Fréttablaðið - 14.02.2013, Blaðsíða 20
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og
í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Dögun er nýtt umbótasinnað stjórn-
málaafl sem mun bjóða fram í næstu
alþingiskosningum. Við byrjuðum á því
að sameinast um kjarnastefnu en í henni
koma fram þær megináherslur sem við
ætlum að leggja af stað með í kosninga-
baráttuna. Þar ber fyrst að nefna öflugar
aðgerðir í þágu heimila, með afnámi
verðtryggingar á neytendalánum og
almennri leiðréttingu húsnæðislána, í
öðru lagi samþykkt nýrrar stjórnarskrár
og í þriðja lagi er áherslan á auðlindirnar
í þjóðareign og uppstokkun á stjórn fisk-
veiða.
Mjög margir innan Dögunar hafa verið
öflugir innan grasrótarinnar. Við höfum
barist fyrir því að fá Icesave-samninga í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Sú reynsla hefur
kennt okkur að það getur verið afar
mikilvægt að hlusta á fólkið í landinu.
Almenningur getur vel kynnt sér flókin
mál og tekið skynsamar ákvarðanir. Það
sem skilaði okkur góðum árangri var
samtakamáttur upplýstrar þjóðar sem
neitaði að láta kúga sig.
Við í Dögun vildum líka að fólkið í
landinu fengi að segja skoðun sína á
nýrri stjórnarskrá. Fólkið í landinu fékk
að segja skoðun sína í ráðgefandi þjóðar-
atkvæðagreiðslu 20. október síðastliðinn.
Á þessu þingi fá stjórnvöld nýtt tækifæri
til að hlusta á vilja þjóðarinnar og fara að
vilja hennar varðandi nýja stjórnarskrá.
Dögun setti líka af stað undirskriftar-
söfnun á thjodareign.is þar sem við
hvöttum landsmenn til að fara fram á
þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórn fisk-
veiða. Við teljum að nýtt kvótafrumvarp
ríkisstjórnarinnar sé hvorki í samræmi
við auðlindaákvæðið í nýrri stjórnarskrá
né við vilja þjóðarinnar og að það séu
hræðileg mistök að hlusta ekki á þjóðar-
viljann.
Dögun er stjórnmálaafl sem vill koma
með nýja nálgun inn í stjórnmálin. Við
viljum ekki bara nýja umræðuhefð á
Alþingi og á milli stjórnmálaflokka,
heldur viljum við leggja ríka áherslu á að
hlusta á fólkið í landinu. Það getum við
gert með því að koma á þátttökulýðræði
og efla beint lýðræði og þar er fyrsta
skrefið að hlusta. Þess vegna er Dögun
flokkur almannahagsmuna en ekki sér-
hagsmuna.
Dögun og þjóðarvilji
VALENTÍNUSAR-
DAGURINN
14. FEBRÚAR
20% AFSLÁTTUR
AF ÖLLU RAUÐU
STJÓRNMÁL
Helga
Þórðardóttir
frambjóðandi
Dögunar– stjórn-
málasamtaka um
réttlæti, sanngirni
og lýðræði
➜ Við viljum ekki bara nýja
umræðuhefð á Alþingi og á milli
stjórnmálafl okka, heldur viljum
við leggja ríka áherslu á að hlusta á
fólkið í landinu.
Óljósar tengingar
Þór Saari, þingmaður Hreyfingar-
innar, var ekki ánægður með Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur, þingmann
Sjálfstæðisflokksins, í gær. Þorgerður
hafði, reyndar á óskiljanlegan hátt,
tengt viðbrögð Ögmundar Jónas-
sonar innanríkisráðherra vegna komu
fulltrúa FBI hingað til lands, við
meintan stuðning Hreyfingarinnar við
ríkisstjórnina. Þór var að vonum ekki
sáttur við þessa tengingu og lagði til
að Þorgerður bæðist af-
sökunar á „þessu bulli
sínu“. Hafi tenging
Þorgerðar Katrínar í
sínum röksemdum
verið langsótt, má
þó segja að sú
tenging sem
Þór gerði síðan hafi verið enn óljósari.
Hann lagði nefnilega til að Þorgerður
greiddi eitthvað til baka af þeim 1.700
milljónum sem hún og eiginmaður
hennar hefðu fengið afskrifaðar frekar
en að tjá sig á nefndan máta.
Blessuð virðingin
Það er kannski að æra óstöðugan að
koma hér enn inn á virðingu Alþingis,
sem er við brugðið. Þarna var á ferð
dæmi um ágætis málstað
sem þingmaður hafði, en
með því að teygja sig í
átt til heitapottarökfræði
(með fullri virðingu fyrir
pottverjum) tókst honum að
beina athyglinni frá því
og fá tiltal þing-
forseta í ofanálag.
