Fréttablaðið - 24.04.2013, Síða 50
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 34
Til hamingju Anna Heiða
með þessi glæsilegu og verðskulduðu verðlaun!
Anna Heiða Pálsdóttir fangar af þekkingu og með virðingu heim
sextán ára stúlku sem alist hefur upp innan sértrúarsöfnuðar.
Úr umsögn dómnefndar:
„Þessi bók lifir lengi með manni. Hún vekur upp
grundvallarspurningar um lífið og tilveruna, gildi
þess að átta sig á sjálfstæðum vilja, hvað það
er að geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir um líf
sitt, fórnirnar sem maður þarf að færa til að
halda í sína eigin sannfæringu, hvers virði það
er að vera maður sjálfur og kannski síðast en
ekki síst: hvenær er maður, maður sjálfur?“
Gleðilegt sumar
Skemmtilegar sumargjafir frá Sölku
Bók sem á erindi við lesendur á öllum aldri
Sýningin Úr djúpunum verður
opnuð í Listasafni Sigurjóns í
dag. Sýningin er sú fyrsta sem er
opnuð eftir að safnið varð hluti
af Listasafni Íslands. Á Lista-
safni Sigurjóns hefur mátt sjá
verk myndhöggvarans Sigur-
jóns Ólafssonar og á þessari sýn-
ingu eru þau sett í nýtt samhengi.
„Þessi sýning er hugsuð þannig
að við erum að sýna valin verk
eftir Sigurjón, verk sem ekki
hafa verið sýnd lengi, og setjum
í kallfæri við málara sem voru
honum nákunnugir, þau Þorvald
Skúlason, Svavar Guðnason, Nínu
Tryggvadóttur, Kristján Davíðs-
son og Guðmundu Andrésdóttur.“
segir Birgitta Spur, ekkja Sigur-
jóns og safnstjóri Listasafns Sig-
urjóns.
Titill sýningarinnar vísar til
þeirra furðuskepna sem Sigur-
jón tók að fást við eftir erfið veik-
indi um og eftir 1960, og í verkum
hans má meðal annars finna teng-
ingar við hugmyndir listamanna
þeirra tíma um súrrealisma og hið
sjálfsprottna listform. „Sigurjón
var mjög frjór og síbreytilegur
listamaður og hann leitaði hug-
mynda víða. Eftir veikindin fór
hann að gera verk sem eru tals-
vert öðruvísi en þær hefðbundnu
höggmyndir sem margir þekkja.“
Listasafn Sigurjóns sameinaðist
Listasafni Íslands í fyrra. Birgitta
segir að sameiningin muni örugg-
lega dýpka skilning á verkum Sig-
urjóns. „Samvinnan um safna-
eignina mun örugglega skila sér
í áhugaverðum sýningum.“ Sýn-
ingin verður opin á morgun, um
helgar til 1. júní en í sumar alla
daga nema mánudaga. - sbt
Verk Sigurjóns í nýju samhengi
Í dag verður opnuð sýningin Úr djúpunum í Listasafni Sigurjóns.
ÚR DJÚPUNUM Birgitta Spur í Sigurjónssafni. Ný sýning þar setur verk Sigurjóns
í samhengi við listmálara úr samtíma hans. Í bakgrunni má sjá verk eftir Þorvald
Skúlason og Guðmundu Andrésdóttur en höggmyndin er eftir Sigurjón.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sjónvarpsserían Vinkonur eftir
Dagrúnu Aðalsteinsdóttur verður
sýnd í heild sinni á fimmtudögum
á meðan útskriftarsýningin stend-
ur yfir á Listasafni Reykjavíkur.
Þættirnir segja frá tveimur vin-
konum og glímu þeirra við ástina
og voru teknir upp með áhugaleik-
urum í Bangalore á Indlandi.
„Ég fór í ársleyfi og tók myndina
upp á meðan ég dvaldi á Indlandi,“
segir Dagrún. „Mig langaði til að
vinna með hefðbundnar sjónvarps-
seríur og máta þær inn í menningu
sem er mér framandi.“ - sbt
Sjónvarpssería
í Hafnarhúsinu
VINKONUR Útskriftarverkefni Dagrú-
nar Aðalsteinsdóttur sem sjá má í
Hafnarhúsinu.
Netleikhúsið Herbergi 408 frum-
sýndi í gær nýtt gagnvirkt leikhús-
verk á slóð leikhússins www.her-
bergi408.is. Verkið nefnist Skóli
umbreytinganna eða School of
Transformation Correspondence
og er bréfaskóli staðsettur á ver-
aldarvefnum sem byggir á því að
nemandinn er aðalleikarinn í sinni
eigin sýningu og má því flokka það
undir svokallað þátttökuleikhús.
„Þetta er nokkurs konar skóli á
netinu, þar sem þú fylgir fimm
kennslustundum sem eiga að leiða
þig til hamingjusamara lífs,“ segir
Steinunn Knútsdóttir, listrænn
stjórnandi verkefnisins, en með
henni hafa unnið Una Lorenzen
hreyfimyndasmiður, Snorri Gunn-
arsson hönnuður og Jarþrúður
Karlsdóttir tónskáld.
„Þátttakendur þurfa að skrá sig
inn sem nemendur og þá eru þeir
komnir í skólann. Þá fá þeir ýmis
próf að glíma við, sjá teiknimynd-
ir sem varpa ljósi á eðli mannsins
og breyskleika og þegar kennsl-
unni er lokið fá þeir sent diplóma í
tölvupósti.“ - fsb
Leikverk í
bréfaskóla
GAGNVIRKT NETLEIKHÚS Þátttakend-
ur þurfa að skrá sig í skólann á slóðinni
herbergi408.is.