Fréttablaðið - 14.02.2013, Page 26
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26
Við landnám N-Ameríku
fóru evrópskir landnemar
sem logi yfir akur á leið
sinni vestur. Hugtakið nátt-
úruvernd var lítt þekkt og
hart var gengið fram gagn-
vart náttúru landsins. Sem
dæmi má nefna vísunda-
veiðar þar sem milljónum
dýra var slátrað svo lá við
útrýmingu.
Þó kviknaði ljós hjá
fáeinum framsýnum mönn-
um og Yellowstone-þjóð-
garðurinn var stofnaður
1872. John Muir stofnaði
20 árum síðar náttúruverndarsam-
tökin Sierra Club í Kaliforníu, sem
börðust fyrir náttúruvernd og stofn-
un fleiri þjóðgarða.
Bílaöld gekk í garð og vegir voru
lagðir að þjóðgörðum og um þá.
Fljótlega varð ljóst að nauðsynlegt
var að takmarka bílaumferð um
verndarsvæðin. Síðan er liðin meira
en hálf öld. Á Íslandi er hins vegar
enn margt fólk sem skilur ekki
þessa hugsun.
Ég heimsótti nýlega tvo þjóðgarða
á vesturströnd Bandaríkjanna, Mt.
Rainier-þjóðgarðinn (stofnaður
1899) og North Cascades-þjóðgarð-
inn (st. 1968). Sá síðarnefndi byggir
mjög á hugmyndafræði Johns Muir.
Þeir sem vilja skoða þjóðgarðinn
almennilega verða að leggja land
undir fót og fara annaðhvort í dags-
göngur eða taka með sér göngutjald.
Í bílalandinu mikla þar sem frelsi
einstaklingsins er í hávegum haft
í stjórnarskránni þykir það orðið
sjálfsagt að vernda stór landsvæði
fyrir vélknúnum farartækjum.
Gera ekki kröfur
Áratugum saman hef ég stund-
að gönguferðir úti í náttúrunni á
Íslandi, í Sviss, Austurríki,
Frakklandi, á Ítalíu og í
Bandaríkjunum. Göngurn-
ar sem ég fór í í North Casc-
ades-þjóðgarðinum í Wash-
ington-fylki eru einhverjar
þær mögnuðustu sem ég
hef upplifað. Þarna er stór-
kostleg náttúrufegurð og
kynngimagnaðar óbyggðir
lausar við vélknúin farar-
tæki. Íbúar fylkisins eru
stoltir af náttúru þess og
gera ekki kröfu til þess að
allir komist á alla staði á
bíl. Gönguferðir í óbyggðum
eru lífsstíll margra þarna og öflug
sjálfboðaliðasamtök halda við frá-
bærum göngustígum.
Evrópa er hins vegar orðin svo
þéttbýl að þar eru varla til nein
ósnortin víðerni og víst er að Evr-
ópubúar gæfu mikið fyrir að eiga
slík svæði í dag. Hér á landi skort-
ir hins vegar marga skilning á gildi
ósnortinna óbyggða og víðerna.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur.
Skv. frumvarpi að nýjum náttúru-
verndarlögum er ætlunin að „taka
til“ í vega- og slóðakerfi landsins. Á
Íslandi eru margir vegslóðar sem
myndast hafa í áranna rás án alls
skipulags og án tillits til náttúru-
verndar. Sumum þeirra þyrfti að
loka.
Frelsið vandmeðfarið
En þá kemur fram hópur manna og
hrópar hátt um skert ferðafrelsi. Já,
frelsið er dýrmætt, en það er vand-
meðfarið og getur auðveldlega snú-
ist upp í andhverfu sína. Við búum
við mörg lög sem takmarka frelsi
okkar að ýmsu leyti og það er nauð-
synlegt. Ekki dugar alltaf að treysta
á skynsemi fólks. Sú afstaða að allir
eigi rétt á að komast á alla staði á
vélknúnu farartæki er löngu úrelt.
Samtök áhugafólks um ferða-
frelsi birtu auglýsingu þar sem því
er haldið fram að stangveiðimað-
ur sem „ekur upp með á að veiði-
stað“ sé að brjóta lög ef nýju nátt-
úruverndarlögin verða samþykkt.
