Fréttablaðið - 14.02.2013, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 14.02.2013, Blaðsíða 18
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | Hver á Ísland? Þessi naíva spurning hefur æ oftar skotið upp kollinum eftir því sem umræðan um eignar- hald á jörðum verður háværari. Sú umræða hefur lotið sömu lög- málum og svo margar aðrar hér á landi, einstök tilvik hafa komið upp og um skamma hríð hefur öll umræðan snúist um þau og allir haft skoðun á þeim. Nokkuð hefur þó skort á heildstæða umfjöllun um hvernig eignarhaldi á íslensku landi er háttað. Umræðan hefur þannig ráðist af ytri aðstæðum. Kanadískur auð- maður kaupir orkufyrirtæki og þá magnast upp umræðan um eignar- hald á auðlindum í jörðu. Kín- verskur auðmaður vill kaupa stóra jörð á Norðausturlandi og um ræðan snýst um hvort útlendingar megi eiga íslenskar jarðir. Gallinn við umræðu af þessu tagi er sá að hún veltir aðeins upp einum fleti og, líkt og með svo mörg mál hér á landi, hún gleymist fljótt. Fréttablaðið ákvað að reyna að svara þessari einföldu spurningu: Hver á Ísland? Það þarf ekki að fara í grafgötur með það að umræða síðustu mánaða og ára kveikti þá spurningu. Til að gera sér grein fyrir stöðunni þarf hins vegar að kafa dýpra ofan í eignarhald á landi og þá kemur í ljós að það er ansi óljóst. 6.500 lögbýli Á Íslandi voru um síðustu áramót skráð 6.449 lögbýli í lögbýlaskrá Þjóðskrár. Þessi tala hefur haldist nokkuð óbreytt undanfarin ár. Í skýrslu Bændasamtaka Íslands um eignarhald á jörðum, framleiðslu og þróun hennar, frá árinu 2006, kemur fram að það ár eru lögbýli 6.496. Sá fjöldi hafði verið nokkurn veginn óbreyttur í einn og hálfan áratug á undan, þau voru 6.469 árið 1990, en hafði þá fjölgað frá árinu 1980 þegar þau voru 6.391. Hér er hins vegar komið að fyrsta vandanum við að komast að eignarhaldi á jörðum. Öll lögbýli eru jarðir, en allar jarðir eru ekki lögbýli. Um þetta eru mismunandi skrár, lögbýla- og fasteignaskrá, og til að flækja hlutina enn frekar hafa jarðir úr þeirri síðarnefndu verið teknar saman í jarðaskrá. Nánar verður komið inn á flækj- una í skráningarmálum síðar í þess- um greinaflokki, en hér er talað jöfnum höndum um jarðir og lög- býli þó átt sé við það síðarnefnda. Jarðir í fasteignaskrá eru því fleiri ASKÝRING | 18 1 2 3 4 5 6HVER Á ÍSLAND? Ríkið er langstærsti jarðeigandinn Reglulega skjóta upp kollinum áhyggjur af því að jarðir séu að safnast á fárra hendur og auðmenn séu að eignast Ísland. Undanfarið hefur óttinn beinst að erlendum auðmönnum. Sé málið skoðað kemur þó í ljós að lítið hefur verið um jarða- söfnun og eignarhald á jörðum er mjög dreift. Opinberir aðilar eiga flestar jarðir og ber ríkið þar höfuð og herðar yfir aðra. Eigandi Fjöldi lögbýla Ríkissjóður Íslands 49 Akureyrarkaupstaður 13 Lífsval ehf. 10 Dalvíkurbyggð 9 Kirkjumálasjóður 8 Norðurþing 5 Svalbarðshreppur 5 Ásdís Erla Gísladóttir og Trausti Þórisson 4 Hannes Valur Gunnlaugsson 4 Hörgársveit 4 Heildarfj öldi lögbýla 1.109 NORÐURLAND EYSTRA HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eigandi Fjöldi lögbýla Ríkissjóður Íslands 15 Garðabær 13 Mosfellsbær 11 Reykjavíkurborg 11 Skipulagssjóður Reykjavborgar 4 Brimgarðar ehf. 3 Heildarfj öldi lögbýla 231 REYKJANES Eigandi Fjöldi lögbýla Ríkissjóður Íslands 7 Sveitarfélagið Garður 7 Grindavíkurbær 4 Ásgeir Jóelsson o.fl . 3 Haukur Hafsteinsson o.fl . 