Fréttablaðið - 14.02.2013, Blaðsíða 66
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50
KÖRFUBOLTI LeBron á það sameiginlegt með
fótboltamanninum Lionel Messi að vera fyrir
löngu orðinn bestur í heimi í sinni íþrótt en
halda samt alltaf áfram að bæta leik sinn enn
frekar. Á meðan Messi heldur áfram að bæta
hvert markametið á fætur öðru hefur hinn
nánast óstöðvandi LeBron James orðið enn
erfiðari við að eiga inni á körfuboltavellinum.
Fáir mótmæla þeirri fullyrðingu að LeBron
James sé besti körfuboltamaður heimsins í dag.
Hann vann allt sem var í boði árið 2012, þar á
meðal Ólympíugull og langþráðan NBA-meist-
aratitil með Miami Heat. Hann er þó hvergi
nærri hættur að bæta sinn leik og það er sú elja
og dugnaður sem hræðir mótherja hans hvað
mest.
Magnaður körfuboltamaður
LeBron James er magnaður körfuboltamaður
enda sameinast í honum einstök blanda styrks,
stærðar, sprengikrafti og skilningi á sportinu.
Þetta 203 cm og 113 kílóa vöðvabúnt sér völlinn
betur en flestir og er til algjörrar fyrir myndar
þegar kemur að því að spila liðsfélagana uppi
eða að leggja líf og sál í varnarleikinn.
Það sem hann hefur verið að gera inn á körfu-
boltavellinum undanfarna tíu daga hefur hins
vegar kallað á nýjan kafla í NBA-sögubókinni.
LeBron hefur nefnilega sett ný viðmið í
dansi, framleiðni og nýtni inni á parketinu með
því að skila ótrúlegum tölum í undanförnum sex
leikjum Miami Heat. Hann hefur brotið 30 stiga
múrinn í þeim öllum (nýtt Miami Heat met) en
um leið hefur hann nýtt skotin sín sextíu pró-
sent eða betur. Í þremur leikjunum af þessum
sex státar hann af meira en sjötíu prósenta skot-
nýtingu, þar á meðal í síðasta leiknum á móti
Portland Trail Blazers.
„Ég er eiginlega orðlaus. Eins og ég hef sagt
oft þekki ég vel sögu leiksins og ég veit hversu
margir frábærir leikmenn hafa spilað í NBA-
deildinni og markað sporin fyrir mig og kollega
mína. Það er magnað að komast í metabókina
með svona tölfræði. Þetta er stórt mál,“ sagði
LeBron James. Það var samt eins og hann tryði
ekki alveg að hann væri búinn að gera eitthvað
sem menn eins og Wilt Chamberlain og Michael
Jordan náðu aldrei þegar þeir gnæfðu yfir aðra
leikmenn í NBA-deildinni.
Wilt og Jordan náðu þessu aldrei
„Ég trúði því ekki að þessi kappar hefðu aldrei
náð þessu. Ég hefði haldið að Wilt [Chamberla-
in] hefði náð nokkrum leikjum í röð með fjöru-
tíu stigum og sjötíu prósenta skotnýtingu eða
að Michael Jordan hefði komist í ham þar sem
hann hitti ótrúlega vel utan af velli. Eða þá
Shaq. Ég gat bara sagt vá,“ sagði LeBron um
met sitt en það er þó hinn almenni körfubolta-
áhugamaður sem er gapandi yfir frammistöðu
hans á undanförnum dögum.
James hefur alls nýtt 66 af 92 skotum sínum
í þessum sex leikjum (71,7 prósent) en hann er
með 30,8 stig, 6,7 fráköst og 6,5 stoðsendingar
að meðaltali í þessum leikjum.
„Þetta er ástæðan fyrir því að hann er besti
leikmaður deildarinnar. Hann spilaði mjög
góðan leik. Það er það eina sem þið fáið upp úr
mér um hann. Hann er keppnismaður og elskar
að keppa. Hann elskar líka jafna leiki. Hann
er leiðtoginn okkar og ekki bara í því hvernig
hann spilar,“ sagði Erik Spoelstra, þjálfari
Miami Heat, eftir sigurinn á Portland.
Skotnýting LeBrons á tímabilinu er nú komin
upp í 56,5 prósent en hann er á mjög góðri leið
með að hækka skotnýtingu sína sjötta tímabilið
í röð. Það sem meira er, hann er farinn að nýta
yfir 40 prósent þriggja stiga skota sinna (42
prósent).