Sjálfur er ég veiðimaður og hef
engar áhyggjur af því að ég verði
sektaður fyrir að aka veiðivegina
meðfram veiðiánum sem ég veiði í.
Ég tel að hér sé verið að mála skratt-
ann á vegginn.
Leiðarljós umræddra samtaka
virðist ímyndaður heilagur rétt-
ur eða jafnræðisregla sem kveður
á um að allir eigi að komast á alla
staði á vélknúnu farartæki. Menn
bera því við að ekki geti allir geng-
ið langar vegalengdir og nefna
öryrkja, aldraða og börn. Ég dreg í
efa að 4x4 menn hafi uppi þennan
málflutning af umhyggjusemi við
ofangreinda hópa.
Hafa menn hugsað þessa hugsun
til enda? Eigum við þá að malbika
veg upp að Svartafossi í Skaftafells-
þjóðgarði? Og inn í Morsárdal? Og
Kristínartindahringinn? Upp á tind
Herðubreiðar? Um Hornstrand-
afriðlandið? Eigum við kannski að
malbika allt landið?
Já, ég vil hafa frelsi til að
ferðast um landið og njóta útivist-
ar í íslenskri náttúru. Sums staðar
verður það best gert í friði fyrir
vélknúnum farartækjum. Þá legg-
ur maður bílnum og reimar á sig
gönguskóna. „Wildness is a neces-
sity,“ sagði John Muir.
Ferðafrelsi og náttúruvernd
Líklega hafa mörg okkar glaðst
þegar rannsóknaleyfum var nýlega
úthlutað á Drekasvæðinu. Efna-
hagshörmungarnar í kjölfar hruns-
ins eru teknar að þreyta, uppbygg-
ingunni hefur miðað hægar en
vonast var eftir. Samt hefur ýmis-
legt gott verið gert. Reynt hefur
verið að standa vörð um kjör þeirra
lakast settu og auka jöfnuð. Hing-
að til hafa stjórnvöld líka leitast við
að láta náttúruna njóta vafans. Var-
anleg úrræði virðast þó fá. Komist
Ísland í hóp olíuríkja virðist raun-
verulegt ríkidæmi aftur á móti
handan við hornið.
Á næstu árum og áratugum setur
olíuleit og hugsanlega olíuvinnsla
mark sitt á samfélögin hér á norð-
urslóðum. Með bráðnandi heims-
skautajökli og margefldri tækni
verður hægt að bora á æ fleiri
stöðum. Norðurslóðir verða tæp-
ast mikið lengur það ósnortna víð-
erni sem þær eru nú. Þess vegna
er mikilvægt að skoða málin ofan
í kjölinn og hrósvert væri ef við
Íslendingar reyndum að koma
að þessum málum af yfirvegun
og þekkingu á þeim siðferðilegu
rökum sem skipta mestu þegar til
lengri tíma er litið í stað þess að líta
aðeins til gæða og magns olíu í lög-
sögu okkar.
Dauðans alvara
Olíuvinnsla er eftir sem áður
dauðans alvara. Henni fylgir óhjá-
kvæmilega nokkur mengun. Hún
skapar hættu á umhverfisslysum
sem erfitt mun að bæta á jafn fjar-
lægum slóðum og Drekasvæðið er.
Þá er hið alvarlegasta ótalið: Með
olíuvinnslu værum við fyrst og
fremst að standa vörð um óbreytt
ástand. Draumurinn um olíu í
íslenskri lögsögu er fyrst og fremst
draumur um að geta haldið áfram
þeim orkufreku og mengandi lífs-
háttum sem við höfum tamið okkur
— og auðgast á þeim að auki.
Hér er vissulega um skammgóð-
an vermi í bókstaflegri merkingu
að ræða. Með þessu móti stuðlum
við að áframhaldandi hlýnun jarð-
ar, knýjum áfram þá umhverfisvá
sem kölluð hefur verið stærsta
áskorun sem mannkynið hefur
staðið frammi fyrir.
