Fréttablaðið - 14.02.2013, Blaðsíða 64
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
FÓTBOLTI „Ég á ekkert í neinum ill-
deilum við stjórn Fram en ég þarf
að vita að félagið vilji standa sig
vel og verði með gott lið. Þetta
er stórt ár fyrir mig, ég þarf að
standa mig vel og þá verð ég að
vera á rétta staðnum. Stefnan
hjá mér er að spila vel í sumar og
komast að erlendis eftir tímabilið.
Þá þarf ég að vera á réttum stað,
sama hvort það er Fram eða annað
lið á Íslandi. Ég vil bara hugsa um
fótbolta í ár og sleppa öllu rifrildi
og leiðindum,“ segir Steven Len-
non, framherji Fram, en það er
ekki alveg útséð með að hann verði
áfram í Safamýrinni. Þar hafa
verið vandamál upp á síðkastið.
„Nýja stjórnin vildi semja við
mig upp á nýtt því ég er dýr leik-
maður. Þeir þurfa líka að greiða
fyrir bíl og íbúð fyrir mig. Gamla
stjórnin var búin að lofa mér bíl en
nýja stjórnin segir að það sé ekki
í samningnum. Þess vegna geti
ég ekki fengið bíl. Ég tjáði þeim
að mér væri alveg sama um það
enda hefði mér verið lofað því að
fá bíl,“ sagði Lennon en hann er
búinn að fá bíl en félagið vill að
hann greiði fyrir bílinn sjálfur.
„Ég held að þetta sé að bjargast og
að þeir muni borga fyrir þetta svo
ég spili glaður með Fram.“
Málið er í höndum Framara
Það vakti mikla athygli síðasta
sumar er Lennon lýsti því yfir að
hann vildi komast til KR. Af því
varð ekki og hann fótbrotnaði
skömmu síðar.
„Það er enn áhugi á mér frá
öðrum félögum. Ég var næstum
því farinn til KR en félagið vildi
halda mér til þess að geta fengið
aðra leikmenn til félagsins. Von-
andi gengur það eftir. Ég þarf á
því að halda að standa mig vel,
sama hvort það er með Fram, FH
eða KR. Ef Fram hefur ekki efni á
því að halda mér þá fer ég líklega.
Þetta mál er í höndum Framara,“
segir Lennon en hann segist vita
að það hafi komið tilboð frá öðrum
félögum í sig en Fram vilji ekki
selja.
„Ef Fram heldur áfram að
standa við sitt þá hef ég ekki yfir
neinu að kvarta. Ef ég hætti að fá
greitt þá verð ég svekktur eins og
allir aðrir launþegar. Þeir vita að
ég er atvinnumaður sem leggur sig
alltaf allan fram. Ég þarf að nýta
hvert tækifæri til þess að sýna mig
og sanna fyrir öðrum liðum.“
Verða að standa við sín loforð
Lennon segir að það séu enn við-
ræður á milli sín og félagsins um
framhaldið.
„Stjórnin hefur sýnt áhuga á að
halda mér og hún veit hvað þarf
til þess. Þeir verða að standa við
sín loforð. Við erum að vinna í að
breyta samningnum mínum og það
verður að koma í ljós hvað verður.
Ég vil ekki vera með neinar yfir-
lýsingar. Vonandi fáum við botn
í þetta á næstu vikum en ég ætla
ekki að taka á mig neina launa-
lækkun. Ef þeir treysta sér ekki
í að standa við sitt þá verða þeir
að sleppa mér. Þeir hafa verið að
reyna að draga af laununum fyrir
bílnum og íbúðinni þar sem það var
ekki í samningnum. Það var samt
búið að lofa mér þessum hlutum.
Þeir eru að reyna að láta mig borga
fyrir hluti sem ég er ekki sáttur
við. Ef þeir standa við sitt er ég
meira en til í að vera áfram,“ sagði
framherjinn og bætti við.
„Ég veit þeir eru að reyna sitt
besta til þess að standa við samn-
inginn. Við áttum fund um daginn
og þeir ætluðu að hafa samband
daginn eftir. Það eru meiri en tíu
dagar síðan þannig að þeir eru
greinilega enn að hugsa sinn gang.
Ég bíð enn eftir svörum og erfitt
að segja hvernig þetta mál fer.“
Lennon hefur lítið spilað með
Fram á undirbúningstímabilinu
en það hefur ekkert með peninga
að gera.
„Ég hef verið í miklum vand-
ræðum með ökklann á mér upp á
síðkastið en ég held það sé út af
undi rlaginu. Gervigrasið fer ekki
vel í mig. Ökklinn er viðkvæmur
eftir brotið síðasta sumar þannig
að ég fer mér hægt. Það liggur
ekkert á enda langt í sumarið,“
segir Lennon. henry@frettabladid.is
Lennon í launadeilu
við Framara
Steven Lennon, framherji Fram, segir að það sé ekki útséð með að hann spili í
búningi félagsins næsta sumar. Hann deilir nú við félagið vegna loforða frá fyrri
stjórn knattspyrnudeildar. Hann segir ekki koma til greina að lækka launin sín.
