
milljarðar
króna er
bókfært virði dótturfélaga
Glitnis. Íslandsbanki er
langstærst þeirra.
117 milljarðar króna er innra
virði alls hlutafés Íslands-
banka.
140 milljarðar króna er innra
virði 95 prósenta hlutar
Glitnis í bankanum.
133
| FRÉTTASKÝRING | 14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR8
VIÐRÆÐUR UM KAUP Á ÍSLANDSBANKA