Hafa unnið alla leikina
„Það skiptir mig miklu að hafa náð þessari
skorpu, ekki síst þar sem við höfum unnið alla
þessa leiki,“ sagði Lebron.
Hvort sjöundi leikurinn bætist í hópinn í
kvöld er önnur saga en þar er á ferðinni enginn
smáleikur. Þá mætast lokaúrslitaliðin frá því
í fyrra þegar Oklahoma City Thunder tekur á
móti Miami Heat. ooj@frettabladid.is
Sá besti verður betri og betri
LeBron James setti magnað NBA-met í fyrrinótt þegar hann náði því í sjötta leiknum í röð að skora yfi r 30
stig jafnframt því að nýta skotin sín 60 prósent eða betur. Miami Heat liðið hefur unnið alla leikina sex.
100-85 SIGUR
Á TORONTO
30 stig
8 fráköst
7 stoðsendingar
63% skotnýting
(10 af 16)
99-94 SIGUR
Á CHARLOTTE
31 stig,
8 fráköst
8 stoðsendingar
93% skotnýting
(13 af 14)
114-108 SIGUR
Á HOUSTON
32 stig
6 fráköst
5 stoðsendingar
61% skotnýting
(11 af 18)
111-89 SIGUR
Á LA CLIPPERS
30 stig
5 fráköst
6 stoðsendingar
82% skotnýting
(9 af 11)
107-97 SIGUR
Á LA LAKERS
32 stig
7 fráköst
4 stoðsendingar
67% skotnýting
(12 af 18)
117-104 SIGUR
Á PORTLAND
30 stig
6 fráköst
9 stoðsendingar
73% skotnýting
(11 af 15)
1 2 3 4 5 6
LEIKIRNIR SEX
4 REYKJAVÍK | SÍMI 568 3080 | WWW.BARDINN.IS
– Síðan 1941 –
SKÚTUVOGI 2 | 10
MMA Jorge „The Sandman“
Santiago mætir Íslendingnum
Gunnari Nelson í veltivigt í
Wembley Arena á laugardag-
inn. Heimildir vefsins Bardaga-
fregnir.is herma að Jorge San-
tiago sé alltof þungur miðað við
að hann sé að fara keppa í flokki
Gunnars.
„Sjónarvottar sáu Jorge „The
Sandman“ Santiago í London í
dag og hann var víst rosalega
stór eða „huge“ eins og sjónar-
vottar orðuðu það! En Jorge er að
færa sig niður í þyngd fyrir bar-
daga þeirra Gunnars Nelson.
Hann kemur úr millivigtinni,
sem er 84 kg, og í veltivigtina,
sem er 77 kg. Jorge var talinn
mjög stór almennt í millivigt
svo hann þarf að skera sig mikið
niður til þess að ná vigt á föstu-
daginn kemur,“ segir í fréttinni á
Bardagafregnir.is.
Þetta yrði þá ekki í fyrsta
skiptið sem Gunnar Nelson mætir
„of þungum“ manni í hringnum
því það gerðist einnig í síðasta
UFC-bardaga Gunnars á móti
DaMarques Johnson. Gunnar
fékk þá að velja hvort hann vildi
berjast eða ekki en með því að
berjast þá fékk hann hluta af
launum Johnson. - óój
Santiago
er þungur
GUNNAR NELSON Berst í Wembley
Arena á laugardag.
NORDICPHOTOS/GETTY
EVRÓPUDEILD UEFA - HELSTU LEIKIR
17.00 Zenit - Liverpool Sport 3
18.00 Ajax - Steaua Búkarest
18.00 Sparta Prag - Chelsea
20.05 Newcastle - Metalist Kharkiv
20.05 Tottenham - Lyon Sport og HD
FÓTBOLTI 32-liða úrslitin í Evr-
ópudeild UEFA hefjast í kvöld.
Fjögur ensk lið eru í eldlínunni
sem og Kolbeinn Sigþórsson og
félagar í Ajax.
Liverpool hefur leik gegn Zenit
í Rússlandi og liðið fékk ekki
beint besta undirbúninginn er
það tapaði gegn WBA um helgina.
Tímabilið hjá Chelsea hefur
verið ein vonbrigðasaga og liðið
leggur mikla áherslu á að vinna
Evrópudeildina.
„Við ætlum okkur alla leið og
vinna þessa keppni,“ sagði John
Terry, fyrirliði Chelsea. - hbg
Evrópudeildin
í kvöld
HÁTT YFIR
ÖLLUM ÖÐRUM
Lebron James er
í miklum ham
með Miami Heat
þessa dagana.
NORDICPHOTOS/GETTY