Þetta var atvinnuvegaráðherra
fullljóst þegar hann lagði áherslu
á að með rannsóknaleyfum væri
ákvörðun ekki tekin um olíu-
vinnslu. En er málið svona einfalt?
Hver mun hafa siðferðilegt þrek
til að setja lokið á þegar olíulind-
ir hafa fundist í hafinu norður af
landinu? Mun þjóðin samþykkja að
ekki verði skrúfað frá krananum?
Það er einmitt núna sem umræð-
an um siðfræði olíuvinnslunnar
verður að eiga sér stað. Það verð-
ur of seint að hefja hana þegar hið
svarta gull er fundið og æðið renn-
ur á fyrir alvöru.
Skyldur okkar sem heimsborgara
Við erum öll borgarar í einum og
sama heiminum og höfum skyldum
að gegna við hann en ekki aðeins
okkar eigið samfélag eða þjóðríki.
Grunnskyldur okkar felast í að
standa vörð um þau gildi á heims-
vísu sem styðja við lífið í öllum
margbreytileika þess. Hér í heimi
er allt samtengt: náttúran, haf-
djúpin, jörðin og lofthjúpurinn
umhverfis hana. Gerðir okkar hér
hafa áhrif á fjarlægum slóðum á
ókomnum tímum.
Skipan heimsins í þjóðríki og
skyldur okkar við þau koma númer
tvö í þessu samhengi. Einstakar
ákvarðanir þjóðríkja, t.d. um olíu-
vinnslu, þær reglur sem þau fylgja
og aðgerðir einstakra stofnana
innan þjóðríkja verður að gaum-
gæfa með tilliti til þeirra áhrifa
sem þessi atriði hafa á heimsvísu.
Heimspekilegar og trúarlegar rætur
Hugmyndin um að mannlegt eðli
sé eitt – að einhver kjarni sé sam-
eiginlegur öllum mannverum – er
mikilvæg forsenda þegar skyld-
ur okkar við umheiminn eru til
umræðu. Í fornöld litu Stóumenn
á sig sem borgara í hinum skipu-
lega alheimi fremur en í borgrík-
inu. Þeir skilgreindu sig því sem
heimsborgara. Hið sameiginlega
siðferðilega samfélag alls mann-
kyns var þess vegna meginmálið.
Mismunandi útfærslur á þess-
um skilningi má finna í flestum
nútímalegum framsetningum á
siðfræði, sem og í mannréttinda-
yfirlýsingum tuttugustu aldarinn-
ar. Manngildið og mannhelgin eru
undirstöður allra mannréttinda.
Trúarlegar rætur mannréttinda
þarf vart að útlista. Að kristnum
skilningi er hugmyndin um mann-
eskjuna sem er sköpuð í mynd Guðs
fyrirferðarmikið stef. Í anda þeirr-
ar hugsunar eigum við öll sömu
mannhelgi óháð búsetu, tungu, húð-
lit eða trú. Enda eru mannréttindi
hafin yfir einstök þjóðríki. Þau eru
sameiginleg öllum íbúum jarðar-
innar. Þau gilda jafnt um alla og ná
meðal annars yfir réttinn til lífs
óháð búsetu.
Þetta þurfum við að hafa í huga
þegar við mörkum okkur stefnu um
olíunýtingu í þeim tilgangi að knýja
áfram orkufreka og mengandi lífs-
hætti okkar því þeir stofna lífsskil-
yrðum fjölda fólks og annarra líf-
vera í bráða hættu víða um heim.
Okkur ber skylda til að sýna sam-
stöðu, stilla orkunýtingu okkar í
hóf og leita nýrra vistvænni orku-
gjafa. Þannig sýnum við umhyggju
fyrir jörðinni og þeim sem deila
henni með okkur. Þetta er sjálfsögð
og nauðsynleg sammannleg skylda
eins og skyldan að sýna hógværð og
auðmýkt gagnvart umhverfi okkar.
