Fréttablaðið - 14.02.2013, Síða 56
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
Fimmta myndin í hinum vinsæla
Die Hard-flokki er frumsýnd í
kvöld, heilum aldarfjórðungi eftir
að harðhausinn John McClane rak
nefið inn í bíóhúsin í fyrsta sinn.
Árið 1988 var gert mikið úr þeirri
staðreynd að hin upprunalega Die
Hard var meðal fyrstu myndanna
sem frumsýndar voru í íslensku
bíói sem bjó yfir THX-hljóðkerfinu,
sem þá þótti með þeim fullkomnari
í heiminum, en síðan hefur mikið
vatn runnið til sjávar. Ekki síst hjá
John McClane sjálfum.
Sem fyrr er það Bruce Willis
sem fer með hlutverk fyrr-
verandi löggunnar og spæjarans
McClane. Í þetta sinn ferðast hann
til Moskvu til að aðstoða son sinn
Jack, leikinn af Ástralanum Jai
Courtney, sem hefur verið hand-
tekinn í borginni. McClane eldri
bregður heldur betur í brún þegar
hann kemst að því að Jack er í
raun útsendari CIA og hefur verið
sendur til Moskvu til að koma í veg
fyrir stórhættulegt ráðabrugg sem
varðar viðskipti með kjarnorku-
vopn. John dregst á bólakaf inn
í atburðarásina, sem einkennist
venju samkvæmt af hasar, spennu
og kúlnahríð.
McClane-feðgar á
ystu nöf í Rússlandi
Bruce Willis kemur í bíó í fi mmta sinn í kvöld sem harðhausa-lögreglumaðurinn
John McClane í fi mmtu Die Hard-myndinni, A Good Day to Die Hard.
TVEIR HARÐIR Bruce Willis og Jai Courtney í hlutverkum sínum sem McClane-feðgarnir í A Good Day to Die Hard.
Í tilefni frumsýningar A Good
Day to Die Hard í Los Angeles
var afhjúpuð risavaxin vegg-
mynd af Bruce Willis í hlutverki
Johns McClane á lóð Fax-kvik-
myndaversins. Við afhjúpunina
sagði Willis að það hefði verið
stórskemmtilegt ævintýri að leika
John McClane síðustu 25 árin.
Risavaxinn Willis
Upphaflega átti myndin að
heita Die Hard 24/7 og voru uppi
getgátur um að von væri á ein-
hvers konar samruna Die Hard-
seríunnar og 24-þáttanna, þar sem
Kiefer Sutherland myndi leika kar-
akterinn Jack Bauer. Þetta var þó
aldrei staðfest af framleið endum
myndarinnar og titlinum var
breytt í A Good Day to Die Hard
snemma í framleiðsluferlinu.
Bruce Willis hefur þegar lýst
yfir áhuga sínum á að leika John
McClane einu sinni enn áður en
persónan sest í helgan stein. Jai
Courtney, sem leikur son McCla-
nes, vakti fyrst verulega athygli
sem Varro í Spartacus- þáttunum
og lék í síðast í Tom Cruise-mynd-
inni Jack Reacher. Það er svo
Þjóðverjinn Sebastian Koch, sem
fer með hlutverk aðalillmennisins,
hins rússneska Yuri Komorov,
og reynist McClane- feðgunum
óþægur ljár í þúfu. Koch er virtur
leikari í heimalandi sínu og hefur
þar unnið til fjölmargra verð-
launa.
Leikstjórinn John Moore er Íri,
fæddur árið 1970, og sló fyrst í
gegn með stríðsmyndinni Behind
Enemy Lines með Owen Wilson og
Gene Hackman árið 2001. A Good
Day to Die Hard er hans fimmta
mynd í fullri lengd.
Myndin fær ágætis dóma víðast
hvar og sem dæmi hlýtur hún 7,2 í
einkunn á vefsíðunni IMDb.com.
Hin alræmda ítalska hryllingsmynd Cannibal Holocaust er næsta
mynd sem verður tekin til sýningar á vegum framtaksins Svartra
sunnudaga í Bíói Paradís.
Myndin, sem leikstýrt er af Ruggero Deodato, er frá árinu 1980.
Hún var gerð upptæk af myndbandaleigum hérlendis eftir að sá
kvittur komst á kreik að kona hefði í raun og veru verið myrt fyrir
framan kvikmyndavélarnar. Það reyndist þó uppspuni.
Önnur hryllingsmynd, hin bandaríska The Blair Witch Project, er
undir miklum áhrifum frá Cannibal Holocaust, meðal annars þeirri
tækni að hafa tökuvélina á sífelldri hreyfingu.
