Fréttablaðið - 14.02.2013, Side 58

Fréttablaðið - 14.02.2013, Side 58
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42 ?Ég vildi athuga hvort þú kann-aðist við síðuna „Your brain on porn“ og hvort þú hefðir kynnt þér hvort að eitthvað vit væri í henni? Ég er klámfíkill og þegar ég áttaði mig á því og fór að leita mér stuðn- ings rakst ég á þessa síðu og hún var frábær til að skilja hvernig fíknin virkar og hvaða áhrif inter- net-klám hefur á mig. Þarna er gengið út frá því að maðurinn sé í raun bara dýr, sem við erum, og að klám í dag sé allt annað en það var áður, að sá fjöldi „hugsan- legra maka“ sem við finnum á netinu hafi áhrif á það hvernig við vinnum úr taugaboðefnum og búi til fíkn. Þú hefur töluvert vægi og nærð til fjölda fólks með pistlunum þínum. Mér þætti vænt um að þú gætir fjallað um þetta efni, það er áhrif internet-kláms á heilann og hugsunarferli. SVAR Ég vil byrja á því að taka það skýrt fram að ég er ekki sér- fróð um fíkn, en sem best ég fæ lesið um klámfíkn (og kynlífsfíkn) eiga þær margt skylt við aðrar tegundir fíkna. Þetta er tiltölu- lega „ný“ fíkn og því lítið vitað um hana. Sérfræðingar eru ekki á einu máli um að þetta teljist til fíknar, en við vitum að heilinn bregst við þegar horft er á kynferðislegt efni. Hvað ræður því hver verður fíkill og hver ekki er svo flóknari og stærri umræða sem ég býð taugasálfræðingum að fjalla nánar um. Vefsíðan sem þú vísar í hefur margt til síns máls en lestu hana með gagnrýnum augum því þar má einnig finna ýmsar rangfærslur. Íslenskir piltar byrja að horfa á klám um ellefu ára aldurinn, horfa oftar á klám en stelpur og eiga Norðurlandamet í klámáhorfi. Þegar ég fjalla um þetta í kyn- fræðslu fyrir grunnskólanema segi ég krökkunum að klám sé orðið að vandamáli ef þau geta ekki hugsað um eitthvað kynæsandi og orðið æst. Ef þau þurfa að hafa tölvuna í gangi þá geti það verið vísir að vandamáli og þá sé vissara að leggja tölvuna til hliðar í bili, allavega í þessum tilgangi. Þetta er svo orðið enn stærra vandamál ef viðkomandi getur ekki stundað kynlíf með annarri manneskju, eða kýs að gera það ekki, og tölvan verður eini „bólfélaginn“. Það er hins vegar ekki alveg svo klippt og skorið að um fíkn sé að ræða því hér geta margvíslegir þættir haft áhrif, til dæmis samskipti, aðstæður og sjálfstraust. Auðvelt aðgengi að klámi og skortur á kyn- fræðslu er enn ein birtingar mynd mikilvægis þess að hafa virka kynfræðslu, bæði heima fyrir og í skólanum. Við eigum að geta þjálfað og frætt einstaklinga í að velja af skynsemi og temja sér hóf í hvers konar neyslu. Afhjúpum klám, sýnum hvað það er og kenn- um um leið hvað kynlíf er. Við höfum farið þá leið í for vörnum gegn öðrum fíknum og tekist ágætlega. Enn og aftur er fræðsla og gagnrýnin hugsun okkar besta svar. KYNLÍF TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is Íslenskir piltar eiga met í áhorfi á klámi Anna Gunndís Guðmunds- dóttir leikkona og Einar Aðalsteinsson leikari Ár saman: Eitt og hálft ár. Hvar hittust þið fyrst? Einar: Við hittumst fyrst á hádegisfundi heima hjá Maríu Sigurðardóttur, þáverandi leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar. Það var verið að velja í hlut- verk fyrir Svörtu kómed- íuna. Svo lékum við saman í þeirri sýningu og eftir hana fórum við fyrst í sleik. Þetta var ósköp venju- legur hádegishitt ingur en mig minnir að Önnu hafi svo vantað start á bílinn sinn eftir hann og þetta hefði geta orðið alveg ógeðslega rómantískt en ég er svo mikill viðvaningur að ég vissi ekki einu sinni hvar rafgeymirinn var