Arnfríður Guðmundsdóttir
Baldur Kristjánsson
Hjalti Hugason
Pétur Pétursson
Sigrún Óskarsdóttir
Sólveig Anna Bóasdóttir
guðfræðingar
Sýnum ábyrgð á Drekasvæðinu
Bestu loforð stjórnmála-
mannsins eru þau sem
sífellt má endurnýta,
veita kjósendum vonar-
glætu en auðveldara er að
japla á en ganga í. Gulrót
rétt utan seilingar. Afnám
verðtryggingar, endur-
skoðun kvótakerfisins og
jarðgangaframkvæmdir.
Kannist þið við rulluna?
Í orði kveðast stjórn-
málamenn vilja rétta
hlut landsbyggðarinnar, efla þar
minni og meðalstór fyrirtæki og
auðvelda ungu fólki að setjast þar
að og vinna fyrir sér. Það er vitað
hvað þarf: Trausta heilsugæslu.
Metnaðarfulla grunnmenntun.
Öruggar samgöngur. Hins vegar
er enginn skilningur á hvern-
ig þessir þættir reiða sig hver á
annan, sérstaklega samgöngurn-
ar. Af hverju teljast tryggar sam-
göngur ekki til velferðarmála?
Snjógöng
Á Austurlandi er traust heilsu-
gæsla og metnaðarfull grunn-
menntun en samgöngur er ekki
stólandi á. Hér eru hættulegustu
fjallvegir landsins, Oddsskarð og
Fjarðarheiði. Ef ekki má treysta
á að Fjarðarheiði sé fær, skipta
engu gæði grunnþjónustunnar
handan hennar. Þess vegna eru
tryggar samgöngur velferðarmál!
Í sérnámi mínu í heimilislækn-
ingum vinn ég á Akureyri en
líka á Egilsstöðum. Mér leyfist
ekki sá lúxus að halda tvö heim-
ili og hef því sest upp á múttu og
pápa á Seyðisfirði. Þau eru telj-
andi á fingrum mér þau skipti er
ég hef ekki lent í vetrarhremm-
ingum á Fjarðarheiði, hef ég þó
ekið hana alla mína ævi og gæti
ratað blindandi. Sem verður oft
raunin, þegar kófar í snjógöng-
unum og skyggnið vart meira en
nemur húddinu. Veðurmæli Vega-
gerðarinnar er ekki treystandi á;
veður og vindar eru sjaldnast eins
á Norðurbrún og í Mjósundum 10
km austar – hálfum kílómetra
ofan við sjávarmál. Að vita ekki
hvort eða hvenær og þá hversu
velktur maður mætir sjúk-
lingum dagsins er óþolandi!
Snjóhengja
Góð jarðgöng eru samgöngu-
bót til framtíðar. Fjárfesting, en
dýr. Getur hagkerfi, hnípið undir
billjón króna snjóhengju fjárfest í
jarðgöngum? Já – bjóðum eigend-
um aflandskrónanna að fjárfesta
í jarðgöngum og rekstri þeirra;
Holu ohf. Snjóhengjan notuð til
að fjármagna eins mörg jarðgöng
og hægt er, notendur greiða fyrir
að aka um þau og ríkið lofar að
kaupa krónubréfaeigendur út úr
fyrirtækinu á tuttugu árum eða
svo með hóflegri ávöxtunarkröfu.
Hagur krónubréfakóna – tryggt
að þeir fái fé sitt til baka í fyrir-
sjánlegri framtíð og öll ávöxtun
er betri en engin ávöxtun. Hagur
ríkisins – fjárfestir í innviðum
samfélagsins og léttir á sama
tíma þrýstingi á hagkerfið. Hagur
landsbyggðarinnar – ómetanlegt.
Kaldar kveðjur
Ég er Austfirðingur. Hér vil ég
búa, hér vil ég vinna og hér vil
ég efla samfélagið. Þó er kannski
svo að ráðamönnum og fólki
almennt finnist broslegt að vel
menntað ungt fólk sækist í að búa
austan við Úlfarsfell; fásinna að
það vilji skila einhverju í þorp-
ið sem ól það upp. Óþarfi að auð-
velda þeim að velja að búa úti á
landi. Sé ekki meiningin að senda
okkur svo kaldar kveðjur þá
verður að endurskoða hugarfar-
ið til samgöngubóta, sérstaklega
jarðganga. Ef ekki þá geta okkar
kveðjur líka verið kaldar, einkum
á kjördag.
