Fréttablaðið - 24.04.2013, Side 28
KYNNING − AUGLÝSINGHlaupaskór & fatnaður MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512 5427
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Langflestir hlauparar þurfa að kljást við líkamleg vandamál á ein-
hverjum tímapunkti. Hér verða tínd til nokkur algeng vandamál og
lausnir á þeim.
Svartar táneglur
Sumir hlauparar, sérstaklega þeir sem hlaupa langar vegalengdir, fá
svartar táneglur.
Lýsing: Nöglin virðist svört (sem orsakast af mari undir nöglinni). Á
endanum getur nöglin dottið af.
Ástæður: Svartar táneglur verða til þegar neglurnar núast stanslaust
við fremsta hluta skósins. Blóðblaðra myndast undir nöglinni. Mara-
þonhlauparar sem hlaupa mikið niður í móti eru líklegastir til að þjást
af þessu, einnig þeir sem hlaupa í heitu veðri þar sem fætur bólgna
meira þegar heitt er úti.
Forvörn og lausn: Velja þarf réttu stærð af hlaupaskóm en þeir eiga
að vera hálfu númeri stærri en venjulegt skónúmer fólks. Nægt rými
þarf að vera fyrir tærnar. Gott er að halda fótum eins þurrum og kost-
ur er og svo þarf að halda tánöglunum snyrtilegum. Einnig þarf að
velja réttu hlaupasokkana, ekki vera í bómullarsokkum. Ef tánögl-
in er þegar orðin svört er best að láta hana óáreitta svo lengi sem sárs-
aukinn er ekki yfirþyrmandi. Sársaukinn er verstur fyrsta daginn en
skánar svo. Ekki þvinga gömlu nöglina af, hún dettur af af sjálfu sér. Ef
táin virðist rauð og sýkt skal leita læknis.
Bólur á andliti, brjóstkassa og baki
Lýsing: Bólur á þessum stöðum eru algengar hjá hlaupurum, sérstak-
lega konum.
Ástæður: Svitaholur stíflast vegna svita og auk þess bætist við nudd
frá fötum. Einnig getur farði eða sólarvörn aukið á vandann.
Forvörn og lausn: Til að koma í veg fyrir bólur sem verða til við
æfingar þarf að huga vel að hreinlæti. Fara úr svitastorknum fötum
strax að loknum hlaupum og fara í sturtu eins fljótt og auðið er. Þrífa
þarf vel þau svæði þar sem bólurnar myndast frekar. Ekki nota farða
og notið sólarvörn án olíu.
Kláði á fótum
Lýsing: Þegar hlaupið er af stað kemur kláðatilfinning í fæturna sem
er svo slæm að fólk þarf stundum að hætta að hlaupa. Kemur oftar
fyrir þegar fólk byrjar að hlaupa eftir nokkurt hlé.
Ástæður: Algengustu ástæðu kláðans er að finna innan í fætinum.
Við æfingar þenjast háræðar og stærri æðar út í vöðvum. Hjá þeim
sem eru í þjálfun haldast æðarnar þandar og opnar en hjá öðrum geta
æðarnar lagst saman og aðeins lítið blóð kemst leiðar sinnar og orsak-
ar kláðatilfinningu.
Forvörn og lausn: Vandamálið leysist af sjálfu sér eftir því sem fólk
kemst í betra form.
Aumar geirvörtur
Lýsing: Sumir hlaupar-
ar, oftast karlmenn, verða
aumir í geirvörtunum af
hlaupunum og sumir fá
blæðandi vörtur. Þetta er
afar sársaukafullt vanda-
mál.
Ástæðan: Við hlaup
nuddast geirvörturnar
við hlaupabolinn, oft það
mikið að sár hljótast af.
Þar sem konur eru oftast í
þröngum brjóstahöldur-
um er þetta ekki vanda-
mál hjá þeim.
Forvörn: Auðvelt er að koma í veg fyrir þetta vandamál. Sumir setja
vaselín eða annað sleipiefni á vörturnar fyrir hlaup, aðrir setja plástur
yfir þær. Einnig ætti að athuga að hlaupa ekki í bómullarbolum heldur
bolum úr gerviefni. Á lengri hlaupum ætti fólk einnig að huga að því
að setja sleipiefni á aðra líkamshluta þar sem hætta er á nuddi.
Algeng vandamál hlaupara
Hlauparar þurfa að huga að ýmsu áður en þeir leggja í hann.
NORÐURKRILL
Fæst flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Betri einbeiting og betri líðan
Þegar maður rekur sitt eigið fyrirtæki, er í fullu fjarnámi og á auk þess tvö ung börn,
þá skiptir öllu máli að heilinn virki rétt og vel. Ég byrjaði að nota Norðurkrill fyrir
fjórum mánuðum og fann nánast strax mun á mér. Einbeitingin varð betri auk þess
sem ég varð vör við mjög jákvæð áhrif á lesblinduna hjá mér. Fyrir utan skarpari
einbeitingu líður mér allri betur líkamlega og andlega.
Það skiptir mig miklu máli að Omega 3 í Norðurkrill sé hreint og ómengað og eftir að
hafa prufað þó nokkuð margar tegundir af Omega 3 olíum get ég fullyrt að Norðurkrill
er besta Omgea 3 olía sem ég hef notað.
Ég hvet alla þá sem vilja skerpa á minni og einbeitingu að taka inn Norðurkrill.
Heilinn í okkur verðskuldar aðeins það besta.
Jóhanna S. Hannesdóttir,
þjóðfræðinemi og eigandi Sunnlenska.is
NORÐURKRILL er eitt hreinasta og öflugasta form af OMEGA 3-fitusýrum.
Unnið úr botnsjávardýrinu krill sem er veitt við ómengað Suðurskautið.
Aðeins þarf 1-2 hylki á dag til að mæta
dagsþörfinni og það er ekkert eftirbragð,
uppþemba eða magaólga sem oft fylgir
inntöku á fiski- og jurtaolíum.
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Brooks DNA miðsólinn er að hluta framleiddur úr
gelvökva sem veitir hlaupurum óháð þyngd sömu
höggdempun. DNA miðsólinn gefur 30% meiri
höggdempun en venjulegur EVA og er tvisvar
sinnum fljótari að ná sinni upprunalegu lögun eftir
niðurstig.