Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 37
Toppur: 5.995,-
Buxur: 9.995,-
Hálsmen: 3.995,-
Skór: Focus
Jakki: 11.995,-
Toppur: 5.995,-
Hálsmen: 3.995,-
Buxur: 9.995,-
Skór: Focus
Kjóll: 9.995,-
Sokkabuxur: 2.995,-
Skór: Focus
Strákarnir fara ánægðir út
Fjölbreytt úrval af fatnaði
fyrir fermingarstelpurnar
hjá Galleri Sautján.
Hattur: 8.995,-
Skyrta: 7.995,-
Jakkaföt: 22.995,-
Bindi: 2.995,-
Vesti: 6.995,-
Skór: 13.995,-
Klútur: 990,-
Jakkaföt: 22.995,-
Skyrta: 7.995,-
Slaufa: 2.995,-
Klútur: 990,-
Skór: 13.995,-
Jakkaföt: 22.995,-
Skyrta: 7.995,-
Bindi: 2.995,-
Klútur: 2.990,-
Skór: 13.995,-
Fermingarfötin eru mikilvæg á stóra deginum.
Í ár er fermingarlínan mjög fjölbreytt og hefur aldrei verið stærri.
,,Í ár lögðum við okkur fram um að bjóða upp á fjölbreyttan fatnað fyrir fermingarstrákana,
bæði hvað varðar gott verð og eins að notagildið væri mikið,“ segir Bjartur Snorrason,
verslunarstjóri í Galleri Sautján í Kringlunni, um fermingartískuna hjá strákum þetta árið.
,,Við bjóðum upp á virkilega falleg ljós og dökkgrá jakkaföt ásamt klassískum navy bláum
og svörtum sem eru alltaf jafn vinsæl. Fyrir þá sem vilj fara aðrar leiðir bjóðum við upp á
jakkana eða buxurnar stakar og eru þá strákarnir oft að taka gallabuxur við stöku jakkana
sem þeir geta svo notað í skólann eftir ferminguna.“
,,Úrvalið af skyrtum hefur aldrei verið eins fjölbreytt og núna í ár.
Við bjóðum upp á marga liti í skyrtum ásamt því að bjóða upp á fallegar
smáköflóttar bláar og svartar skyrtur sem hafa mælst mjög vel fyrir í ár.“
„Vestin njóta líka alltaf mikilla vinsælda og eru þá tekin bæði við gallabuxur,
skyrtu og bindi eða við jakkafötin sem þrískipt föt.“
,,Stíllinn hjá strákunum er innblásinn af tíðarandanum hverju sinni og vinsælir
sjónvarpsþættir einsog Mad Men hafa sett línuna hvað jakkafötin varðar.
Aukahlutir eins og fallegar slaufur og bindi ásamt litríkum vasaklútum
setja svo punktinn yfir i-ið.“
,,Converse skórnir eru svo alveg málið við fermingarfötin og strákarnir
eru mjög sáttir við að geta svo notað þá í skólann eftir ferminguna,
sé ekki minnst á foreldrana sem vilja vera praktískir við fatakaupin,“
segir svo Bjartur að lokum.
Fallegir litir og stelpuleg snið og gott verð gefur tóninn fyrir
fermingarlínuna hjá Galleri 17
„Við lögðum upp með að hafa fermingalínu sem væri bæði á hagstæðu verði
og hefði heilmikið notagildi. Kjólana er hægt að nota áfram sem sæta
sumarkjóla og jakkana og buxurnar er hægt að nota allan ársins hring.
Ungu stelpurnar eru orðnar mjög tísku meðvitaðar og komnar með fastmótaðar
skoðanir á því hvað þær vilja. Því fannst okkur mikilvægt að hafa fjölbreytt
úrval sem höfðaði til sem flestra,“ segir Sylvía Clothier, rekstrastjóri yfir
dömudeild Galleri 17. Í ár erum við ekki einungis með kjóla, heldur líka buxur,
toppa og jakka við. Kjólarnir eru síðari að aftan og teknir saman í mittið eins og
hefur verið svo vinsælt, bæði úr blúndu eða siffoni. Einnig erum við með peplum
kjóla sem þykja mjög móðins í dag. Fyrir þær sem vilja ekki vera í kjól erum við
með peplum toppa eða skyrtur við uppháar glansbuxur eða svokallaðar disco buxur.
Litirnir í ár fyrir utan að sjálfsögðu hvítt eru coral, mintugrænn, kremlitað, blátt og svart.
Fyrir þær sem velja svart þá er smart að vera í sokkabuxum í fallegum lit eða með sætu
mynstri við kjólinn. Við erum með frábært úrval af sokkabuxum, beltum og skarti þannig
að hver og ein getur fundið eitthvað við sitt hæfi
Í skóm hafa stelpurnar verið að taka svarta eða hvíta skó,
annaðhvort með litlum eða fylltum hæl og ég veit
að úrvalið í Focus skóverslunni er eitthvað sem
stelpurnar hafa verið mjög hrifnar af.
„Það er alltaf tilhlökkun hjá manni eftir þessum tíma árs,
þar sem við vitum hvað þetta er skemmtilegur tími.
Við höfum mjög gaman að því að fá að aðstoða þessar
ungu stelpur við að velja fötin og það er líka svo gaman
að sjá nýjar kynslóðir vaxa úr gras“ segir Sylvía að lokum.
Strákarnir í Galleri Sautján taka vel á móti þér
Stelpurnar í Sautján hjálpa
ykkur að finna rétta dressið