Fréttablaðið - 14.02.2013, Side 34

Fréttablaðið - 14.02.2013, Side 34
KYNNING − AUGLÝSINGFermingarföt & skór FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 20132 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Anna er dönsk en hún lærði stílistafræði og tískuljós-myndun í London College of Fashion. Hún hefur verið gestakennari við fatahönnunarbraut Listaháskólans og kennt við tískuskólann Fashion Academy. Þegar Anna er spurð hvaða klæðnaður henti best ferm- ingarbörnum þessa árs er hún fljót til svars. „Ég myndi segja að stelpurnar ættu að horfa til tísku sjöunda ára tugarins, til dæmis fyrirsætunnar Twiggy sem var áberandi á þeim árum. Kjólarnir ættu að vera stuttir með einföldu sniði og í pastellitum, ljósum og björtum,“ segir Anna. „ Kjólarnir eiga að vera einlitir, sleppa blómamynstrum eða annars konar mynstrum. Ljósgulur litur er vinsæll, sömuleiðis ljós- blár og hvítur. Einlitar sokkabuxur ættu að vera við kjólinn í hvítu eða pastellitum. Ljósgulir litir verða vinsælir í sumar en einnig svartar og hvítar rendur. Það er svipað og var á sjöunda áratugnum.“ Anna segir að hárið á fermingarstúlkunum eigi að vera slegið og náttúrulegt. „Alls ekkert dúllerí eða skraut,“ segir hún og bætir við að það eigi líka við förðunina. „Þær ættu að sleppa varalit en vera með eyeliner ef þær vilja nota áberandi förðun.“ Bítlalegir strákar Ekki má gleyma fermingarstrákunum en Anna segir að þeir eigi að horfa til upphafstíma Bítlanna og Kinks, hljómsveita frá sjöunda áratugnum. „Bítlaútlit er mjög flott. Þeir mega vera í svörtum gallabuxum og Converse-skóm eða támjóum ökklastígvélum (chelsea-boot). Það er líka flott að vera í dökk- bláum, kremlituðum, röndóttum eða svörtum sjóliðapeysum og sleppa jakka.“ Klassískar mömmur Mömmurnar eiga hins vegar að vera klassískar. „Þær ættu ekki að klæðast mynstruðum kjólum heldur velja einföld og klassísk snið. Fermingarbörnin eiga að hafa athyglina,“ útskýrir Anna og segir að einfaldir skartgripir passi best þennan dag. „Ferm- ingarstúlkurnar ættu að hafa lítinn silfurkross, smáa eyrna- lokka og þumalhring en spara aðra skartgripi þennan dag.“ Anna hefur stíliserað nokkrar fermingarstúlkur hér á landi en hún hefur búið hér frá árinu 2004. „Fermingarbörn eru tán- ingar og þau mega vera töff,“ segir Anna sem segir að mikið sé gert með fermingar í heimalandi sínu Danmörku, ekki síður en hér á landi. Ættu að líta til Bítlanna og Twiggy Anna Clausen stílisti hefur mikla reynslu þegar kemur að tísku og hönnun. Hún hefur starfað hjá stórum erlendum vörumerkjum og heimsfrægum tímaritum. Anna hefur ákveðna hugmynd um hvernig fermingarbörnin ættu að klæðast þetta vorið. Twiggy er komin aftur. Tískan fer ávallt í hringi. Strákarnir ættu að líta til Bítlanna vilji þeir fylgja tískunni. Anna Clausen stílisti hefur unnið víða um heim fyrir þekkt vörumerki. MYND/ANTON Pastellitir. Ljósgulur litur passar vel í fermingarkjólana í ár. Golla kr. 6.990 Skyrta kr. 7.500 Buxur kr. 10.900 Slaufa kr. 2.690 Skyrta kr. 5.990 Slaufa kr. 2.690 Buxur kr. 10.900 Skyrta kr. 5.990 Slaufa kr. 2.690 Buxur kr. 10.900 Jakki kr. 14.900 Vesti kr. 7.990 Buxur kr. 7.990 Skyrta kr. 5.990 Bindi kr. 1.990 Golla kr. 6.990 Skyrta kr. 6.990 Slaufa kr. 2.690 Buxur kr. 7.500 Jakki kr. 17.900 Skyrta kr. 7.500 Buxur kr. 7.500 Slaufa kr. 2.690 Kringlan facebook.com/outfittersnationiceland

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.