Fréttablaðið - 14.02.2013, Page 70

Fréttablaðið - 14.02.2013, Page 70
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54 „Vatn og kók eru í uppáhaldi. Þetta er það sem ég drekk dagsdaglega en ég er mikill kókisti. Það jafnast ekkert á við ískalda súperdós af kóki.“ Magni Ásgeirsson tónlistarmaður DRYKKURINN Lucky Records á Hverfisgötu er sögð ein af sex bestu plötu búðum heims í tímariti flugfélagsins British Airwaves sem er dreift í allar flugvélar þess. „Ingvar Geirsson (öðru nafni DJ Lucky) er maðurinn á bak við svöl- ustu plötubúð Íslands sem sér hæfir sig í sjaldgæfum vínyl plötum frá heimalandinu með listamönnum á borð við Megas og Bang Gang. Meira að segja ljósin þeirra eru gerð úr gömlum plötum,“ segir í umfjölluninni. Mynd af Ingvari og samstarfsmanni hans, Gesti Baldurs syni, prýðir greinina. Aðrar búðir sem komust inn á topp sex listann eru í Seúl, Jóhannesar- borg, Mumbai, Dubai og Vín. „Það er fyrst og fremst gaman að vita af því að fólk úti í heimi veit af þessari búð,“ segir Ingvar. Hann segir þessa góðu umfjöllun hafa komið sér á óvart. Spurður hvort þetta þýði ekki aukinn fjölda erlendra viðskiptavina í Lucky Records segir hann: „Það eru að bætast við á Facebook erlend „like“. Þetta síast hægt og rólega inn.“ - fb Ein af bestu plötubúðum heims Lucky Records er sögð ein af bestu plötubúðum heims í riti British Airwaves. Á TOPP SEX Fjallað er um verslun Ingvars Geirssonar, Lucky Records, í tímariti British Airways. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN F A S TU S _E _0 5. 02 .1 3 Fastus býður uppá hágæða japanska hnífa og önnur eldhúsáhöld sem unun er að vinna með þegar matar- undirbúningur stendur sem hæst. Komdu í verslun okkar, Síðumúla 16 og skoðaðu úrvalið af áhöldum sem fagmenn, jafnt sem áhuga- menn geta ekki án verið í góðu eldhúsi. Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Verslun opin mán-fös 8.30 -17.00 Hljómsveitin Hjaltalín er byrjuð að semja og taka upp tónlistina við leikritið Engla alheimsins sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 20. apríl. Söngvarinn Högni Egils- son mun jafnframt taka þátt í sýn- ingunni. „Fyrir bíómyndina fengu þeir Sigur Rós til að semja tónlistina og okkur fannst spennandi að leita að frábæru bandi til að skapa hljóð- heim uppsetningarinnar,“ segir leikstjórinn Þorleifur Örn Arnar- son. „Svo gaf Hjaltalín út þessa frábæru plötu [Enter 4] og það sannfærði okkur um að þetta væri rétta fólkið til að starfa með. Auð- vitað hafa þau látið geðsjúkdóma og ábyrgð samfélagsins sig miklu varða undanfarnar vikur og mán- uði og það ýtti undir hvað það væri tilvalið að fá þau um borð.“ Þorleifur Örn ræddi mikið við Högna Egilsson, sem tjáði sig ein- mitt um geðhvarfasýki sína í blaða- viðtali í fyrra. „Ég hugsaði með mér að með þá reynslu sem hann hefur væri hann ómetanlegur inn í hið listræna ferli sýningarinnar. Við tókum þá ákvörðun um að hann yrði hluti af leikhópnum,“ segir hann en Högni hefur hingað til ekki látið að sér kveða á leiksviði. Ekki er búið að ákveða hvaða hlutverki hann gegnir. „Högni hefur töfrandi sviðframkomu. Leiksvið er staður fyrir ungt fólk að tjá sig. Þar er hann ofboðslega sterkur og lætur engan ósnortinn. Það væri synd að nota hann ekki.