Af snjógöngum,
snjóhengjum og
köldum kveðjum
Hoppar þú út í straum-
harða á fyrir hvern sem
er? Þessari spurningu
var varpað til okkar nem-
enda í félagssálfræði-
kúrs í HÍ fyrir nokkrum
árum. Manneskja fellur
út í straumharða á. Hvað
gerir þú? Flestir svöruðu;
hoppa út í að sjálfsögðu!
Við erum að tala um lífs-
hættulega á, áréttaði pró-
fessorinn. Það sló þögn á
hópinn, pínulítið skömm-
ustulegri þögn. Prófessorinn hélt
áfram: Ef við stæðum á bakkan-
um og okkar eigið barn dytti í ána?
Nú var ekkert hik á mönnum, allir
sögðust stinga sér án umhugsun-
ar. Þessu svari virtist prófessor-
inn ekki geta hnekkt. Við stökkv-
um út í eftir okkar eigin fólki, það
er óvefengjanlegt.
Þessar vangaveltur komu upp
í huga mér eftir að hafa hlust-
að á umræður í Silfri Egils þann
3. febrúar. Þar kom m.a. fram
að næstu ríkisstjórnar biði lík-
lega eitt það erfiðasta sem nokk-
ur íslensk ríkisstjórn hefði tekist
á við. Þetta er líklega ekki fjarri
sanni. Við lifum á viðsjárverðum
tímum og það mun reyna á þá sem
veljast á þing. Eins og þann sem
stendur á árbakka og horfir á eftir
annarri manneskju í elginn.
Við kjósendur þurfum að
spyrja okkur sjálfa: Hverj-
ir munu þora út í beljandi
elginn? Hverjir munu hefja
málefnið hærra en sjálft
sig? Hverjir munu þora
að gera mistök? Hverjir
munu þora að viðurkenna
mistök? Hverjir munu læra af mis-
tökum? Hverjir geta unnið mál-
efnalega með ólíkum aðilum við
björgunarstörfin? Við kjósendur
munum ekki þola annað kjörtíma-
bil þar sem málefnin rekur lífvana
niður ána. Við munum ekki þola
neinn rolugang. Þor og ákveðni
með árangur að leiðarljósi er það
eina sem þessi vinnusama þjóð á
skilið. Við megum ekki gleyma að
börnin okkar leika sér við árbakk-
ann. Ég set mitt traust á frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins. Ég er
þess fullviss hvaðan af landinu
sem þeir koma, muni þeir vinna
málefnalega með sér ólíku fólki.
Ég treysti því að þeir hefji þjóð-
þrifamál yfir sjálf sig. Ég treysti
því að þeir stingi sér út í beljandi
elginn og tryggi okkur Íslending-
um farsæla framtíð.
Hverjum treystir þú
út í beljandi elginn?
➜ Við lifum á við-
sjárverðum tímum og
það mun reyna á þá
sem veljast á þing.
➜ Þau eru teljandi
á fi ngrum mér þau
skipti er ég hef ekki
lent í vetrarhremm-
ingum á Fjarðarheiði,
hef ég þó ekið hana
alla mína ævi og gæti
ratað blindandi.
SAMGÖNGUR
Eyjólfur
Þorkelsson
læknir
STJÓRNMÁL
Lára
Óskarsdóttir
stjórnenda-
markþjálfi
NÁTTÚRU-
VERND
Björn
Guðmundsson
jeppaeigandi og
áhugamaður um
ferðafrelsi og
náttúruvernd
➜ Sú afstaða að allir eigi
rétt á að komast á alla staði
á vélknúnu farartæki er
löngu úrelt.
➜ Olíuvinnsla er eftir
sem áður dauðans alvara.
Henni fylgir óhjákvæmilega
nokkur mengun. Hún skapar
hættu á umhverfi sslysum
sem erfi tt mun að bæta á
jafn fjarlægum slóðum og
Drekasvæðið er.