Fréttablaðið - 14.02.2013, Qupperneq 48
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
BAKÞANKAR
Björns Þórs
Sigbjörnssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. hreinsiefni, 6. í röð, 8. gras, 9. fugl,
11. í röð, 12. miklu, 14. þrætur, 16.
tímaeining, 17. af, 18. fugl, 20. pfn.,
21. loga.
LÓÐRÉTT
1. samtals, 3. spil, 4. ávaxtatré, 5.
þakbrún, 7. andstaða, 10. svörður, 13.
rangl, 15. rótartauga, 16. fiskur, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sápu, 6. lm, 8. sef, 9. lóm,
11. rs, 12. stóru, 14. þrátt, 16. ár, 17.
frá, 18. lóa, 20. ég, 21. lifa.
LÓÐRÉTT: 1. alls, 3. ás, 4. perutré, 5.
ufs, 7. mótþrói, 10. mór, 13. ráf, 15.
tága, 16. áll, 19. af.
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þeir sofa vel!
Held að þeir séu
ánægðir með
jólag jafir ársins!
Já það
ættu þeir
að vera!
Og það er ég
líka! Takk fyrir
skartgripina,
bókina og vínið!
Yuhh
welcomh!
Og eyrna-
lokkarnir! Svo ekki sé
talað um ...
Þessa aukagjöf
sem ég fann á
náttborðinu!
Og haltu
þér fast!
Það kemur
meira!
Hæmammamáégfátvöþúsundkall? Palli, þú heilsar
móður þinni ekki
svona!
Ó.
Nei.
Fyrirgefðu.
Hæmammaégersvangur-
hvaðerímatinn
Finnst þér hann
ekki góður? Ég
barði hann til
dauða og eldaði
hann sjálfur.
Hæ Kolla. Þetta
er...
...Solla. Veistu hvað
við... ...fengum
í jólag jöf?
Trampólín!
Það er
komið
að mér!
Hestur er alinn á Krít. Hann fer í sláturhús í Rúmeníu, kjötið er selt
til kjötvinnslu í Frakklandi og þaðan í
skyndiréttaverksmiðju í sama landi þar
sem því er blandað saman við tómat-
sósu, rotvarnarefni og pastaplötur. Úr
verður lasanja. Ferðalagið heldur áfram;
í sænskar umbúðir, í, segjum, frystinn í
Bónus og loks á disk hjá fólki í, segjum,
Reykjavík. Þetta er langur vegur; um sjö
þúsund kílómetrar; næstum sex hringir í
kringum Ísland.
EINHVERS staðar á leiðinni varð hest-
urinn (sem reyndar eru grunsemdir um
að hafi aldrei verið hestur heldur asni)
að nauti. Upp komast svik um síðir en
hvað ætli margir hestar (eða asnar)
hafi orðið að nauti áður en hið sanna
kom í ljós?
NÚ er í sjálfu sér ekkert að því
að borða hest (og líklega ekki asna
heldur) en það má náttúrulega ekki
selja hann sem naut. Hest á að selja
sem hest og naut sem naut. Hestar eru
hins vegar ódýrari á fóðrum og þar
sem hægt er að græða er reynt
að græða. Og tækifærin til að
svindla eru mýmörg þegar
vara fer um langan veg,
viðkomustaðirnir eru
margir og margir fara
um hana höndum.
EN burtséð frá þessu: Hvernig má það
vera að fólk vilji borða mat sem er þannig
útbúinn að ekki er hægt að segja til um
hverrar tegundar hann er? Að það finnist
hvorki á bragði, áferð né öðru hvort dýrið
sem orðið er að mat hneggjaði, baulaði
eða eitthvað annað?
OG lítil aukaspurning: Hvernig má það
vera að fólki sé selt lasanja frá Svíþjóð
þegar hráefnið var alið á Krít, slátrað
í Rúmeníu og unnið og hrært saman í
Frakklandi? Gildir þá einu hvort um er að
ræða hest, asna eða naut.
ÉG ætla að gera nokkur orð bandaríska
blaðamannsins og mataráhugamannsins
Michaels Pollan að mínum.
EKKI borða matarlíki, veldu alvöru mat
og forðastu verksmiðjuframleidd mat-
væli.
EKKI borða neitt sem amma þín hefði
ekki kannast við sem mat.
FORÐASTU mat sem auglýstur er í sjón-
varpi.
BORÐAÐU aðeins mat sem rotnar.
SÉ þessu fylgt eru minni líkur á að hægt
sé að svindla á þér og það sem meira er;
maturinn er miklu betri og hollari.
Hvað er í matinn?
Veistu
hver ég
var?
Siggi Hlö
Heitasta partýið í bænum!
Laugardaga kl. 16 – 18.30