Fréttablaðið - 22.02.2013, Page 14
22. febrúar 2013 FÖSTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og
í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Nefnd um lagningu raflína í jörð hefur
skilað skýrslu sinni með nokkrum megin-
tillögum sem nefndarfólk var einhuga
um, auk sértillagna nokkurra nefndar-
manna. Í fréttum Ríkisútvarpsins var
því slegið upp að engin niðurstaða hefði
náðst hjá nefndinni. Það er ekki rétt, og
ráðherra er í lófa lagið að vinna hratt og
örugglega úr þeim tillögum sem þarna
koma fram. Einnig er hér bent á ítarlegar
tillögur Landverndar og fulltrúa landeig-
enda í viðauka við skýrslu nefndarinnar.
Ein sameiginleg tillaga nefndarinnar
gerir ráð fyrir að nú þegar verði ákveð-
in viðmið og grundvallarreglur höfð
til hliðsjónar við ákvarðanatöku vegna
framkvæmda í flutningskerfinu. Í þessu
felst að á ákveðnum svæðum skal flutn-
ingsfyrirtæki ávallt bera saman áhrif
þess að leggja loftlínu eða jarðstreng
þrátt fyrir að við samanburð á kostnaði
komi í ljós að jarðstrengur sé umtals-
vert dýrari en loftlína. Þessi svæði eru
m.a. náttúruverndarsvæði og svæði sem
njóta sérstakrar verndar samkvæmt
náttúruverndarlögum, við flugvelli þar
sem sýnt er að loftlína getur haft áhrif
á flugöryggi og svæði þar sem veður-
álag er mikið og jarðstrengur gæti aukið
afhendingaröryggi. Þá leggur nefndin
til að leggja skuli jarðstrengi svo sem
kostur er meðfram núliggjandi vegum.
Fulltrúi Landsnets stóð að þessari
tillögu og því ekkert eðlilegra en að
fyrirtækið fari nú þegar að vinna eftir
henni. Sveitarstjórnir á svæðum þar
sem framkvæmdir eru komnar á leyfis-
veitingastig, t.d. við Suðurnesjalínu 2 og
Blöndulínu 3, geta einnig litið til þess-
ara viðmiða og grundvallarreglna við
ákvarðanatöku sína. Í ljósi niðurstöðu
nefndarinnar, sem Landsnet stóð að, ætti
fyrirtækið að vera fylgjandi því að taka
til endurskoðunar afstöðu sína gagn-
vart jarðstrengslögn á slíkum viðmið-
unarsvæðum á línuleið þessara tveggja
lína, m.a. á náttúruverndarsvæðum,
við flugvelli og þar sem veðurálag er
mikið. Krafa Landsnets um eignarnám
á landi við fyrirhugaða Suðurnesjalínu 2
á Reykjanesskaga vekur því óneitanlega
ugg í brjósti, sama dag og tillögur nefnd-
arinnar eru gerðar opinberar.
Fer Landsnet að eigin tillögum?
RAFORKU-
FLUTNINGAR
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
framkvæmdastjóri
Landverndar
➜ Krafa Landsnets um eignarnám
á landi við fyrirhugaða Suðurnes-
jalínu 2 á Reykjanesskaga vekur því
óneitanlega ugg í brjósti, sama dag
og tillögur nefndarinnar eru gerðar
opinberar.
Hefði verið núllað út
Þór Saari vill að Alþingi samþykki
vantraust á ríkisstjórnina. Sú skoðun
hans er bundin í tíma, og rúmi
reyndar líka, við þriðjudaginn. Hann
vill sem sagt að þá verði greidd
atkvæði um vantraust, en ekki í gær.
Rökstuðningur hans gengur út á það
að stuðningsmenn vantrauststillög-
unnar hafi verið í minnihluta á þingi
í gær, þar sem svo margir þingmenn
hafi verið í útlöndum
eða fjarverandi. Hefð
hefur skapast um það
á Alþingi að núlla út
ef þingmenn eru fjar-
verandi í embætt-
iserindum þegar
greitt er atkvæði
um mikilvæg mál.
Ef stjórnarand-
stæðingur er fjarverandi, mætir einn
stjórnarliði ekki og öfugt. Hugsunin
er sú að jafnvægið í þinginu megi
ekki raskast við þátttöku í alþjóða-
starfi og engin ástæða er til að ætla
að sú hefði ekki orðið raunin í þessu
tilviki.
Braut Þór þingsköp?
Annars er athyglisvert í skýringum
Þórs á afturköllun tillögu um van-
traust. Hann segir að hefði verið
kosið í gær hefðu þingsköp verið
brotin, þar sem frumvörp verði að
liggja frammi í að minnsta kosti tvær
nætur. Nú gera þingsköp reyndar
ráð fyrir því að hægt sé að veita
afbrigði og falla frá þeirri reglu.
Þór hefur sjálfur gert
það, samþykkti
slík afbrigði
um stjórnarskrármál 21. mars í fyrra.
Og braut þá væntanlega þingsköp að
eigin mati.
