Fréttablaðið - 14.02.2013, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 14. febrúar 2013 | SKOÐUN | 27
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
jafnlaunavottun.vr.is
Óútskýrður launamunur kynjanna innan VR er nú 9,4%.
Með Jafnlaunavottun VR geta framsækin fyrirtæki látið
gera faglega úttekt á því hvort innan veggja þeirra séu
greidd mishá laun fyrir jafnverðmæt störf.
Leiðréttum launamun kynjanna.
Eitt af vandamálum grunn-
skólans er klisju kenndur
málf lutningur sumra
sveitar stjórnarmanna. Í
grein Þorbjargar Helgu
Vigfúsdóttur 31. janúar
sl. er mikið um klisjur.
Borgar fulltrúinn ver
stærstum hluta greinar
sinnar í að fjalla um hvað
kjarasamningur grunn-
skólakennara sé erfiður
og flókinn og lætur í
það skína að hann sé eitt
helsta vandamál skóla-
starfs á Íslandi. Þetta er ein elsta
og þreyttasta klisja sveitastjórnar-
manna. „Stagbættur kjarasamn-
ingur“, „flókinn“ og að „… tilfinn-
ing sé sú að hann hindri fram þróun
og sveigjan leika í skólastarfi með
fjölmörgum klásúlum um kennslu-
skyldu, undirbúningstíma og
kennsluafslætti“. Allt eru þetta
þreyttar og gamlar lummur, settar
fram án nokkurs rökstuðnings.
Guði sé lof fyrir kennsluskyldu
og undirbúningstíma. Það er eina
vörn kennara gegn gegndarlausri
ásókn sveitarfélaganna um síaukið
vinnuframlag kennara. Hið rétta
er að kjarasamningurinn kemur
hvergi í veg fyrir eðlilegt skóla-
starf og eðlilega skólaþróun. Allt
frá árinu 2004 hefur verið far vegur
í kjarasamningi grunnskólakenn-
ara fyrir einstaka skóla til að sníða
skólastarfið að sínum þörfum. Þeir
skólastjórnendur og kennarar sem
kjósa að haga störfum sínum með
öðrum hætti en kveðið er á um í
aðalkjarasamn ingnum geta það
með góðu móti. Frá 2004 hefur
þetta verið hægt og af tæplega 170
skólum á landinu hafa 3-5 skólar
nýtt sér þetta árlega.
Fjármagn vantar
Það er ánægjulegt að sjá að það
er ekki ágreiningur um að álagið
og kröfurnar séu miklar og upp-
talning á því sem veldur er ágæt
hjá borgarfulltrúanum, „kennarar
sinni betur stuðningi við börn með
sérþarfir, bjóði upp á fleiri iðn-
kúrsa, þverfaglega kennslu, ein-
staklingsmiðað nám, tölvukennslu
og svo má lengi telja“. Þetta
er ekki eitthvað sem kennarar
„segja“, heldur er það staðreynd.
Staðreynd sem m.a. kemur fram
í niðurstöðum kannana og vinnu
rýnihóps á vegum Félags grunn-
skólakennara og samninganefndar
sveitarfélaga.
Þessir aðilar lögðu mikinn tíma
og peninga í viðamikla könnun og
vinnu stórs rýnihóps til að kanna
hvernig skólastarfið hefur þróast
á síðustu árum. Megin niður staða
aðila er sú að öðrum verkefnum
kennara en kennslu hefur fjölgað
mikið, nemenda hóparnir eru mun
fjölbreyttari og tíminn til að sinna
verkefnum er of lítill. Kennarar
vinna mun meira en þeir eiga að
gera og oft án þess að til komi
greiðslur. Ekkert af þessu hefur
nokkuð að gera með kjarasamning
kennara, eins og klisjufræðingar
halda fram. Það vantar fjármagn
til skólanna!
Ég tek undir með borgarfull-
trúanum þegar hann segir að
„landsmenn séu sammála um að
greiða eigi vel fyrir þetta mikil-
væga starf“. Ég held að þetta sé
rétt en reynsla okkar kennara (eins
og reyndar fleiri stétta sem sinna
grunnþjónustu hérlendis) er því
miður sú að þetta er gjarnan sett
fram í blaðagreinum og í hátíðará-
vörpum en ALDREI sjást neinar
vísbendingar um framkvæmdir.
Þetta er enn ein klisjan sem sett
er fram. Hvenær ætla stjórnmála-
menn að standa við stóru orðin?
Hver þorir? Það verður gaman
að sjá efndir á stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar þar sem m.a.
kemur fram að eigi „að ráðast
nú þegar í jafnlaunaátak með að-
gerðum sem beinast að því að rétta
hlut starfsstétta þar sem konur eru
í miklum meirihluta“.
Búnir að fá nóg
Í ljósi niðurstöðu vinnu samnings-
aðila um að verkefnum kennara
hafi fjölgað mikið og skort á tíma
til að sinna þeim lagði
Félag grunnskólakennara
fram margar hugmyndir til
lausnar vandanum. Allt frá
því að byggja skólastarfið
upp út frá þörf hvers nem-
anda fyrir kennslu og aðra
þjónustu yfir í að laga ýmis
atriði samningsins sem
gætu haft áhrif á vand-
ann. Skemmst er frá því að
segja að þær hlutu lítinn
hljómgrunn hjá viðsemj-
endunum.
Vandamál skólastarfs og
grunnskólakennara er ekki kjara-
samningurinn. Auðvitað má bæta
hann. Grunnvandamálið er vilja-
og/eða áhugaleysi sveitarfélaganna
til að reka grunnskólann. Sveitar-
félögin hafa ekki forgangsraðað
í þágu menntunar. Það kostar að
halda úti öflugu skólastarfi. Það er
búið að skera niður í skólakerfinu
ár eftir ár m.a. með fyrrgreindum
afleiðingum. Nú er svo komið að
skólastjórnendur eru búnir að fá
nóg og nýlega hættu tveir þeirra
störfum, þar sem þeir treysta sér
ekki til að halda úti lögbundinni
kennslu miðað við það fjármagn
sem þeir hafa úr að spila. En auð-
vitað er þetta allt kjarasamningum
kennara að kenna!
Því miður óttast ég að tækifærið
til uppstokkunar sé að glatast. Ekk-
ert af þeim hugmyndum sem fram
hafa komið hafa hlotið hljómgrunn
og því eru samningsaðilar stopp.
Kennarar eru sérfræð ingar í öllu
því er lýtur að kennslu og hafa sér-
menntað sig í því. Þrátt fyrir það
eru þeir í stanslausu stappi við
sveitarfélögin sem virðast halda að
skólinn sé verksmiðja sem er opin
frá 8-16. Í þessari verksmiðju vilja
þau nota lögmál rekstrar og við-
skipta og gera kennara að starfs-
mönnum við kennslufæribandið.
Hvernig stendur á því að flestir
sveitarstjórnarmenn virðast hafa
miklu meira vit á skólastarfi en
kennarar?
➜ Guði sé lof fyrir kennslu-
skyldu og undirbúningstíma.
Það er eina vörn kennara
gegn gegndarlausri ásókn
sveitarfélaganna um síaukið
vinnuframlag kennara.
Vandi skólastarfs felst ekki í kjarasamningi
MENNTUN
Ólafur
Loftsson
formaður Félags
grunnskólakennara