Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 12

Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 12
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 General Electric kæli- og frystiskápar sem hafa inn- byggða klakavél með mulningi og ísköldu íslensku vatni. Þeir eru öflugir og glæsilega innréttaðir. Fást hvítir, svartir og með stálklæðningu. Verð frá kr. 398.800 stgr. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is TILBOÐSDAGAR Tilboð Amerískir með klakavél UMHVERFISMÁL Hreinsunarátak vegna síldardauðans hófst í Kolgrafa- firði í gær. Takmarkið er að grafa dauða síld áður en hún grotnar og bætir á gríðarlegt magn af grút sem fyrir er. Grút verður mokað upp og hann fluttur til urðunar. Heimamenn annast verkið á kostnað stjórnvalda. Helgi Jensson, ráðgjafi hjá Umhverfisstofnun, hefur tekið þátt í að skipuleggja aðgerðir. Hann segir aðgerðina lúta að því að grafa hræ af dauðri síld í fjörunni fyrir neðan bæinn Eiði og freista þess að hreinsa upp grút á sama stað og flytja hann til urðunar á viðurkenndum urðunarstað. Fyrst verður síldin grafin og svo reynt við grútarhreinsunina. Framkvæmd og stjórn er á hendi heimamanna en kostnaður er greiddur af stjórn- völdum, segir Helgi. Ekki er um að ræða hluta af verk- efninu sem nýfarið er af stað og stjórnvöld lögðu sex milljónir króna til. Það verkefni snýr að vöktun en hreinsunin snýr að aðgerða áætlun. „Eftir tvo daga metum við hvernig þetta hefur gengið og ákvörðun verður tekin um fram haldið,“ segir Helgi. Bjarni Sigurbjörnsson, bóndi á Eiði í Kolgrafafirði, var við hreinsunar- störf í gær. „Þetta lítur alveg þokka- lega vel út og mikið er gott að þetta hreinsunar starf er hafið. Þetta tekur kúfinn af þessu hið minnsta,“ segir Bjarni. Bjarni er ekki sáttur við að eyða tíma í að flytja grút til urðunar í Fífl- holti, [sorpmóttökustaður fyrir Vestur- land]. Hann vildi nýta gamla námu á svæðinu. Hann hefur hins vegar skiln- ing á ákvörðun Umhverfisstofnunar, þar sem nauðsynlegt sé að fara að lögum í þessari aðgerð þótt skammur tími sé til stefnu. Líffræðingar frá Náttúrufræði- stofnun Íslands og Náttúrustofu Vest- urlands (NV) fóru í könnunarflug yfir Kolgrafafjörð og nágrenni á þriðjudag til að fylgjast með fuglalífi, og þá ekki síst til að leita hafarna sem vitað er að eru grútarblautir. Róbert Arnar Stefánsson, forstöðu- maður NV, segir að flogið hafi verið yfir svæðið frá Stykkishólmi að Lárvaðli, við vestanverðan Grundar- fjörð, í góðu veðri. „Í ferðinni sáum við 39 erni, langflesta við Urthvala- fjörð [utanverðan Kolgrafafjörð], Hraunsfjörð og innanverðan Kol- grafa fjörð. Nokkur grútarmengun var sjáanleg á yfirborði sjávar og dauð síld þakti botninn í nágrenni við Eiði. Mikill fjöldi fugla var á svæðinu eins og áður,“ segir Róbert. Í yfirlitsfluginu var ekki hægt að staðfesta grútarbleytu í neinum arnanna. „Margir flugu upp og virtust þungfleygir og settust eftir stutt flug en það þýðir ekki endilega að þeir hafi verið blautir. Einhverjir gætu hafa verið í svipuðu ástandi og þeir sem sést hafa á síðustu dögum; blautir og þungfleygir en ekki orðnir alveg van- færir.“ Eins og sagt hefur verið frá bárust NV fimm tilkynningar um grútar- blauta erni á einum og sama deginum. „Þessi mikli fjöldi arna á svona litlu svæði er magnaður en vekur um leið áhyggjur í ljósi þess að þeir eru í tals- verðri hættu á að komast í snertingu við grútinn,“ segir Róbert. svavar@frettabladid.is Grút mokað upp og síldin grafin Hreinsunarátak hófst í Kolgrafafirði í gær. Heil síld verður grafin í sandinn. Grútardrullu verður mokað upp og urðuð. Árangur aðgerða metinn daglega. Ernir eru tugum saman í firðinum, eins og yfirlitsflug leiddi í ljós. Fimm tilkynningar um grútarblauta erni á einum degi. HREINSUN HAFIN Við verkið eru nýttar nokkrar þungavinnuvélar; gámar, dráttarvélar og vagnar til flutninga. MYND/BJARNI SIGURBJÖRNSSON FERÐAÞJÓNUSTA Ferðamönnum sem heimsækja Evrópulönd fjölgaði um fjögur prósent á síðasta ári, sam- kvæmt nýbirtum tölum Ferðamála- ráðs Evrópu (European Travel Com- mission, ETC). Aukningin er minni en 2011 þegar hún var sjö prósent. Langmest var aukning ferða- manna til Íslands, tæp tuttugu pró- sent frá árinu 2011. Aukningin er nær helmingi meiri en í löndunum í öðru og þriðja sæti, Litháen og Rúm- eníu. Mestur er samdrátturinn svo á straumi ferðamanna til Grikklands, 5,2 prósent, til Póllands 1,8 prósent og til Ítalíu um 0,4 prósent. Í nýrri skýrslu ETC um þróun og horfur í evrópska ferðaiðnaðinum kemur fram að nokkuð hafi komið á óvart að heimsóknir til Bret- lands hafi staðið í stað milli ára, þrátt fyrir viðburði sem vakið hafi heimsathygli í landinu. Þannig hafi á árinu verið bæði hátíð vegna sex- tíu ára valdatíðar Elísabetar Eng- landsdrottningar og Ólympíuleikar, bæði fatlaðra og ófatlaðra. Þá hafi Evrópumeistaramótið í fótbolta í Póllandi ekki skilað sér í fjölgun ferðamanna. „Reynsla frá fyrri tíð sýnir hins vegar að stórviðburðir auka venju- lega áhuga ferðamanna á áfanga- stöðum til miðlungslangs og lengri tíma,“ segir í skýrslunni. Mann- þröng og verðhækkanir geti hins vegar virkað letjandi á árinu sem viðburðurinn fer fram. - óká Dró úr aukningu erlendra ferðamanna í Evrópu: Fjölgar mest á Íslandi Í LEIFSSTÖÐ Straumur ferðamanna jókst hvergi eins og hér í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Land Aukning frá fyrra ári 1. Ísland 19,6% 2. Litháen 12,4% 3. Rúmenía 10,0% 4. Ungverjaland 8,0% 5. Þýskaland 7,5% 6. Tékkland 6,9% 7. Serbía 5,9% 8. Slóvakía 5,4% 9. Slóvenía 5,4% 10. Svartfjallaland 5,3% Heimild: Ferðamálaráð Evrópu (ETC) HEIMSÓKNIR ERLENDRA FERÐAMANNA 2012

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.