3 Sandgerðisbær 3 Virgill Scheving Einarsson 3 Heildarfj öldi lögbýla 118 VESTURLAND Eigandi Fjöldi lögbýla Ríkissjóður Íslands 38 Dalabyggð 8 Lífsval ehf. 7 Borgarbyggð 7 Kirkjumálasjóður 6 Snæfellsbær 6 Miðhraun ehf. 4 Geiteyri ehf. og Akurholt ehf. 4 Skógrækt ríkisins Vesturlandi 4 Heildarfj öldi lögbýla 947 VESTFIRÐIR Eigandi Fjöldi lögbýla Ríkissjóður Íslands 23 Strandabyggð 7 Ísafj arðarbær 5 Bæjarbúið ehf. 4 Heildarfj öldi lögbýla 578 AUSTURLAND Eigandi Fjöldi lögbýla Ríkissjóður Íslands 75 Fjarðabyggð 10 Lífsval ehf. 7 Kirkjumálasjóður 7 Fljótsdalshérað 5 Borgarfj arðarhreppur 4 Djúpavogshreppur 4 Sigfús Vilhjálmsson 4 Heildarfj öldi lögbýla 763 NORÐURLAND VESTRA Eigandi Fjöldi lögbýla Ríkissjóður Íslands 25 Húnaþing vestra 6 Sveitarfélagið Skagafj örður 6 Kirkjumálasjóður 5 Jón Gíslason 4 Rarik ohf. 4 Heildarfj öldi lögbýla 981 SUÐURLAND Eigandi Fjöldi lögbýla Ríkissjóður Íslands 80 Hveragerðisbær 21 Laugaráshérað 16 Hrunamannahreppur 15 Arion banki hf. 8 Kirkjumálasjóður 7 Skeiða- og Gnúpverjahreppur 7 Sveitarfélagið Árborg 7 Eigandi Fjöldi lögbýla Strandarkirkja 5 Landgræðsla ríkisins 4 Bláskógabyggð 4 Fjóla I. Kjartansd.og Sigurður Ágústs. 4 Orkuveita Reykjavíkur 4 Páll Magnús Pálsson 4 Stefán, Hilmar og Skúli Jónssynir 4 Heildarfj öldi lögbýla 1.720 231 118 947 578 981 1.109 1.720 763 H eildarfj öldi lögbýla en lögbýlin, eða 7.607 á móti 6.449. Þegar eignarhaldið er skoðað kemur berlega í ljós að langflest lögbýli á Íslandi eru í eigu opin- berra aðila. Af þessum tæplega 6.500 lögbýlum eiga þeir 619 að fullu. Þar af á ríkið stærstan hluta, eða 312. Það er þó ekki svo einfalt að svara spurningunni um hver eigi Ísland með svarinu ríkið. Það flækir málin að lögbýli eru skráð á kennitölur, sem segir ekki alla söguna. Á bak við kennitölu eignar- haldsfélags geta verið fjöl margir aðilar, innlendir sem erlendir. Ríkið er til dæmis eigandi að tuttugu jörðum í viðbót, að hluta, og svo á það jarðir, að fullu eða hluta, í gegn- um ýmsa sjóði á sínum vegum. Ríkisjörðum hefur fækkað heil- mikið, ríkið hefur verið að selja jarðir. Árið 1996 átti ríkið til dæmis 638 jarðir. Ríkisjörðum hefur því fækkað um helming. Meirihluti í eigu margra Í gegnum aldirnar hefur það án efa verið reglan að á bak við hverja jarðeign hafi verið einn eigandi. Sú er ekki raunin í dag. Í skriflegu svari atvinnu- og nýsköpunarráðu- neytisins við fyrirspurn Á smundar Einars Daðasonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um eignar- hald bújarða, kemur fram að tæp- lega 39 prósent jarða í fasteigna- skrá eru með einn eiganda. Þarna kemur reyndar fram munur á skilgreiningum, eins og áður er komið inn á, fleiri jarðir eru á landinu en lögbýli. Af svarinu má hins vegar sjá að í dag er algengara að jarðir séu í eigu fleiri en eins aðila, líkt og sjá má á töflunni hér fyrir ofan. Þetta flækir málið þegar horft er til breytinga á eignarhaldi. Telst það sala á jörð þegar ættingjar kaupa hlut annars ættingja? Eða þegar eigendum að jörð fækkar úr fimm í fjóra? HLUTFALLSLEG SKIPTING EIGNARHALDS LÖGBÝLA LÖGBÝLI Í ÁBÚÐ OG EYÐI Eyðibýli Eignar- haldsfélög Opinberir aðilar Í ábúðAðrir Nemendum þakkað Þessi greinaflokkur hefur verið í vinnslu um hríð. Á fyrstu stigum unnu tveir nemar í meistaranámi í blaða- og fréttamennsku við HÍ að verkefninu, þau Kolbeinn Tumi Daðason og Kristrún Heiða Hauksdóttir. Frétta- blaðið kann þeim bestu þakkir fyrir. 619 760 2.202 5.068 4.245 JARÐEIGANDI Hveragerðisbær er skráður eigandi 21 lögbýlis. Það segir þó lítið um landflæmið í eigu bæjarins, þar sem fjöldi þessara lögbýla er aðeins lóð undir gróðurhúsi. Lítil gögn eru til um það hvað jarðir í landinu eru stórar og aðeins lítill hluti þeirra er hnitsettur. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA Á MORGUN Verðmæti jarða og einstakir eigendur. Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Páll Hilmarsson pallih@gogn.in 6.449 lögbýli á landinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.