Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 10
| FRÉTTASKÝRING | 14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR10
VARÚÐARREGLAN– EIN MEGINREGLA UMHVERFISRÉTTAR
Ný skýrsla Umhverfisstofnunar
Evrópu (EEA) tekur af allan vafa
um að betra sé að flýta sér hægt
þegar ný tækni er innleidd. Í 84 af
88 tilfellum sem rannsökuð voru,
þar sem varað var við skaðlegum
áhrifum á heilsu eða umhverfi,
reyndust gagnrýnendur hafa haft
rétt fyrir sér. Þessar niðurstöður
eru taldar eiga sérstaklega vel við í
dag, þegar tæknibyltingar eru tíðari
en nokkru sinni fyrr.
Varúðarreglan
Í forgrunni þessarar skýrslu er svo-
kölluð varúðarregla; ein af megin-
reglum umhverfisréttar. Varúðar-
reglan verður tekin upp hér á landi,
samkvæmt frumvarpi til nýrra
náttúruverndarlaga. Í stuttu máli
kemur hún til álita þegar óvissa er
til staðar eða þekkingarskortur um
afleiðingar ákvarðana sem kunna að
hafa áhrif á náttúruna.
Tilvikin 88, sem rannsök-
uð voru, höfðu þá sérstöðu að
varnaðar orð voru talin ástæðu-
laus. Þau varða kvikasilfursmeng-
un frá iðnaði, frjósemisvandamál
vegna notkunar skordýraeiturs,
hormónaraskandi efni í algengum
plastvörum og lyf sem hafa áhrif
á vistkerfi, svo eitthvað sé nefnt.
Í skýrslunni kemur fram að oftar
en ekki hafa menn hunsað vís-
bendingar um hættu, allt þar til
að ekki var lengur hægt að komast
hjá skaðlegum áhrifum á heilsu og
umhverfi.
Fjaðrafok
Skýrslan, Late Lessons from Early
Warnings II, er framhald skýrslu
sem var birt árið 2001 og olli miklu
fjaðrafoki. Sú skýrsla, og sú nýja,
sýnir fram á að í allmörgum til-
fellum hafa menn skellt skolla-
eyrum við viðvörunum um hættur,
sem síðar hefur valdið dauða fólks
og veikindum auk umhverfisskaða
í stórum stíl.
Nýja skýrslan rekur nokkur
dæmi um það sem hér hefur verið
nefnt og hlýtur að hafa víðtæk áhrif
við stefnumörkun stjórnvalda, vís-
indastarf og tækni, enda eru neyt-
endur fljótari að tileinka sér nýja
tækni sem aldrei fyrr. Í því felst
mikil hætta sem enginn ætti að
leiða hjá sér, segir í skýrslunni.
Í stuttu máli greinir skýrslan frá
því hvernig hættumerki voru virt að
vettugi; fyrirtæki tóku skammtíma-
gróða fram yfir almannahag, bæði
með því að fela upplýsingar og ekki
síður með því að leiða hjá sér augljós
hættumerki. Önnur dæmi greina frá
því hvernig vísindamenn gerðu lítið
úr mögulegri hættu tengdri nýrri
tækni, stundum vegna þrýstings frá
fjárfestum. Allt eru þetta dæmi um
hvernig hægt hefði verið að beita
aðferðum í anda varúðarreglunnar
og komast hjá skaða.
En hvaða skírskotun á skýrslan
hér á landi? Hverju mun það breyta
að varúðarreglan er lögfest með
almennum hætti hér á landi?
Ekki skýrt
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir, lög-
fræðingur hjá umhverfis- og auð-
lindaráðuneytinu, segir að varúðar-
reglan hafi hingað til ekki verið
útfærð með skýrum hætti í lögum
um náttúruvernd. Þó megi segja að
sjónarmið um aðgát liggi að baki
ákvæðum laganna um innflutn-
ing, ræktun og dreifingu lifandi
lífvera, sem og ákvæðum um sér-
staka vernd tiltekinna jarðmyndana
og vistkerfa og um hættu á röskun
náttúruminja. Varúðarreglan sé
útfærð þannig í frumvarpi til laga
um náttúruvernd að þegar tekin er
ákvörðun, til dæmis um skipulag,
framkvæmd eða starfsleyfi, án þess
að fyrir liggi með nægilegri vissu
hvaða áhrif hún hefur á náttúruna,
skuli leitast við að koma í veg fyrir
mögulegt og verulegt tjón á náttúru-
verðmætum. Þá skuli skorti á vís-
indalegri þekkingu ekki beitt sem
rökum ef hætta er á alvarlegum eða
óafturkræfum náttúruspjöllum, til
að fresta eða láta hjá líða að grípa til
aðgerða sem geta komið í veg fyrir
spjöllin eða dregið úr þeim.