MIKILVÆGT ÁR Lennon er samningslaus í lok sumar og þarf á því að halda að spila
vel í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þeir eru að reyna
að láta mig borga fyrir
hluti sem ég er ekki
sáttur við. Ef þeir standa
við sitt er ég til í að vera
áfram.
Steven Lennon, leikmaður Fram
SPORT
ÚRSLIT
SÍMABIKAR KARLA
8-LIÐA ÚRSLIT
ÍR - HAUKAR 24-20 (14-7)
Mörk ÍR (skot): Sturla Ásgeirsson 7/2 (9/2),
Björgvin Hólmgeirsson 5 (9), Ingimundur
Ingimundarson 4 (4), Guðni Már Kristinsson 4 (8),
Davíð Georgsson 2 (4), Jón Heiðar Gunnarsson 1
(1), Sigurjón Friðbjörn Björnsson 1 (2),
Varin skot: Kristófer Fannar Guðmundsson 18
(38/2, 47%).
Hraðaupphlaup: 3 (Sturla 2, Guðni Már 1)
Fiskuð víti: 1 ( Jón Heiðar 1)
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Hauka (skot): Árni Steinn Steinþórsson 3
(4), Freyr Brynjarsson 3 (8), Sigurbergur Sveinsson
3/2 (11/3), Gísli Kristjánsson 2 (2), Brynjólfur Snær
Brynjólfsson 2 (3), Gísli Jón Þórisson 2 (4), Adam
Haukur Baumruk 2 (4), Sveinn Þorgeirsson 2 (4),
Elías Már Halldórsson 1 (2), Tjörvi Þorgeirsson (2),
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 10 (31/2, 32%),
Giedrius Morkunas (3, 0%).
Hraðaupphlaup: 7 (Freyr 3, Gísli 2, Brynjólfur
Snær 1, Sveinn 1)
Fiskuð víti: 4 (Sigurbergur 1, Gísli 1, Adam
Haukur 1, Elías Már 1)
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar Ólafur
Pétursson.
AKUREYRI - FH 30-26 (13-14)
Mörk Akureyrar (skot): Geir Guðmundsson 9
(15), Guðmundur H. Helgason 7 (12), Heimir
Örn Árnason 5/1 (6/1), Bergvin Þór Gíslason 5
(12), Hreinn Þór Hauksson 2 (2), Andri Snær
Stefánsson 2 (6), Garðar Már Jónsson (1), Valþór
Guðrúnarsson (1),
Varin skot: Jovan Kukobat 20 (45/3, 44%), Stefán
Guðnason 2/1 (3/2, 67%).
Hraðaupphlaup: 1 (Guðmundur H. 1)
Fiskuð víti: 1 (Andri Snær 1)
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk FH (skot): Ásbjörn Friðriksson 8/3 (22/4),
Einar Rafn Eiðsson 6/1 (7/1), Ragnar Jóhannsson
6 (11), Þorkell Magnússon 2 (3), Magnús Óli
Magnússon 2 (5), Andri Berg Haraldsson 1 (2),
Logi Geirsson 1 (6), Sigurður Ágústsson (1),
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 11 (31, 35%),
Sigurður Örn Arnarson 5 (15/1, 33%).
Hraðaupphlaup: 3 (Einar Rafn 2, Ragnar 1)
Fiskuð víti: 5 (Atli Rúnar 2, Einar Rafn 1, Ragnar
1, Magnús Óli 1)
Utan vallar: 6 mínútur.
SELFOSS - ÍBV 27-23 (12-11)
Selfoss: Hörður Másson 7, Hörður G. Bjarnason
6, Einar Sverrisson 5, Matthías Halldórsson 3,
Einar Pétursson 3, Ómar Helgason 2, Gunnar Ingi
Jónsson 1.
ÍBV: Nemanja Malovic 8, Andri Heimir Friðriksson
7, Theodór Sigurbjörnsson 5, Magnús Stefánsson
2, Grétar Eyþórsson 1.
MEISTARADEILD EVRÓPU
16-LIÐA ÚRSLIT, FYRRI LEIKIR
SHAKHTAR - DORTMUND 2-2
1-0 Darijo Srna (31.), 1-1 Robert Lewandowski
(41.), 2-1 Douglas Costa (68.), 2-2 Mats Hummels
(87.).
REAL MADRID - MAN. UNITED 1-1
0-1 Danny Welbeck (20.), 1-1 Cristiano Ronaldo
(30.)
ÞÝSKA ÚRVALSDEILDIN
KIEL - HANNOVER/BURGDORF 39-29
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir
Kiel og Aron Pálmarsson eitt.
LÜBBECKE - RN LÖWEN 24-24
Alexander Petersson var markahæstur í liði Löwen
með sjö mörk.
