Fréttablaðið - 14.02.2013, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 14.02.2013, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 14. febrúar 2013 | SKOÐUN | 27 Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS jafnlaunavottun.vr.is Óútskýrður launamunur kynjanna innan VR er nú 9,4%. Með Jafnlaunavottun VR geta framsækin fyrirtæki látið gera faglega úttekt á því hvort innan veggja þeirra séu greidd mishá laun fyrir jafnverðmæt störf. Leiðréttum launamun kynjanna. Eitt af vandamálum grunn- skólans er klisju kenndur málf lutningur sumra sveitar stjórnarmanna. Í grein Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur 31. janúar sl. er mikið um klisjur. Borgar fulltrúinn ver stærstum hluta greinar sinnar í að fjalla um hvað kjarasamningur grunn- skólakennara sé erfiður og flókinn og lætur í það skína að hann sé eitt helsta vandamál skóla- starfs á Íslandi. Þetta er ein elsta og þreyttasta klisja sveitastjórnar- manna. „Stagbættur kjarasamn- ingur“, „flókinn“ og að „… tilfinn- ing sé sú að hann hindri fram þróun og sveigjan leika í skólastarfi með fjölmörgum klásúlum um kennslu- skyldu, undirbúningstíma og kennsluafslætti“. Allt eru þetta þreyttar og gamlar lummur, settar fram án nokkurs rökstuðnings. Guði sé lof fyrir kennsluskyldu og undirbúningstíma. Það er eina vörn kennara gegn gegndarlausri ásókn sveitarfélaganna um síaukið vinnuframlag kennara. Hið rétta er að kjarasamningurinn kemur hvergi í veg fyrir eðlilegt skóla- starf og eðlilega skólaþróun. Allt frá árinu 2004 hefur verið far vegur í kjarasamningi grunnskólakenn- ara fyrir einstaka skóla til að sníða skólastarfið að sínum þörfum. Þeir skólastjórnendur og kennarar sem kjósa að haga störfum sínum með öðrum hætti en kveðið er á um í aðalkjarasamn ingnum geta það með góðu móti. Frá 2004 hefur þetta verið hægt og af tæplega 170 skólum á landinu hafa 3-5 skólar nýtt sér þetta árlega. Fjármagn vantar Það er ánægjulegt að sjá að það er ekki ágreiningur um að álagið og kröfurnar séu miklar og upp- talning á því sem veldur er ágæt hjá borgarfulltrúanum, „kennarar sinni betur stuðningi við börn með sérþarfir, bjóði upp á fleiri iðn- kúrsa, þverfaglega kennslu, ein- staklingsmiðað nám, tölvukennslu og svo má lengi telja“. Þetta er ekki eitthvað sem kennarar „segja“, heldur er það staðreynd. Staðreynd sem m.a. kemur fram í niðurstöðum kannana og vinnu rýnihóps á vegum Félags grunn- skólakennara og samninganefndar sveitarfélaga. Þessir aðilar lögðu mikinn tíma og peninga í viðamikla könnun og vinnu stórs rýnihóps til að kanna hvernig skólastarfið hefur þróast á síðustu árum. Megin niður staða aðila er sú að öðrum verkefnum kennara en kennslu hefur fjölgað mikið, nemenda hóparnir eru mun fjölbreyttari og tíminn til að sinna verkefnum er of lítill. Kennarar vinna mun meira en þeir eiga að gera og oft án þess að til komi greiðslur. Ekkert af þessu hefur nokkuð að gera með kjarasamning kennara, eins og klisjufræðingar halda fram. Það vantar fjármagn til skólanna! Ég tek undir með borgarfull- trúanum þegar hann segir að „landsmenn séu sammála um að greiða eigi vel fyrir þetta mikil- væga starf“. Ég held að þetta sé rétt en reynsla okkar kennara (eins og reyndar fleiri stétta sem sinna grunnþjónustu hérlendis) er því miður sú að þetta er gjarnan sett fram í blaðagreinum og í hátíðará- vörpum en ALDREI sjást neinar vísbendingar um framkvæmdir. Þetta er enn ein klisjan sem sett er fram. Hvenær ætla stjórnmála- menn að standa við stóru orðin? Hver þorir? Það verður gaman að sjá efndir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem m.a. kemur fram að eigi „að ráðast nú þegar í jafnlaunaátak með að- gerðum sem beinast að því að rétta hlut starfsstétta þar sem konur eru í miklum meirihluta“. Búnir að fá nóg Í ljósi niðurstöðu vinnu samnings- aðila um að verkefnum kennara hafi fjölgað mikið og skort á tíma til að sinna þeim lagði Félag grunnskólakennara fram margar hugmyndir til lausnar vandanum. Allt frá því að byggja skólastarfið upp út frá þörf hvers nem- anda fyrir kennslu og aðra þjónustu yfir í að laga ýmis atriði samningsins sem gætu haft áhrif á vand- ann. Skemmst er frá því að segja að þær hlutu lítinn hljómgrunn hjá viðsemj- endunum. Vandamál skólastarfs og grunnskólakennara er ekki kjara- samningurinn. Auðvitað má bæta hann. Grunnvandamálið er vilja- og/eða áhugaleysi sveitarfélaganna til að reka grunnskólann. Sveitar- félögin hafa ekki forgangsraðað í þágu menntunar. Það kostar að halda úti öflugu skólastarfi. Það er búið að skera niður í skólakerfinu ár eftir ár m.a. með fyrrgreindum afleiðingum. Nú er svo komið að skólastjórnendur eru búnir að fá nóg og nýlega hættu tveir þeirra störfum, þar sem þeir treysta sér ekki til að halda úti lögbundinni kennslu miðað við það fjármagn sem þeir hafa úr að spila. En auð- vitað er þetta allt kjarasamningum kennara að kenna! Því miður óttast ég að tækifærið til uppstokkunar sé að glatast. Ekk- ert af þeim hugmyndum sem fram hafa komið hafa hlotið hljómgrunn og því eru samningsaðilar stopp. Kennarar eru sérfræð ingar í öllu því er lýtur að kennslu og hafa sér- menntað sig í því. Þrátt fyrir það eru þeir í stanslausu stappi við sveitarfélögin sem virðast halda að skólinn sé verksmiðja sem er opin frá 8-16. Í þessari verksmiðju vilja þau nota lögmál rekstrar og við- skipta og gera kennara að starfs- mönnum við kennslufæribandið. Hvernig stendur á því að flestir sveitarstjórnarmenn virðast hafa miklu meira vit á skólastarfi en kennarar? ➜ Guði sé lof fyrir kennslu- skyldu og undirbúningstíma. Það er eina vörn kennara gegn gegndarlausri ásókn sveitarfélaganna um síaukið vinnuframlag kennara. Vandi skólastarfs felst ekki í kjarasamningi MENNTUN Ólafur Loftsson formaður Félags grunnskólakennara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.