Fréttablaðið - 24.04.2013, Síða 35

Fréttablaðið - 24.04.2013, Síða 35
KYNNING − AUGLÝSING Hlaupaskór & fatnaður24. APRÍL 2013 MIÐVIKUDAGUR 5 Nike hefur lagt mikla áherslu á Nike Free Run síðastliðin ár. Skórnir eru afar sveigj- anlegir, mjúkir og fisléttir. „Það sem greinir Nike Free Run frá öðrum hlaupa- og æfingaskóm er sú stað- reynd að í þeim eru það fæturnir sem stýra því hvernig niðurstigið verður en ekki skórnir. Skórnir eru sérstaklega hannaðir til þess að fæt- urnir geti hreyfst á frjálsan og nátt- úrulegan hátt,“ segir Elfa Arnar- dóttir, markaðsstjóri smásölusviðs Icepharma, sem er umboðsaðili Nike á Íslandi. Fæturnir styrkjast Í Nike Free skóm er ekki byggt á eig- inlegum stuðningi hringinn í kring eins og fólk á kannski að venjast heldur er tæknin hugsuð þannig að með tímanum örvi þeir litlu vöðvana í fótunum sem gerir það að verkum að fóturinn styrkist. „Hlauparar þurfa hins vegar að gefa skónum tíma því að álagið á rist, hæl og il verð- ur meira en þeir eiga að venjast. Ávinningurinn er sterkari fætur,“ segir Elfa. Free Run-skórnir eru allir hugs- aðir sem hlaupa- og æfingaskór. „Við mælum hins vegar ekki með því að fólk sé að hlaupa mikið meira en tíu kílómetra í þeim í einu enda eru þeir sem fyrr segir ekki styrktir. Þeir eru hins vegar mjög slitsterkir. Elsta parið mitt er þriggja ára og ég geng enn þá í þeim,“ upplýsir Elfa. Flottir við gallabuxur Hún mælir eindregið með Nike Free Run-skóm fyrir fólk sem stundar alla almenna líkamsrækt svo sem krossfit, bootcamp, pallatíma og dans. Eins í skokk og gönguferðir. „Það besta við Nike Free Run-skó er þó það að þeir eru ótrúlega falleg- ir á fæti og eru margir sem nota þá við gallabuxur og jafnvel fínni klæðnað. Þetta er í fyrsta skipti í lengri tíma sem það þykir f lott að vera í hlaupa- skóm við gallabuxur og það gleður okkur mikið,“ segir Elfa. Þrjár gerðir Nike Free Run-skór koma í þremur út- gáfum og er litaúrvalið að sögn Elfu endalaust. „Um er að ræða Nike Free 3.0, 4.0 og 5.0. Munurinn liggur í þykkt og sveigjanleika botnanna. 3.0 er nettastur á fæti en hann hefur líka þynnsta botninn. Hann er sömu- leiðis sveigjanlegastur og er hægt að beygja skóinn í heilan hring. Hann er ekki með lausa tungu og minn- ir svolítið á sokk að því leyti að eig- andinn smeygir sér ofan í hann. 5.0 er með þykkasta botninn sem þýðir að hann er mýkstur en hefur um leið minnsta sveigjanleikann. Hægt er að beygja hann í um það bil hálfan hring og tungan er laus eins og í venjulegum hlaupaskóm. 4.0 er svo millivegurinn. Tungan er föst öðrum megin en laus hinum megin. Skórinn er mitt á milli hinna tveggja í mýkt og sveigjanleika. Elfa segir mikinn meðbyr með skónum og að konur sem karlar um heim allan noti þá við alls kyns til- efni. „Þeir eru notaðir við æfingar, til hversdagsnota og jafnvel á klúbb- unum. Reynsla okkur hér heima er sú að því litríkari sem skórnir eru því hraðar rjúka þeir út. Þetta er að okkar mati æðisleg þróun og hvet ég alla til að næla sér í par og taka þátt í þessari þægilegu tískubylgju með okkur enda þvílíkur munur að fara úr hælum yfir í einstaklega létta skó þar sem tilfinningin er nánast eins og að ganga á tánum.“ Tilboð á morgun Á morgun, sumardaginn fyrsta, mun Nike í samstarfi við Intersport bjóða allar gerðir af Nike Free Run skóm á aðeins 19.990 krónur. „Við vorum að taka upp heilan helling af nýjum skóm í hinum ýmsu litum og því um að gera að líta við,” segir Elfa. Tilboðið gildir bæði í Inter- sport í Lindum og á Höfða. Skórnir sem slegið hafa í gegn Hlaupa- og æfingaskórnir Nike Free Run hafa slegið rækilega í gegn að undanförnu. Þeir eru frábærir til hlaupa og hvers kyns æfinga en margir nota þá sömuleiðis hversdags. Þeir eru ótrúlega léttir, þykja flottir á fæti og litaúrvalið er nær óendanlegt. Elfa mælir með skónum í alla almenna líkamsrækt. Því litríkari sem skórnir eru því hraðar rjúka þeir út, að sögn Elfu. Þótt litríkustu skórnir rjúki út eru alltaf einhverjir sem vilja frekar svarta eða í það minnsta dökka skó og þeir fást líka í úrvali. 3.0 er sveigjanlegastur 4.0 er millivegurinn 5.0 eru mýkstur Skórnir eru ekki síður notaðir við gallabuxur en við hlaup og æfingar. Notagildið er því ótrvírætt.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.