Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 52
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2013
Félagsvist
20.00 Félagsvist Rangæinga og
Skaftfellinga verður í Skaftfellingabúð,
Laugavegi 178. Allir velkomnir og gott
með kaffinu.
Sýningar
17.00 Opnuð verður sýning á verkum
Ninnýar ( Jónínu Magnúsdóttur mynd-
listarmanns) í Artókei. Sýningin er
á Reykjavíkurtorgi á 1. hæð Borgar-
bókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15.
Hátíðir
09.00 Vetrar- og útivistarhátíðin Élja-
gangur fer fram á Akureyri yfir helgina.
Nánari dagskrá má finna á heima-
síðunni www.eljagangur.is.
Upplestur
18.00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
les annan Passíusálminn í Grafarvogs-
kirkju í tilefni föstunnar.
Umræður
17.00 Draumey Aradóttir kennari,
skáld og þýðandi bókarinnar Að velja
gleði talar í útgáfuhófi bókarinnar í
Eymundsson Austurstræti. Boðið verður
upp á tónlistaratriði og veitingar.
Tónlist
21.00 Boðið verður upp á alvöru Svart-
málm á Bar 11 þegar hljómsveitirnar
Abacination og Dynfari mæta á svæðið.
Aðgangur er ókeypis.
21.00 Fuglabúr FTT og Rásar 2 fer
fram á Café Rosenberg. Það eru Jónas
Sigurðs son, Ómar Guðjónsson og Krist-
jana Stefánsdóttir sem stíga á svið að
þessu sinni. Aðgangseyrir er kr. 2.000.
22.00 Magnús Einarsson, Eðvarð
Lárusson, Karl Pétur Smith og Tómas
Tómasson flytja tónlist eftir The Rolling
Stones á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg
8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
22.00 Hljómsveitin We Made God
spilar nýtt efni í bland við gamalt á
Dillon Bar. Hljómsveitin Texas Muffin
hitar upp og aðgangur er ókeypis.
22.00 Hljómsveitin Dikta heldur tón-
leika á efri hæð Faktorý.
Fyrirlestrar
17.15 Katrín Jakobsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra talar á erinda-
röð í Bókasafni Kópavogs um tímann.
Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
MYNDLIST ★★★ ★★
Lög unga fólksins
Davíð Örn Halldórsson, Guðmundur
Thoroddsen, Ingunn Fjóla Ingþórs-
dóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðar dóttir,
Marta María Jónsdóttir og Ragnar
Jónasson. Sýningarstjórar Aðalsteinn
Ingólfsson og Sigrún Sandra Ólafsdóttir.
LISTASAFN REYKJANESBÆJAR
Eins og fram kemur í sýningarskrá
er hugmyndin á bak við sýninguna
sú að tefla saman ungu fólki á svip-
uðum aldri sem allt hefur fengist
við málverkið, togað það aðeins
og teygt. Sýningin er litrík og má
segja að það sé eitt af því sem ein-
kennir listamennina sem hóp. Það
sem skilur þennan hóp frá öðrum
„málarakynslóðum“ er að áhrif úr
náttúrunni eru víðs fjarri en áhrif
úr dægurmenningunni, af tölvu- og
sjónvarpsskjáum, úr teiknimyndum,
tónlist og úr bíómyndum, komin í
þeirra stað.
Í verkum Davíðs Arnar Hall-
dórssonar má sjá greinileg áhrif
úr veggjakrotslist og mynstur og
litir minna á sjöunda áratug síð-
ustu aldar, hippamenninguna eins
og hún kemur til dæmis fram í Aust-
in Powers kvikmyndunum. Manni
koma til hugar ýmis plötuumslög
og gömul tónlistarmyndbönd, en
einnig er talsverður leikur og tilvís-
anir í teiknimyndaheim til staðar í
verkunum meðal annars. Einnig er
stundum stutt í áhrif eða til vísanir,
beinar eða óbeinar, í skreytilist
frumstæðra ættbálka.
Jóhanna Kristbjörg Sigurðar-
dóttir er með áhugaverðar vísanir
í arkitektúr og borgarlandslag. Það
er eitthvað við verkið Hluti af King-
dom Blue sem vísar til tímabils iðn-
væðingar fyrir um einni öld, en í
öðrum verkum er hún komin inn
fyrir veggi heimilisins. Allt þetta
er sett fram að hluta abstrakt og að
hluta hlutbundið, og litavalið minnir
á fyrri tíma, á áttunda áratug síð-
ustu aldar.
Verk Mörtu Maríu minna um
margt á vefnað, eða skjáhvílu í
tölvu, þar sem form, litir og línur
svífa um. Þetta er órólegur abstrakt
heimur.
Guðmundur Thoroddsen er bæði
með höggmyndir og málverk á sýn-
ingunni. Það er eitthvað við húm-
orinn í verkum hans sem minnir á
myndverk Hallgríms Helgasonar,
eins og til dæmis rjómakökumyndin
af fjallinu svífandi. Sterkasta verkið
hans er samt hausinn útskorni,
Ímyndaðir forfeður VI (Rockabilly
útgáfan ).
Ragnar hefur greinilega gaman
af því að vera myndlistarmaður og
leikur sér með listasöguna á sama
tíma og hann vísar í samtímann í
nokkrum ólíkum verkum. Nega-
tron og positron eru eins og mjög
pixlaðar ljósmyndir og geta virk-
að eins og skynvilla. Í málverkinu
þar sem hann sker út form og lætur
strigann lafa út má segja að hann sé
að vísa í listasöguna. Má þar nefna
fræg verk Lucio Fontana, en einnig
um leið er sterk tilvísun í föndur og
leiki barna.
Ingunn Fjóla, er líklega með
ágengasta „málverkið“ á sýning-
unni. Hún þenur miðilinn út í rýmið
með böndum, á áhugaverðan hátt.
Verkið gengur vel upp byggingar-
lega séð og er heillandi þrívíddar-
væðing málverksins.
Þóroddur Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Létt og skemmtileg
en fremur átakalaus sýning á verkum
ungra samtímamálara.
Náttúrulaus málverk
Í HLÍÐARFJALLI
Vetrarhátíðin Éljagangur
verður sett á Akureyri í dag.
Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is | Verslanir Vodafone | Verslanir og þjónustuver Símans 800 7000
BARDAGI ÁRSINS!
Taugarnar verða þandar á Wembley Arena 16. febrúar þegar Gunnar Nelson mætir hinum þrautreynda
bardagamanni Jorge Santiago í UFC. Misstu ekki af bardaga ársins á Stöð 2 Sport.
Ert þú með HD sjónvarp? Tryggðu þér aðgang að
frábærri dagskrá í bestu mögulegu myndgæðum.
FÁÐU MEIRA ÚT ÚR SJÓNVARPINU
GUNNAR NELSON laugardag kl. 20.00