Vita Kínverjar af þessu?
„Ef við getum sent mann til tunglsins,
þá getum við svo sannarlega varist
klámi á internetinu,“ segir Halla
Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innan-
ríkisráðherra, við Daily Mail. Þetta er
athyglisverð fullyrðing. Efast verður
um að þarna sé vísað til geimfarans
Bjarna Tryggvasonar, sem fór reyndar
ekki til tunglsins, heldur almennt til
þekkingar mannkynsins. Nú er að sjá
hvort Kínverjar, sem reyndar hafa bara
sent mann út í geim, átti sig á þessari
tengingu. Án þess að á nokkurn hátt
sé verið að bera saman það sem þeir
vilja loka fyrir á internetinu og klámið
sem vísað var hér til, má þó benda
á að Kínverjum hefur reynst
sín lokun þrautin þyngri.
kolbeinn@frettabladid.is
S
krifað hefur verið undir uppfærðan stofnanasamning
hjúkrunarfræðinga og Landspítalans. Í gær var
samningurinn kynntur hjúkrunarfræðingum. Í dag
kemur svo í ljós hversu margir hjúkrunarfræðingar
af þeim þrjú hundruð sem sagt höfðu upp störfum
við spítalann draga uppsagnir sínar til baka.
Mögulega felst í því einhver
vísbending að nýjum samningi
var að sögn nokkuð vel tekið á
kynningarfundunum tveimur á
Landspítalanum í gær, öðrum
við Hringbraut og hinum í
Fossvogi. Og í öllu falli er ljóst
að nýr stofnanasamningur
hefur í för með sér umtals-
verðar kjarabætur handa þeim
ríflega þúsund hjúkrunarfræðingum sem við spítalann starfa.
Full ástæða er til þess að fagna því þegar stéttir ná árangri
í kjarabaráttu. Ekki veitir af. Líkast til finna flestir á eigin
skinni kaupmáttarrýrnun síðustu ára, hvort heldur það er
fyrir áhrif launalækkana og/eða frystingar, eða vegna verð-
bólgunnar.
Um leið vaknar samt spurningin um hvað gerist næst.
Hjúkrunarfræðingar eru langt því frá eina stétt opinberra
starfsmanna sem setið hefur eftir í launaþróun og hefur mátt
þola niðurskurð, jafnvel frá því löngu fyrir hrun. Nærtæk
dæmi eru í sjálfu heilbrigðiskerfinu. Sama á við um grunn-
skóla og framhaldsskóla landsins.
Þá er ekki eins og starfsfólk á almennum vinnumarkaði
hafi farið varhluta af aðhaldi í rekstri fyrirtækja eða af dýr-
tíðinni sem ýmist á rót sína að rekja til hruns krónunnar eða
baráttu fyrirtækja við að standa undir óhóflegri skuldsetn-
ingu. Kostnaðinum er eins og kostur er velt út í verðlagið.
Í ljósi sögunnar er ekki hægt að álasa fólki fyrir að hafa
áhyggjur af því að hér taki við víxlverkan launa og verð-
hækkana þegar fleiri fara að krefjast leiðréttingar á þeirri
kaupmáttarrýrnun sem þeir hafa mátt þola síðustu ár. Óttinn
við að hærri laun skili sér í hærra verði á vörum og þjónustu
sem aftur hafi áhrif á verðtryggð lán með þeim hætti að þær
kjarabætur sem sóttar voru með samningum hverfa á ný
er skiljanlegur. Þessi hringekja óstöðugleikans hefur tekið
margan snúninginn hér á landi.
Vegna þessa er vert að spyrja sig hvar raunverulegar
kjarabætur er að finna. Krafan um þær er rík.
Ljós er að mikill sigur yrði unninn í þeirri baráttu ef hér
tækist að færa vexti húsnæðislána í þá mynd sem þekkist
í nágrannalöndunum. Vandséð er hins vegar að það takist
án þess að losna við rót stórs hluta óstöðugleika í íslensku
efnahagslífi og ástæðu þess að hér er burðast með kerfi verð-
tryggingar á lán. Nefnilega íslensku krónuna.
Niðurstöður skoðanakannana um hug fólks til viðræðna um
aðild að Evrópusambandinu eru ekki til þess fallnar að ýta
undir bjartsýni í þeim efnum. Hvað þá þau viðhorf að hverfa
skuli frá þeim samningum áður en niðurstaða er fengin.
Krónunni fylgir nefnilega annaðhvort verðtrygging eða
vaxtaokur (eða hvort tveggja). Að losna við hana yrði líklega
mesta og varanlegasta kjarabót sem völ er á.
Lendingu náð í deilu LSH og hjúkrunarfræðinga:
Hvað gerist næst?
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is