Fréttablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 29
KYNNING − AUGLÝSING Hlaupaskór & fatnaður24. APRÍL 2013 MIÐVIKUDAGUR 3
Söluaðilar okkar hafa tekið Ronhill afar vel. Þeir vita hvað sérhæfing er mikilvæg
á markaði þar sem viðskiptavin-
urinn gerir sífellt meiri kröfur um
efni og lausnir,“ segir Berglind Þóra
Steinarsdóttir hjá Danssporti, sem
er umboðs- og dreifingaraðili Ron-
hill á Íslandi.
„Ronhill er íþróttavörumerki
sem sérhæfir sig í að mæta kröf-
um hlaupara og hefur framleitt og
hannað hlaupafatnað síðan 1970,“
útskýrir Berglind um vörumerkið
sem nefnt er eftir stofnanda þess,
dr. Rons Hill, sem árið 1970 varð
fyrstur Breta til að sigra í Boston-
maraþoninu.
„Ronhill hefur frá upphafi leit-
ast eftir að hugsa fyrst og fremst
um þarfir hlauparans. Afrakstur-
inn eru fjórar sérhæfðar fatalínur
fyrir hlaupara og fatnaðurinn er
á mjög góðu verði hjá söluaðilum
okkar. Má þar nefna hlaupajakka
fyrir fullorðna frá 9.990 krónum
og hlaupabuxur frá 7.990,“ upplýs-
ir Berglind.
Fatalínur Ronhill samanstanda
af Vizion-götulínu, Trail-utanveg-
arlínu, Pursuit-hópa- og liðalínu
og Advance-keppnisfatnaði fyrir
þá sem vilja fara hratt yfir.
„Vizion er litaglaður fatnaður
með endurskinsmerkjum og fæst
einnig með LED-ljósabúnaði,“
segir Berglind og bætir við að öll
efni séu sértaklega létt og þægileg.
„Trail-línan mætir kröfum um
vasa fyrir gel og annan nauðsyn-
legan útbúnað þegar tekist er á
við erfiðar aðstæður og veður
sem getur snögglega breyst. Með
Pursuit er svo loks komin lausn
fyrir frjálsíþróttafélög, hlaupahópa
og þá sem leita eftir íþróttafatnaði
fyrir heildina en þar fæst sama
línan í barna-, kven- og herra-
stærðum,“ segir Berglind og skor-
ar á hlaupahópa og félög að leita til-
boða hjá Danssporti.
Helstu söluaðilar Ronhill eru
Afreksvörur í Glæsibæ, Atlas
göngugreining á Engjavegi og Fjöl-
sport í Firðinum.
Nánari upplýsingar um þjón-
ustu og söluaðila má sjá á www.
danssport.is. Danssport ehf. er í
Sundaborg 1. Sími 553 0700. Net-
fang er danssport@danssport.is.
Ronhill mætir
kröfum hlaupara
Breska íþróttavörumerkið Ronhill var stofnað af maraþonhlauparanum Ron Hill
árið 1970 og hefur allar götur síðan sérhæft sig í fyrsta flokks hlaupafatnaði sem
hentar fyrir ólíkar aðstæður og markmið. Fatnaðurinn er fallega hannaður,
léttur, þægilegur og á mjög góðu verði.
Trail-utanvegalínan hentar vel þar sem aðstæður og veðurfar getur breyst og Pursuite-línan er sérhönnuð lausn fyrir hlaupahópa og frjálsíþróttafélög.
Berglind Þóra Steinarsdóttir hjá Danssporti. MYND/STEFÁN
Vision-fatalínan er með endurskinsmerkjum og LED-ljósabúnaði.
Upplýsingar um söluaðila
www.dansport.is Hlaupafatnaður