og klúðraði þessu algjörlega. Anna Gunndís: Við hittumst fyrst á fundi með Maríu Sigurðar- dóttur. Ég man að ég hugsaði: Hmmm, lítur hann svona út. Af hverju er hann í þessari peysu? Mér fannst peysan eitthvað skrítin, ég held að hann sé reyndar búinn að henda henni núna. Fundurinn var um verkið sem var verið að ráða í og við vorum ekki alveg sammála um hvaða hlutverk ég ætti að leika, mér fannst að ég ætti að leika eitt hlutverk og honum fannst annað, en ég fékk mínu framgengt. Við vorum yngstu leikararnir í verkinu og urðum rosalega góðir vinir strax og fórum mikið á kaffihús, en þá var þetta allt bara á vinnubasis. Pakksaddur á fyrsta stefnumótinu Í tilefni dagsins fór Fréttablaðið á stúfana og spurði pör meðal annars hvernig fyrsta árið í sambúð og fyrsta stefnumótið hefði gengið. Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran kokkur og Björn Árnason ljósmyndari Ár saman: Fjögur ár. Hvernig var fyrsta stefnumótið? Hrefna: Ég bauð Bjössa á deit og hann sagði fyrst já, en dró það svo til baka. Við enduðum samt á því að fara út að borða á Orange sem var og hét. Ég hafði talað við kokkana þar um að gera vel við okkur og frændi Bjössa, sem er líka kokkur, var að vinna í eldhúsinu það kvöld. Við fengum alveg ótrúlega mikinn mat og Bjössi hafði aldrei upplifað svona lagað áður. Það er dálítið fyndið að vera kokkur og fara út að borða, allir vilja gera svo vel við mann. Við fengum nautakjöt í aðalrétt og Bjössi þurfti tutt- ugu mínútur undir fersku lofti eftir réttinn. Björn: Við Hrefna höfðum kannast hvort við annað í mörg ár áður en við byrjuðum að hittast. Hún bauð mér oft út að borða fyrsta mánuðinn okkar saman. Um tveimur vikum eftir að við byrj- uðum að hittast fórum við út að borða á Orange þar sem frændi minn vann sem kokkur. Oftast þegar við förum út að borða hérna heima veljum við matinn ekki sjálf, heldur velja kokkarnir ofan í okkur. Þetta kvöld kom hver rétturinn á fætur öðrum og Hrefna hafði stimplað það inn í hausinn á mér að það væri dónalegt að klára ekki réttina og ég tók því mjög alvarlega. Réttirnir urðu fleiri og fleiri og þegar þetta var loks búið var ég svo saddur að ég hélt í alvörunni að ég mundi deyja. En smá ferskt loft og nokkrir drykkir björguðu lífi mínu og allt fór vel. Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur og Felix Bergsson leikari Ár saman: Fagna sautján árum saman á morgun. Hvernig gekk fyrsta árið ykkar í sambúð? Felix: Fyrsta árið í sambúð gekk gríðarlega vel. Það gekk í raun svo vel að ég var alveg sannfærður um að þarna væri minn lífsförunautur kominn. Það voru auðvitað einhverjir hnökrar eins og í öllum samböndum, hvort sem það eru ástarsambönd eða ekki. Fólk þarf fyrst hvort að kynnast sérkennileg- heitum annars og sætta sig við þau. Það fyrsta sem maður lærir í sambúð er að maður breytir ekki fólki. En þessi sautján ár hafa gengið afskaplega vel og verið laus við dramatík. Baldur: Ég man ekki hvor okkar stakk upp á því að flytja inn saman, það er svo langt síðan. En ég flutti inn til Felix í lok mars, rúmum mánuði eftir að við byrjuðum saman. Þetta gerðist allt mjög fljótt en sambúðin gekk strax einstaklega vel. Við vorum alveg lausir við að þurfa að koma á einhverri reglu um hver gerði hvað á heimilinu, við gerðum bara það sem þurfti að gera og þannig er það enn. Þegar það er meira að gera hjá mér sér Felix frekar um heimilishaldið og öfugt. Þetta er líklega eins og í öllum samböndum, menn þurfa að mynda einhvern takt í því að fara saman í gegnum lífið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.