Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 40

Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 40
KYNNING − AUGLÝSINGFermingarföt & skór FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 20138 SATÍN EÐA BLÚNDA Fermingarhanskar, sem margar stúlkur bera á fermingardaginn, virðast fylgja tískustraumum eins og annað. Þeir eru oft úr satíni eða blúndu; sumir heilir en aðrir meira í ætt við grifflur. Fyrir mörgum eru fermingar- hanskar jafnsjálfsagðir og fermingarkyrtillinn og oft ganga þeir í ættir. Hvaðan hefðin er komin er þó nokkuð óljóst. Sumir líta svo á að þeir undirstriki sakleysi og hreinleika fermingarbarnsins en aðrir segja um hreinræktað tískufyrirbæri að ræða. Líklega eru þeir upprunalega til komnir vegna þess að stúlkur vildu vera fínar og snyrtilegar á fermingardag- inn. Segja má að börn séu tekin í fullorðinna manna tölu við fermingu. Því gæti verið skemmtilegt að nota gamla barnaskó til að skreyta fermingarborðið þar sem fermingarbarnið hefur nú slitið barnsskónum. Sem mótvægi við smábarnaskóna væri svo hægt að stilla upp skóm sem fermingarbarnið notar í dag og eru jafnvel einkennandi fyrir það sem það er að fást við, til dæmis ballettskó eða fótboltaskó. BARNSSKÓNUM SLITIÐ Verslu n i n Cosmo hef u r staðið framarlega í sölu á fermingar fatnaði síðustu ár og áratugi en þar er að finna fal- leg föt á fermingarstúlkur, mæður þeirra og ömmur. „Ég hef selt ferm- ingarfatnað í 26 ár og nú eru þær sem ég afgreiddi fyrst um sinn farnar að koma með sínar dætur. Eftir nokkur ár fer ég líklega að taka á móti þriðju kynslóð,“ segir Lilja Hrönn Hauksdóttir, eigandi Cosmo. Hún segir tískuna sjaldan hafa verið jafn skemmtilega og í ár. Það er mikið um blúndu- kjóla. Flestir eru stuttir og erma- lausir en margar taka ermar við. Undan farin ár hafa flestar ferm- ingarstúlkur verið í leggings við kjólana sína en nú eru það húð- lituðu sokkabuxurnar sem ráða ríkjum. Útkoman er virkilega dömuleg og smart,“ segir Lilja. Hún segir tískuna afar látlausa og sýnist henni það sama eiga við um hárið. „Það hefur átt það til að vera mjög krullað og svo- lítið yfirdrifið en nú heyrist mér það eiga að vera slétt og einfalt.“ Lilja hefur stundum hannað eigin fermingar línur og eins keypt hug- myndir annarra en í ár er úrvalið innflutt. Fatnaðurinn er frá Bret- landi, Frakklandi og Ítalíu. Hún segir kremhvíta litinn ráðandi í bland við ferskju- og appelsínulit og hvetur allar fermingarstúlkur til að koma og líta á úrvalið. Óvenjufalleg fermingartíska í ár Blúndukjólar eru áberandi í Cosmo í ár. Litirnir sem ráða ríkjum eru kremhvítur og ferskjulitaður. Eigandinn Lilja Hrönn Hauksdóttir, sem hefur selt fermingarfatnað í á þriðja áratug, segir tískuna sjaldan hafa verið fallegri. „Undanfarin ár hafa flestar fermingarstúlkur verið í leggings við kjólana sína en nú eru það húðlituðu sokkabuxurnar sem ráða ríkjum. Útkoman er virkilega dömuleg og smart,“ segir Lilja. Hún bendir á að í versluninni fást fermingarskartgripir í úrvali. MYND/BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON Frábært úrval 12.990 kr. 12.990 kr. 12.990 kr. 12.990 kr. ALLIR JAFNIR Í HVÍTUM KYRTLI Hugmyndin að hvíta fermingar- kyrtlinum er ekki mjög gömul. Þann 9. maí árið 1954 sá séra Jón M. Guðjónsson, prófastur á Akranesi, þá hugmynd sína verða að veruleika að fermingarbörn hans í Akraneskirkju klæddust hvítum kyrtli við fermingar- athöfnina. Síðan varð úr að öll fermingarbörn á Íslandi klæddust kyrtlum á fermingardaginn. Þetta var einkum gert til þess að enginn munur sæist á efnahag fjölskyldna, en sum börnin voru ríkmannlega klædd, meðan önnur voru tötralega til fara. Hefðin að klæðast hvítum kyrtli er rík en þrátt fyrir það er ekki skylda að klæðast honum þó fæstir sleppi því. Sumar stúlkur klæðast íslenska þjóðbúningnum á fermingar- daginn. Algengur misskilningur er að ekki megi hylja þjóðbúning- inn með hvíta kyrtlinum en það er ekki svo. Kyrtillinn er enn í dag boðberi þess að allir eru jafnir fyrir guði.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.