STAÐA EFSTU LIÐA
RN Löwen 20 17 2 1 563-496 36
Kiel 20 17 1 2 663-511 35
Flensburg 20 15 2 3 625-516 32
Füchse Berl. 20 14 2 4 571-517 30
Hamburg 20 13 2 5 606-557 28
Hann/Burgd. 20 13 1 6 607-593 27
Melsungen 20 10 3 7 569-559 23
Magdeburg 20 11 0 9 590-554 22
Wetzlar 20 10 2 8 583-571 22
Lemgo 20 9 0 11 551-563 18
Göppingen 20 7 2 11 554-556 16
FÓTBOLTI West Ham mun í sumar
klára síðustu greiðslurnar vegna
Tevez-málsins svokallaða sem
skók félagið árið 2007. Félagið
var þá sektað fyrir að hafa samið
við leikmann sem var í eigu
þriðja aðila en slíkt er ólöglegt á
Englandi.
Engu að síður fékk Tevez að
klára tímabilið með West Ham
sem bjargaði sér frá falli með
sigri í síðustu umferðinni. Tevez
skoraði sigurmarkið í þeim leik.
Sheffield United féll þess í stað
og við það sætti liðið sig ekki.
Þeir sóttu málið stíft og því lauk
með því að West Ham samþykkti
að greiða félaginu 18,1 milljón
punda, um 3,6 milljarða króna.
Enskir fjölmiðlar greindu frá
því í vikunni að West Ham myndi
í sumar inna af hendi síðasta
hluta greiðslunnar, um sex millj-
ónir punda. Greiðslan kemur
United vel en félagið, sem leikur
nú í ensku C-deildinni, hefur átt í
miklum fjárhagsvandræðum. - esá
Tevez-málinu
loks að ljúka
EGGERT OG TEVEZ West Ham var í
eigu Íslendinga þegar Carlos Tevez var
fenginn til liðsins. Hér er Eggert Magnús-
son með honum. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Fram greindi frá
því í gær að félagið hefði náð
fullum sáttum við Hlyn Atla
Magnússon, fyrrverandi leik-
mann Fram. Hlynur Atli fékk
sig lausan frá Fram eftir að
Samninga- og félagaskiptanefnd
KSÍ úrskurðaði í deilu hans við
félagið nú fyrr í vetur.
Í haust auglýsti Fram Hlyn
Atla til sölu og þá sendi Hlynur
Atli frá sér yfirlýsingu þess efnis
að hann ætti ekki samleið með
þjálfaranum Þorvaldi Örlygssyni.
En í sameiginlegri yfirlýsingu
sem stjórn knattspyrnudeildar
Fram og Hlynur Atli senda frá
sér í dag kemur fram að aðilar
séu sáttir við þessi málalok og
skilji sáttir. Hlynur Atli mun
spila með Þór í Pepsi-deildinni
næsta sumar. - esá
Fram og Hlynur
Atli ná sáttum
FAGNAÐ Hlynur Atli í leik með Fram í
Pepsi-deildinni. FRÉTTBLAÐIÐ/ERNIR
HANDBOLTI Fjórðungsúrslit Símabikarkeppni karla
lauk í gærkvöldi með þremur leikjum. Tvö efstu lið
N1-deildar karla, Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH, féllu
bæði úr leik. Haukar töpuðu fyrir ÍR í Breiðholtinu og FH laut
í lægra haldi fyrir Akureyri norðan heiða.
Þetta var annað tap Hauka í röð en liðið hafði ekki tapað
leik í N1-deildinni þar til liðið tapaði fyrir FH í toppslag
deildarinnar um helgina. „Við þurfum að skoða sóknarleik
okkar frá grunni. Þetta var virkilega dapurt í kvöld,“ sagði
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka.
Selfoss komst einnig áfram í undanúrslitin eftir sigur á
ÍBV á heimavelli. ÍBV er á toppi 1. deildar karla en Selfoss í
fjórða sæti. Stjarnan, annað 1. deildarlið, tryggði sér sæti í
undanúrslitum með sigri á Þrótti á mánudagskvöldið.
Undanúrslita- og úrslitaleikurinn fara fram í Laugardals-
höllinni helgina 8.-10. mars næstkomandi. - esá
Hafnarfj arðarliðin úr leik
FÓTBOLTI Man. Utd og Dortmund
eru í fínni stöðu eftir leiki gær-
kvöldsins í Meistaradeildinni. Bæði
lið gerðu jafntefli á útivelli.
United hélt jöfnu, 1-1, gegn
spræku liði Real Madrid sem gekk
afar illa að nýta færin sín. Welbeck
og Ronaldo skoruðu báðir með skalla.
Heimamenn klárlega svekktir og þeir
þurfa að skora á Old Trafford til þess
að eiga möguleika á því að komast
áfram í næstu umferð.
Dortmund fór til Úkraínu og kom
tvisvar til baka gegn Shaktar. Tvö
útivallarmörk þar og Dortmund í
sterkri stöðu. - hbg
Stórmeistarajafntefl i hjá Real Madrid og Manchester United
BARÁTTA Ronaldo og Rooney berjast í gær. NORDICPHOTOS/GETTY