Fréttablaðið - 14.02.2013, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 14.02.2013, Blaðsíða 29
HANNAR EIGIN TÍSKULÍNU Undirfatafyrirsætan Alessandra Ambrosio, sem er þekktust fyrir að ganga tískupallinn fyrir Victoria‘s Secret, hannar nú sína eigin tískulínu. Hún verður kynnt vorið 2014 undir nafninu Alé by Alessandra. PRJÓNAVITLEYSA Hanna Jónsdóttir vöru- hönnuður setur viljandi inn villur í orð sem hún prjónar í ullarhúfur. MYND/ANTON Hanna Jónsdóttir vöruhönnuður segist hafa gaman af því að brjóta upp rótgróna íslenska handverks- hefð og hinar föstu skorður mál fræðinnar með því að bæta inn mannlegum mis- tökum. Skrifuð skilaboð milli fólks í dag séu enda full af innsláttar- og stafsetn- ingarvillum. Hún prjónar lopahúfur með orðum á og laumar viljandi inn villum. „Ég byrjaði á þessu þegar frændi minn bað mig að prjóna fyrir sig venjulega ullarhúfu. Ég var stödd á Hornafirði en stundaði þá nám í Design Academy Eindhoven og vildi fá að prjóna eitthvað út í húfuna. Við komum okkur saman um orðið Eystrahorn, nafn bæjarblaðsins á Hornafirði, og einnig heitið á tilkomu- mesta fjallinu fyrir austan, en þegar ég teiknaði upp munstrið hljóp í mig púki. Ég prjónaði Eistrahorn í húfuna og frændi minn átti ekki til orð þegar hann sá það. Ég reyndi að útskýra fyrir honum að ég hefði sett villuna viljandi inn til að vekja spurningar og umtal og að hann gæti líka verið viss um að það ætti enginn annar svona húfu,“ segir Hanna sposk. Upp úr þessu varð til lína af húfum. Dæmi um orð sem Hanna prjónar út í húfurnar eru; „Heima er pest,“ „Haustil- boð“ og „Rithöfhundur“. Þá snýr hún líka út úr ensku og prjónar út frasa eins og „Nice to meat you“ og „Midnight son“. Hún segist ekki vera að gera grín að lesblindu með villunum, þvert á móti komi húfurnar oft umræðu af stað. „Mörgum léttir. Lesblinda hefur verið óþarflega vandræðalegt mál lengi en við erum alls ekki fullkomin. Það vill líka svo til að með því að sleppa einum og einum staf komast fleiri orð fyrir á hverri húfu,“ segir Hanna en hún prjónar húfurnar gjarnan eftir sér- stökum pöntunum fólks sem vill fá húfur með villu í. „Ég hef haldið eina húfuafhendingu þar sem tíu húfuberar fengu afhenta húfu sem ég prjónaði sérstaklega fyrir hvern og einn og bað þá að bera höfuð- ið hátt. Þá sé ég fyrir mér að húfugreyin gætu orðið skemmtileg viðbót við ferða- mannaiðnaðinn sem mér finnst frekar einsleitur,“ segir Hanna. ■ heida@365.is VILJANDI VILLUR ÍSLENSK HÖNNUN Hanna Jónsdóttir vöruhönnuður prjónar stafsetningar- villur út í ullarhúfur úr íslenskum lopa sem hún kalla Greyj. Belladonna á Facebook Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is 2 fyrir 1 af öllum útsöluvörum Þú velur tvær flíkur af útsölunni og greiðir bara fyrir dýrari flíkina Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. Laugardaga frá kl. 10-14 FYRIR STÓRU STELPURNAR Fæst í D, DD, E, F, FF, G, GG, H, HH, J, JJ skálum á kr. 10.650,- buxurnar eru á kr. 4.990,- Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 www.tk.is Mikið af flottum tilboðum TÆKIFÆRISGJAFIR Margar gerðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.