“ Högni hefur áður samið tónlist fyrir leikhús, síðast fyrir sviðsetningu The Royal Shakespeare Comp- any á Hróa hetti. Hann þreytir nú frumraun sína í Þjóðleikhúsinu. „Þetta virðist ætla að verða spennandi og svo- lítið kraft mikil uppfærsla,“ segir Högni, sem hlakkar mik ið t i l . Aðspurður segist hann ekki hafa ákveðið að taka þátt vegna veikinda sinna. Það hafi einfaldlega verið gott tækifæri fyrir Hjaltalín að fá að semja tónlistina. Æfingar fyrir leik ritið Engla alheimsins, sem er byggt á skáldsögu E i na rs M ás Guðmunds- sonar, hefjast á miðviku- d a g i n n í næstu viku. Verkið leggst mjög vel í Þor- leif Örn. „Ég er þvílíkt spenntur. Að frumsýna í Þjóðleikhúsinu með verki sem svo mörgum þykir vænt um er ofboðsleg áskorun.“ Með aðalhlutverkið, Pál, fer Atli Rafn Sigurðarson. Með önnur hlutverk fara Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ólafur Egill Egils- son, Snorri Engilbertsson, Eggert Þorleifsson, Guðrún Gísladóttir, Sólveig Arnarsdóttir, Ævar Þór Benediktsson, Saga Garðarsdóttir, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson og fleiri. Símon Birgisson annast leikgerðina ásamt Þorleifi Erni. freyr@frettabladid.is Högni Egils í leikhópi Engla alheimsins Hjaltalín semur tónlistina við Engla alheimsins. Högni Egilsson tekur einnig þátt í sýningunni. Þorleifur Arnarson leikstjóri segir reynslu Högna ómetanlega. SEMUR TÓNLISTINA Hjaltalín semur tónlistina við leikritið Engla alheimsins í Þjóðleikhúsinu sem Þorleifur Örn Arnarson leikstýrir. MYND/HÖRÐUR SVEINSSON „Ég veit ekki hvað það voru margir þátttakendur en við sem áttum þrjú efstu sætin erum allir starfandi í Noregi,“ segir kokkurinn Jóhann Ingi Reynisson, sem sigraði í mat- reiðslukeppni ítalska vínframleið- andans Masi á dögunum. Jóhann Ingi starfar sem yfirmat- reiðslumaður á hótelinu Rica Seilet, sem er í Molde í Noregi, og frétti af keppninni frá birgi Masi- vínsins þar í landi. Masi heldur keppnir með ákveðnu þema af og til en þetta var í fyrsta skipti sem Jóhann Ingi ákvað að taka þátt. „Keppnin að þessu sinni snerist um að búa til frumlegasta saltfisksréttinn. Ég ákvað að gera hann á portúgalska vísu með smá breytingu og bjó rétt- inn sérstaklega til fyrir keppnina,“ segir Jóhann. Að launum hlaut hann heilsíðu- umfjöllun í tímaritinu La Venezie, sem er selt í þúsundum eintaka á Ítalíu og víðar í Evrópu. „Þetta er auðvitað frábær kynning fyrir mig og hótelið sem ég vinn á. Svo fékk ég líka að eiga vínflöskuna sem ég notaði þegar teknar voru myndir af réttinum,“ segir Jóhann og hlær. - trs Með besta saltfi sksréttinn að mati Masi Íslendingurinn Jóhann Ingi Reynisson sigraði matreiðslukeppni ítalska vínframleiðandans Masi á dögunum. YFIRMATREIÐSLUMAÐUR Jóhann Ingi býr í Molde í Noregi þar sem hann starfar sem yfirmatreiðslumaður á hótelinu Rica Seilet. Jóhann grill- aði saltfisk- inn og notaði svartar ólífur, blaðlauk, hvítlauk, græna papriku, gula papriku, túneraðar möndlukartöflur og tómatkavíar í réttinn. Með réttinum mælir hann að sjálfsögðu með því að drekka Masi-vín. Saltfisksrétturinn ÞORLEIFUR ÖRN ARNARSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.