Hefur víðtækt gildi
Steinunn Fjóla segir mikilvægt í
þessu sambandi að varúðarreglan
er sett fram sem almenn megin-
regla og hafi því því víðtækt
gildi. Gert sé ráð fyrir að innleið-
ing varúðarreglunnar í náttúru-
verndarlög geti komið í veg fyrir
að ákvarðanir hafi í för með sér
verulegt tjón á náttúrunni. Reglan
kunni því að kalla á að leyfi, til
dæmis fyrir framkvæmdum, sé
bundið skilyrðum og kveðið sé á
um mótvægisaðgerðir eða jafnvel
að umsókn sé hafnað.
Að hennar sögn veltur mat á því
hvað teljist verulegt tjón á ýmsum
þáttum; hversu mikil breyting verði
á vistkerfum, hvort áhrifin séu
varan leg og hvort tegundum á vá-
lista sé ógnað. Ef fyrir liggi nægileg
þekking eða vissa um afleiðingar
ákvörðunar verði varúðarreglunni
hins vegar ekki beitt.
Steinunn Fjóla bendir á að seinni
málsliður varúðar reglunnar, sem
fjallar um skort á vísindalegri þekk-
ingu, eigi einkum við um ákvarðanir
sem miði að náttúruvernd, eins og
við ákvarðanir um friðlýsingu eða
um veiði tak markanir. Þá endur-
speglist varúðar reglan einnig í
öðrum ákvæðum náttúru verndar-
frumvarpsins, sem fjalla um
almenna aðgæsluskyldu. Ákvæðið
geri öllum skylt að ganga vel um
náttúru landsins og sýna ýtrustu
varúð. Þá beri framkvæmdaraðila
við framkvæmdir og starfsemi sem
áhrif hafa á náttúruna að gera allt
sem með sanngirni má ætlast til
svo komið verði í veg fyrir náttúru-
spjöll.
Menn ættu alltaf að
hlusta á varúðarorð
Ekki er vænlegt til árangurs að skella skollaeyrum við varnaðarorðum við þróun
nýrrar tækni. Í flestum tilfellum reynist gagnrýni eiga rétt á sér, sýnir nú skýrsla
Umhverfisstofnunar Evrópu. Varúðarreglan, ein af meginreglum umhverfisréttar,
verður að óbreyttu fest í sessi með nýjum náttúruverndarlögum.
ST. PÉTURSBORG 2005 Skýrslan sýnir svo að ekki verður um villst að menn ættu að flýta sér hægt þegar ný tækni kemur fram.
NORDICPHOTOS/AFP
Mörg umhverfisvandamál eru þess eðlis að erfitt getur reynst að sýna
með vísindalegri fullvissu fram á orsök þeirra. Þá kann að vera freistandi
fyrir stjórnvöld að aðhafast ekkert, sérstaklega ef mótvægisaðgerðir eru
kostnaðarsamar. Úr þessum aðstæðum sprettur ein af meginreglum hins
alþjóðlega umhverfisréttar, varúðarreglan. Kjarni hennar er sá að ekki skuli
láta óvissu um afleiðingar tiltekinna athafna eða athafnaleysis koma í
veg fyrir að gripið sé til fyrirbyggjandi aðgerða. Í reglunni felst sú hugsun
að stjórnvöld skuli ekki skýla sér bak við vísindalega óvissu til að forðast
varúðarráðstafanir í þágu umhverfisins.
Vísað er til varúðarreglunnar í ýmsum alþjóðasamningum sem Ísland er
aðili að og á nokkrum sviðum íslensks umhverfisréttar er byggt á reglunni.
Heimild: Ársskýrsla Umhverfisstofnunar 2011
Hvað er varúðarreglan?Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
SUZUKI SWIFT 4WD
Nýskr. 05/11, ekinn 44 þús km.
bensín, beinskiptur.
Verð áður kr. 2.280.000
TILBOÐ kr. 1.890 þús.
HONDA ACCORD ELEGANCE
Nýskr. 03/10, ekinn 48 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr.3.680.000
TILBOÐ kr. 2.990 þús.
HYUNDAI i10
Nýskr. 02/10, ekinn 36 þús km.
bensín, beinskiptur.
Verð áður kr.1.390.000
TILBOÐ kr. 1.190 þús.
NISSAN X-TRAIL SE
Nýskr. 06/08 ekinn 107 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr.3.340.000
TILBOÐ kr. 2.690 þús.
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 06/08, ekinn 94 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 4.980.000
TILBOÐ kr. 4.280 þús.
RENAULT MEGANE BERLINE
Nýskr. 12/09, ekinn 60 þús km.
dísil, beinskiptur.
Verð áður kr. 1.780.000
TILBOÐ kr. 1.390 þús.
TOYOTA LAND CRUISER 150
Nýskr. 12/10, ekinn 30 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 7.990.000
TILBOÐSVERÐ!
6.990 þús.
Frábært úrval af nýlegum, lítið
eknum bílum á frábæru verði!
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
Rnr. 280303
Rnr. 201020
Rnr. 200905
Rnr. 190685 Rnr. 141341
Rnr. 140136
Rnr. 150964
KOMDU STRAX Í DAG! GERÐU FRÁBÆR KAUP!