Fréttablaðið - 14.02.2013, Side 36

Fréttablaðið - 14.02.2013, Side 36
KYNNING − AUGLÝSINGFermingarkjólar & skór FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 20134 NETVÆDDIR BINDISHNÚTAR Nettengdir fermingadrengir nútímans þurfa ekki lengur að stóla á pabba gamla eða afa til að kenna sér bindishnúta. Nú er hægt að sækja allan nauðsynlegan fróðleik í tölvuna og símann. Vefurinn www.totieatie.com ber saman kosti og galla algengustu bindis- hnútanna auk þess sem gefin eru góð ráð um hvernig bindishnútar henta ólíkum skyrtum. Myndrænar og auðskiljanlegar leiðbeiningar fylgja öllum bindishnútum. Vefurinn www.tie-a-tie.net gerir betur og birtir kennslumyndbönd við algengustu bindishnútana. Fjöldi smáforrita (öpp) er líka í boði en margir ferm- ingardrengir eiga snjallsíma eða spjaldtölvu. Fyrir iPhone má nálgast „How to Tie a Tie“ ókeypis inni á iTunes. Forritið hefur verið sótt af tíu milljón símanotendum og inniheldur leiðbeiningar um gerð þrjátíu bindishnúta en reyndar þarf að borga fyrir sumar þeirra. Android-símnotendur geta sótt „How to Tie a Tie“ án endur- gjalds sem inniheldur leiðbeiningar um gerð tuttugu bindishnúta en greiða þarf fyrir átta þeirra. Forritið sýnir á mynd- rænan hátt gerð bindishnúta og með aðstoð myndavélarinnar á spjaldtölvunni getur drengurinn horft á sjálfan sig á skjánum og fylgt leiðbeiningum á meðan. Einnig má nefna smáforritin Tie a Tie og Tie a Tie Platinum sem bæði eru ókeypis. Íhaldssamari fermingardrengir geta síðan alltaf fest kaup á bókinni „The 85 Ways To Tie a Tie. The Science and Aesthetics of Tie Knots“ eftir Thomas Fink og Yong Mao sem fæst í öllum betri netverslunum. Það er mikið að gera hjá Góa þessa dagana í Borgar-leikhúsinu þar sem hann syngur og steppar í hlutverki sótarans Berts í Mary Poppins. Hann gefur sér þó tíma til að skjót- ast í símann og ræða við blaða- mann um fermingardaginn. „Já, ég man mjög vel eftir þessum degi 10. apríl 1994, sunnudagur eftir páska. Bjartur og fallegur dagur. Athöfnin var í Hallgrímskirkju og ég var með veislu í safnaðarheim- ili kirkjunnar. Ég hugsa alltaf með hlýhug til þessa merkisdags.“ Viðburðarík veisla Gói tók virkan þátt í bæði skipu- lagningu veislunnar og veislunni sjálfri. „Ég hafði skoðun á því hvað átti að vera á boðstólum, en það var léttur hádegisverður. Svo voru litlar söngbækur á borðunum sem ég valdi lögin í. Ég hélt ræðu, spil- aði á píanó og söng lag með Palla vini mínum. Við systir mín spil- uðum saman; hún á þverflautu og ég á píanó, og svo spilaði ég undir fjöldasöng gestanna,“ segir Gói og hlær yfir því hve mikið hann var í sviðsljósinu þennan dag og bætir svo við: „Ætli ég sé ekki að gera það sama í leikhúsinu í dag og ég var að gera í fermingarveislunni, að koma fram.“ Góðir foreldrar Gói var mjög stressaður vegna veislunnar og æfði sig í marga daga. „Ég var alveg sveittur í lóf- unum. Mig langaði bara að standa mig vel og var mjög ánægður og stoltur eftir á, enda var þetta dagurinn minn. Mamma og pabbi voru mjög dugleg við að virkja mig í því að taka þátt í veislunni og hvöttu mig áfram eins og góðir for- eldrar gera. Ég kann þeim miklar þakkir fyrir það í dag. Ég ætla klár- lega að hvetja mín börn til hins sama þegar þau fermast.“ Lítill eftir aldri Gói var lítill eftir aldri og sein- þroska og fann vel fyrir því á ferm- ingardaginn. „Stelpurnar voru flestar orðnar miklu stærri en ég. Svo voru þær líka á háum hælum þannig að ég náði þeim svona upp á maga. Það er verst að meðfylgj- andi mynd skuli ekki vera af mér með fermingarsystkinum mínum. Þá hefði sést vel hve lítill ég var en ég gæti allt eins verið sex ára á þessari mynd.“ Það kom stöku sinnum fyrir að Góa væri strítt vegna stærðarinnar en hann lét það ekki á sig fá. „Nokkrir vinir mínir voru miklu stærri en ég og það komu stundir þar sem ég var viðkvæmur fyrir því. En svona heilt yfir pældi ég lítið í því og var frekar sáttur.“ Trúin og athöfnin Séra Karl Sigurbjörnsson, fyrrver- andi biskup, er pabbi Góa og því hefur trúin og kirkjusókn verið hluti af lífi hans frá unga aldri. „Það var aldrei neinn efi hjá mér varðandi trúna. Mér fannst þetta mjög hátíðleg og stór ákvörðun sem ég tók alvarlega. Athöfnin sjálf var mjög hátíðleg og falleg. Pabbi var þarna og orgel- og trompetleikur. Ég fékk alveg fiðr- ing í magann þegar ég gekk inn kirkjugólfið.“ Ráðlegg öllum að taka þátt „Ég hvet fermingarbörn til að taka virkan þátt og vera með í því að skipuleggja veisluna. Það er um að gera að koma fram og bjóða fólk velkomið. Þeir sem kunna að spila á hljóðfæri ættu endilega að troða upp. Nú, eða að syngja eða halda uppi borðtenniskúlu eða hvað sem hver kann að gera. Það gerir minninguna skemmtilegri. Maður er stressaður á meðan á því stendur en svo verður maður ótrú- lega stoltur af sjálfum sér og fyllist sigurtilfinningu.“ Tók virkan þátt Guðjón Davíð Karlsson, eða Gói eins og hann er alltaf kallaður, minnist fermingardagsins með hlýju í huga. Hann tók virkan þátt í undirbúningi veislunnar og spilaði á píanó, hélt ræðu, söng og skemmti sér með gestunum sem komu til að samgleðjast honum. Mamma og pabbi Góa voru mjög dugleg við að virkja hann í því að taka þátt í veislunni. „Þau hvöttu mig áfram eins og góðir foreldrar gera og kann ég þeim miklar þakkir fyrir það í dag.“ „Fermingarsystur mínar voru flestar miklu stærri en ég og á háum hælum í þokkabót þannig að ég náði þeim svona upp á maga,“ segir Gói og hlær. Ferming í Flash Ótrúlegt úrval af fermingar- kjólum Verð 9.990-16.990

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.