Óheppileg samlíking
Læknar á Landspítalanum segja
stjórnvöld vera að „taka af lífi Land-
spítala og heilbrigðiskerfi Íslands á
hægan og kvalafullan hátt“. Spurð að
því í Speglinum hvort þetta væri ekki
fullvel í lagt, svaraði Anna Gunnars-
dóttir, formaður læknaráðs spítalans,
þessu: „Við kannski notumst við
þessa samlíkingu svolítið, sem er
okkur nærtæk á
spítalanum.“ Það
er sem sagt nærtækt
að taka einhvern af lífi
á hægan og kvalafullan
hátt á Landspítalanum?
kolbeinn@frettabladid.is
Í
síðustu viku var sagt frá því að hópur fjárfesta, undir forystu
Framtakssjóðs Íslands (FSÍ), í eigu ríkisbankans og lífeyris-
sjóða, væri að setja sig í stellingar um að kaupa íslensku einka-
bankana Íslandsbanka og Arion banka. Í fréttum kom líka
fram að aðrir í þessum hópi væru ýmsir fagfjárfestar.
Þetta er kunnuglegur inngangur að viðskiptafrétt. Í fréttum og
tilkynningum af svona kaupum segir oftast að „hópur fjárfesta
undir forystu lífeyrissjóða er að eignast …“. Lífeyrissjóðir eru
iðulega hafðir í forgrunni flestra stórra viðskipta sem verið er að
gera. Það mýkir ásýnd þeirra og dregur úr áhyggjum almennings
vegna þeirra.
Með í þessum fjárfestahópum
eru þó iðulega einstaklingar og
eignastýringasjóðir banka. Slíkir
sjóðir eru í eðli sínu ekkert ólíkir
hinum erlendu vogunarsjóðum,
sem iðulega eru ekki kallaðir
annað en hrægammasjóðir hjá
ákveðnum kreðsum. Andlitslausir
fjárfestar sem setja peningana
sína í sjóði sem síðar kaupa eignir í þeim tilgangi að græða peninga.
Án þess að nokkur fái að vita hversu mikla.
Hugmyndin um bankakaupin virðist ganga út á að þessir fjár-
festar fái að kaupa bankana tvo á mjög niðursettu verði. Fjárfest-
arnir eru sagðir tilbúnir að greiða fyrir að hluta til eða öllu leyti
með gjaldeyri sem þeir eiga erlendis. Röksemdafærslan er sú að
þá eigi allir að vinna. Erlendir kröfuhafar komist út úr Íslandi
en íslensku fjárfestarnir fái gríðarlega mikilvæg fyrirtæki með
miklum afslætti.
Margir þeirra sem hafa verið að fjárfesta mikið á Íslandi eftir
hrun voru nefnilega í aðstöðu til að sjá fyrir vandræði á góðæris-
árunum. Þeir pössuðu sig því á að flytja mikla fjármuni úr landi.
Fall krónunnar um tæp fimmtíu prósent, gjaldeyrishöft og auka-
afsláttur fjárfestingaleiðar Seðlabankans gerir þessum aðilum
kleift að versla á brunaútsölu á Íslandi.
Og það hefur verið eftir miklu að slægjast á Íslandi fyrir þessa
aðila. Eftir hrun fór enda stór hluti þjóðhagslegra mikilvægra fyrir-
tækja til banka eða annarra kröfuhafa sem ætla sér ekki að vera
langtímaeigendur þeirra. Þetta voru meðal annars tryggingafélög,
fjarskiptafyrirtæki, smásölurisar, fjölmiðlar, bílaumboð og auðvit-
að fjármálafyrirtæki. Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins um málið,
sem gefin var út í fyrra, sagði að 46 prósent þeirra 120 fyrirtækja
sem flokkast stór á Íslandi hefðu verið í ráðandi eign fjármálafyrir-
tækja í byrjun árs 2011. Á því ári voru tuttugu slík seld og enn fleiri
í fyrra. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa verið seld í íslenskum
krónum með þeim margfalda afslætti sem felst í því að gera við-
skipti í þeirri mynt.
En trompin í spilastokki endurskipulagningarinnar eru bank-
arnir. Þeir sem ráða þeim eru með örlög atvinnulífsins í höndum sér.
Sérstaklega á meðan höftin eru í gildi. Það er hagur þeirra sem vilja
eignast þá að tala niður krónuna og festa höftin í sessi. Þá fá þeir
enga alþjóðlega samkeppni um þau fyrirtæki sem þeir vilja eignast.
Þá sitja þeir einir að kökunni og geta dundað sér við að prútta við
bakarann áður en þeir éta hana.
Það er vert að hafa þetta í huga þegar stjórnmálamenn, sjálf-
skipaðir sérfræðingar eða stórir leikendur úr viðskiptalífinu tala
upp krónuna eða niður raunhæfa möguleika um upptöku annarra
gjaldmiðla. Það stendur yfir barátta um valdataumana á Íslandi. Að
henni koma margir og úr öllum áttum. Og sem stendur er krónan
að tryggja að margir þeirra sem áttu eignir fyrir hrun eignist þær
aftur.
Barátta er um að eignast Ísland með afslætti:
Vopnið krónan
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is