Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 8
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Það er í sjálfu sér ekki góð staða og vissar flækjur í því ef ríkisstjórn er að framkvæma eitthvað sem hún er ekki hlynnt, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins LANDIÐ 1 2 3 NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4 VERÐ FRÁ 10.990.000 KR. MYNDARLEGUR Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins 8,3 l / 100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu. Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is www.landrover.is OPIÐ LAUGARDAG FRÁ 12-16 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílahúsið Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 E N N E M M / S ÍA / N M 5 7 6 16 *M ið að v ið u pp ge fn ar v ið m ið un ar tö lu r fr am le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i. Hjúkrunarheimili þokast nær 1Viljayfirlýsing um uppbyggingu húsakynna Hjúkrunarheimilisins Lundar, hjúkrunar- og dvalarheimilis á Hellu í Rangárþingi ytra, var undirrituð í gær. Framkvæmdin hlaut styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2011 en forsendur annarrar fjármögnunar hafa breyst og því er talið að hefðbundin fjármögnunarleið sé fýsilegasti kosturinn, eða að kostnaður skiptist milli ríkis- sjóðs, Framkvæmdasjóðs aldraðra og sveitarfélagsins. Framkvæmdunum er ætlað að fjölga einbýlum og færa aðbúnað heimilismanna til samræmis við þær kröfur sem velferðarráðuneytið gerir. Ný vatnsveita í Reykholtsdal 2Ný vatnsveita verður tekin í notkun í Reykholtsdal í dag. Eftir mikla leit að fullnægjandi vatnsbóli fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki var ákveðið að virkja vatnsból við mynni Rauðsgils og leggja 4,4 kílómetra langa aðveitulögn milli Rauðsgils og Reykholts. Lítil dælu- og stjórnstöð var byggð í grennd við vatnstökustaðinn. Áður var búið að tengja saman vatnsveiturnar í Reykholti og á Kleppjárnsreykjum til að geta miðlað vatni þar á milli. Með nýrri vatns- veitu er aðgangur íbúa Reykholtsdals að vatni til neyslu og brunavarna tryggður. Nýtt hótel á Ísafirði opnar 3 Nýtt hótel verður opnað í miðbæ Ísafjarðar 1. júní og hefur það feng- ið nafnið Hótel Horn. Vestur.is segir frá. Hótelið verður opnað í tveimur áföngum; 12 herbergi á annarri hæð hússins í sumar en næsta sumar önnur 12 herbergi á þriðju hæð. Sérstaklega er stílað inn á fjölskyldufólk á Hótel Horni en endurbætur á húsinu hafa staðið yfir í allan vetur. EVRÓPUMÁL Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur gætu komið til með að stýra lokaspretti aðildarvið- ræðna að ESB þvert á eigin stefnu, ef flokkarnir verða við stjórn eftir kosningar og þjóðin samþykkir að ljúka viðræðunum í þjóðaratkvæða- greiðslu. Formenn flokkanna segja að það sé sannarlega ekki kjörstaða en með því verði að minnsta kosti komið umboð frá þjóðinni. Eins og staðan er nú í skoðana- könnunum bendir margt til þess að flokkarnir taki upp samstarf eftir kosningar. Eins sagðist meirihluti aðspurðra í síðustu könnun Frétta- blaðsins fylgjandi því að aðildarvið- ræðum yrði lokið með samningi sem svo yrði kosið um. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist munu standa við þá stefnu sem mörkuð var á síðasta landsfundi flokksins að aðildarviðræðurnar yrðu stöðvaðar, fari Sjálfstæðisflokkur í ríkisstjórn. „Ég tel rétt að við notum tímann eftir kosningar til að taka saman stöðuna í viðræðunum og jafnframt ræða stöðuna í Evrópu.“ Bjarni segist hafa miðað við að kosið yrði á fyrri hluta komandi kjörtímabils. Tímasetningin velti hins vegar á ýmsu, en sýnt sé þó að Evrópumál séu kjósendum ekki efst í huga. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist líta svo á að það sé komið hlé á viðræðum og ekki gerist þörf á að slíta þeim með formlegum hætti, en þráðurinn verði ekki tekinn upp að nýju „nema með umboði frá þjóðinni úr þjóðaratkvæðagreiðslu“. Varðandi tímasetningu þjóðar- atkvæðagreiðslu segir Sigmundur að hún gæti jafnvel orðið snemma á næsta kjörtímabili. Bjarni og Sigmundur játa báðir að það væri engin kjörstaða ef þjóðin samþykkti framhald á meðan hugs- anlegir stjórnarflokkarnir væru á því að Íslandi væri betur borgið utan ESB. „Það er í sjálfu sér ekki góð staða og vissar flækjur í því ef ríkisstjórn er að framkvæma eitthvað sem hún er ekki hlynnt,“ segir Sigmundur en bætir við að þetta sé afleiðing þess að núverandi stjórn hafi hafið ferlið „á röngum forsendum“. Bjarni segir málin munu ráðast þegar að því kemur. „Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að við eigum ekki að ganga í Evr- ópusambandið og greiddi atkvæði gegn umsókn,“ segir hann. „En við höfum haft það sem hluta af okkar stefnu að opna fyrir þjóðaratkvæða- greiðslu til að útkljá þetta mál og við munum standa við það.“ thorgils@frettabladid.is Gætu þurft að semja óviljugir um ESB Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur vilja stöðva aðildarviðræður við ESB en gætu samt þurft að klára viðræður ef þjóðin ákveður slíkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. LÍKLEGT STJÓRNARMYNSTUR Margt þykir benda til þess að Framsóknar- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn myndi saman stjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.