Eins og áður sagði verður Cannibal Holocaust sýnd í Bíói Paradís
sunnudagskvöldið 17. febrúar.
Alræmd ítölsk mynd
á sunnudagskvöld
Cannibal Holocaust verður sýnd í Bíói Paradís.
CANNIBAL HOLOCAUST Verður sýnd í Bíó Paradís á sunnudagskvöld.
Kvikmyndin Warm Bodies býður
upp á góða blöndu af hasar, gríni
og rómantík og verður hún frum-
sýnd í dag, á Valentínusardag.
Dagsetningin er viðeigandi þar
sem myndin fjallar um óvenju-
legan uppvakning sem verður
ástfanginn og öðlast við það
hjartsláttinn á ný. Nicholas Hoult
leikur uppvakninginn, sem gengur
undir heitinu R þar sem nafn hans
í lifanda lífi byrjaði á þeim staf. R
man lítið eftir lífi sínu sem mann-
eskja og hefur ekki hugmynd um
hvernig hann endaði sem upp-
vakningur. Einn daginn þegar
R er í fæðuleit með öðrum upp-
vakningum hittir hann Julie og í
stað þess að tæta hana í sig eins
og uppvakningar gera finnur
hann þörf fyrir að vernda hana
fyrir hinum uppvakningunum
sem og öðrum hættum. Á sama
tíma breytist hann stöðugt meir
og verður mannlegri.
Teiknimyndin um Öskubusku í
villta vestrinu verður svo frum-
sýnd á morgun. Ævintýrið fræga
er hér fært yfir í villta vestrið þar
sem Öskubusku er skellt í kúreka-
gallann, en hún vinnur sem áður
fyrir vonda stjúpmóður sína og
stjúpsysturnar tvær. Hún bregður
sér þó í nýtt hlutverk þegar her-
togaynjunni er rænt og hún fer
af stað í ævintýralegan leiðangur
til að bjarga henni. Álfrún Helga
Örnólfsdóttir og Sigurður Sigur-
jónsson eru meðal þeirra sem ljá
persónum rödd sína.
Beyond the Hills er svo ný
mynd eftir rúmenska leikstjórann
Cristian Mungio og verður hún
frumsýnd í Bíói Paradís á morgun.
Hún fjallar um tvær konur sem
ólust upp saman á munaðarleys-
ingjahæli í Rúmeníu. Leiðir þeirra
skiljast þegar þær verða átján ára
en þegar þær hittast á ný hefst
atburðarás sem er í senn átakan-
leg og dularfull.
- trs
Fjölbreyttar myndir helgarinnar
Uppvakningar verða ástfangnir, Öskubuska verður hetja villta vestursins og
rúmenskar uppeldissystur lenda í dramatískum ævintýrum í bíói um helgina.
ÁSTFANGIN Óvenjulegi uppvakningurinn R verður ástfanginn af Julie og reynir sitt
besta til að vernda hana.
Kvikmyndin Catch 22, eða réttara
sagt leikstjórinn Mike Nichols, lék
stórt hlutverk í því að tónlistar-
mennirnir vinsælu Paul Simon og
Art Garfunkel slitu samstarfi sínu
árið 1970. Þessu greindi Garfunkel
frá í vikunni.
Leikstjórinn Nichols hafði valið
báða tónlistarmennina í hlutverk
í myndinni, sem hann gerði eftir
skáldsögu Josephs Heller. Hlutirnir
æxluðust þó þannig að hlutverk
Garfunkels varð stærra en í fyrstu
var ætlað en Simon var klipptur
alveg út úr myndinni. Þetta skap-
aði spennu sem að lokum reið sam-
starfinu að fullu, að sögn Garfun-
kels. Simon samdi eitt vinsælasta
lag dúettsins, The Only Living Boy
in New York, meðan hann beið
eftir því að Garfunkel skilaði sér
aftur til heimaborgar félaganna að
loknum tökum á Catch 22.
Simon & Garfunkel
hættu vegna Catch 22
Art Garfunkel kennir leikstjóra um samstarfsslitin.
SIMON & GARFUNKEL Slitu samstarfi
árið 1970.
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*S
am
kv
æ
m
t p
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t G
al
lu
p
nó
v.
-s
ep
t.
20
12
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Það er hvergi betri staður fyrir fjölpóst en inni í Fréttablaðinu.
60% landsmanna skoða fjölpóst. Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað!
75% íbúa höfuðborgarsvæðisins lesa Fréttablaðið daglega.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi orn@365.is
Útvegum einnig hagstæð verð í prentun.