Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 45
ÞRIÐJUDAGUR 26. mars 2013 | MENNING | 29
Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðing-
ur flytur í dag erindið „Sögulega skáldsag-
an á Ítalíu eftir 1980“ í hádegisfyrirlestra-
röð Sagnfræðingafélagsins. Þetta verður
11. fyrirlestur vetrarins en á vormisseri
er yfirskrift fyrirlestraraðarinnar „Hvað
er sögulegur skáldskapur?“
Ástæða þess að Hjalti Snær miðar við
ártalið 1980 er að það ár kom út skáld-
sagan Nafn rósarinnar eftir Umberto
Eco sem er talin marka nýtt skeið sögu-
legu skáldsögunnar á Ítalíu. Í fyrirlestr-
inum verður fjallað um meginstraumana í
ritun sögulegra skáldsagna á Ítalíu síðustu
þrjá áratugina. Margar þeirra einkennast
af samfélagsgagnrýni og efasemdum um
framfarahyggju. Ítalskir rithöfundar hafa
lengi verið uppteknir af því að draga fram
algild söguleg lögmál í verkum sínum,
sýna hvernig valdajafnvægið í landinu
helst óbreytt þótt samfélagið breytist.
Rætt verður um það hvernig rithöfundar
síðustu áratuga hafa unnið úr sögulegum
skáldskaparhefðum og leitað svara við því
hvort sögulega skáldsagan eigi enn erindi
sem framlag til þjóðfélagslegrar umræðu
á Ítalíu.
Fyrirlesturinn er haldinn í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Íslands og hefst klukkan
12.05.
Sögulega skáldsagan á Ítalíu
Hjalti Snær Ægisson með hádegisfyrirlestur hjá Sagnfræðingafélaginu.
NAFN
RÓSARINNAR
Skáldsaga
Umberto Eco
þótti valda
straumhvörf-
um í ritun
sögulegra
skáldsagna á
Ítalíu.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
8
9
5
VÍNBÚÐIRNAR
UM PÁSKANA
Kynntu þér páskaopnun allra
Vínbúða á vinbudin.is eða
á farsímavef okkar m.vinbudin.is.
Miðvikudagur 27. mars OPIÐ 11-19
Skírdagur LOKAÐ
Föstudagurinn langi LOKAÐ
Laugardagur 30. mars OPIÐ 11-18
Páskadagur LOKAÐ
Annar í páskum LOKAÐ
OPNUNARTÍMAR
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
OG AKUREYRI
10-20
SKEIFAN | DALVEGUR
SKÚTUVOGUR
OPIÐ Í DAG
OG Á MORGUN
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
Félagsvist
20.00 Félagsvist er spiluð hjá Félagi
eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4.
Upplestur
18.00 Árni Johnsen les 49. Passíu-
sálminn í Grafarvogskirkju í tilefni
föstunnar.
Tónlist
12.15 Björn Steinar Sólbergsson, organ-
isti Hallgrímskirkju, leikur á bæði orgel
kirkjunnar á hádegistónleikum þar.
Aðgangur er ókeypis og boðið verður
upp á kaffisopa að tónleikum loknum.
12.15 Elsa Waage mezzosópran
syngur Wesendonck söngva Wagners á
hádegistónleikum Íslensku óperunnar
í Norðurljósasal Hörpu. Aðgangur er
ókeypis.
20.30 Hljómsveitin Valdimar og tónlist-
amaðurinn Biggi Hilmars spila á stór-
tónleikum í Edrúhöllinni, Efstaleiti 7.
Eru tónleikarnir hluti af tónleikaröðinni
Kaffi, kökur og rokk og ról og er
aðgangseyrir kr. 500.
20.30 Kvartett píanóleikarans Árna
Heiðars Karlssonar kemur fram á
djasskvöldi KEX Hostels. Flutt verður
fjölbreytt úrval djassstandarda auk
frumsaminnar tónlistar. Aðgangur er
ókeypis.
21.00 Jana María og Söngfuglarnir
skemmta á Café Rosenberg.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að
skrá þá inni á visir.is.