Fréttablaðið - 14.02.2013, Qupperneq 60
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
Tónleikar Matthíasar Matthíasar
og félaga í Dúndurfréttum í til-
efni 40 ára afmælis plötunnar
Dark Side of the Moon með Pink
Floyd hafa fallið í kramið hjá
íslenskum tónlistarunnendum.
Miðar á tónleika sveitarinnar
í Eldborgarsal Hörpu 20. apríl
seldust upp á aðeins tveimur
klukkustundum og því hefur
verið ákveðið að halda auka-
tónleika síðar um kvöldið. Einir
tónleikar í Hofi eru einnig fyrir-
hugaðir 24. apríl. Samanlagt hafa
Dúndurfréttir selt
yfir tvö þúsund
miða á þessa
þrenna Pink
Floyd-tónleika,
sem hlýtur að
teljast góður
árangur. - fb
Tvö þúsund
miðar seldir
MATTI MATT
Er í Dúndur-
fréttum.
Kaffibrúsakarlarnir, sem snúa
aftur með sýningu í Austurbæ á
næstunni, hafa fengið til liðs við
sig tvo þekkta skemmtikrafta,
þau Helgu Brögu Jónsdóttur og
Lalla töframann.
Helga Braga kemur fram
með gamanmál, dans og söng
og mun hún vafalítið passa við
Kaffibrúsakarlana eins og flís
við rass. Lalli töframaður hefur
verið brautryðjandi í seinni
bylgju töframanna á Íslandi.
Hann hefur gefið út þrjá mynd-
diska með töfrabrögðum og hefur
verið duglegur við að töfra úti
um allt land.
Taka þátt í
grínsýningu
HELGA BRAGA Leikkonan hefur gengið
til liðs við Kaffibrúsakarlana.
MYND/ÓLAFUR ÞÓRISSON
Tónlistarsjóðurinn Kraumur
hefur ákveðið að styrkja tónlistar-
hátíðina Sónar í Reykjavík um eina
milljón. Upphæðin gildir fyrir árin
2013 til 2014 og verður síðari helm-
ingurinn greiddur þegar undirbún-
ingur fyrir Sónar 2014 hefst.
„Svona verkefni þurfa stuðn-
ing til að ganga úr barndómi. Við
höfum alltaf litið á Sónar Reykja-
vík sem sjálfbæra hátíð eftir svona
tvö til þrjú ár en okkur hefur svo-
lítið vantað stuðninginn núna. Það
er frábært að Kraumur skuli sjá
sér fært að styrkja okkur,“ segir
skipuleggjandinn Björn Steinbekk.
Kraumur með
styrk til Sónar
ÁNÆGÐUR Skipuleggjandinn Björn
Steinbekk er ánægður með styrkinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ítalska dagblaðið Chi birti í gær
bikinímyndir af Katrínu, her-
togaynju af Cambridge, á for-
síðunni. Myndirnar eru tekn-
ar í nýafstöðnu fríi Katrínar og
eiginmanns hennar, Vilhjálms
Bretaprins, á eyjunni Mustique
í Grenadines-eyjaklasanum og
eru birtar undir fyrirsögninni
„Maginn stækkar“. Breska kon-
ungshöllin fordæmir myndbirt-
inguna en Katrín á von á fyrsta
barni þeirra hjóna. „Við erum
mjög vonsvikin yfir að myndir
af parinu hafi verið birtar enda
á það líka rétt á sínu einkalífi,“
segir talsmaður hallarinnar sem
hefur beðið fjölmiðla um að gefa
Katrínu aukið rými á meðan á
meðgöngunni stendur.
Aðeins er hálft ár síðan franska
blaðið Closer birti myndir af
Katrínu berbrjósta á sumarleyfis-
stað parsins en sú myndbirting
var einnig fordæmd og að lokum
bönnuð.
Þá var blaðið Chi einnig í hópi
þeirra fáu fjölmiðla sem birtu
myndirnar. Nýju myndirnar
virðast þó ekki vera af sama toga.
Myndir birtar af Katrínu í bikiníi
Breska konungshöllin fordæmir myndbirtingu ítalska tímaritsins Chi.
BIKINÍMYNDIR Myndir af Katrínu her-
togaynju á baðfötunum prýða forsíðu
ítalska blaðsins Chi. NORDICPHOTOS/GETTY