Fréttablaðið - 25.04.2013, Síða 2
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STJÓRNMÁL „Þetta er einhver mis-
skilningur hjá Ármanni bless-
uðum,“ segir Gunnar I. Birgis-
son, bæjarfulltrúi í Kópavogi, um
bókun Ármanns Kr. Ólafssonar
bæjarstjóra um að ályktanir Gunn-
ars varðandi gestafjölda í íþrótta-
húsum einkenndust af pólitískum
ofsóknum.
Gunnar óskaði fyrir nokkru
eftir upplýsingum um nýtingu á
íþróttahúsum í Kópavogi. Á bæjar-
stjórnarfundi á þriðjudag lagði
hann fram bókun um málið ásamt
samflokksmanni þeirra Ármanns,
Aðalsteini Jónssyni.
„Eftir að hafa skoðað talningar
í íþróttahúsum Kópavogs bæjar, er
ljóst að nýting nokkurra íþrótta-
mannvirkja er ekki ásættan-
leg. Sérstaklega á þetta við um
knatthúsið og tvöfaldan íþrótta-
sal í Kórnum,“ sagði í bókuninni.
„Algjörlega óafsakanlegt“ væri að
nýta ekki íþróttamannvirki bæjar-
ins betur.
„Þær ályktanir sem bæjarfull-
trúarnir Gunnar Ingi Birgisson og
Aðalsteinn Jónsson draga af taln-
ingum í íþróttahúsum eru bein-
línis rangar og einkennast af póli-
tískum ofsóknum gagnvart einu
íþróttafélagi,“ bókaði þá Ármann
bæjarstjóri. Íþróttafélagið sem
hann vísar til er HK sem hefur
umsvif í Kórnum.
Spurður um þetta mál segist
Ármann hafa verið ósáttur við
framsetningu Gunnars og Aðal-
steins á efni greinargerðar sem
lögð var fram í mars. Þar hafi
komið fram að Kórinn sé betur
nýttur en íþróttahúsið Smárinn.
„Ég skil bara ekkert í þeim að
setja þetta fram með þessum hætti
þegar skýrslan sýnir að þetta er
akkúrat þveröfugt. Ég átta mig
ekki á af hverju er verið að snúa
út úr henni,“ segir Ármann.
Gunnar segir bókun Ármanns
byggða á misskilningi. „Þetta var
allt vel meint og er bara hvatning
til íþróttafélaganna að reyna að
nýta húsin betur. Það kostar nú
ekkert smávegis eitt svona hús,“
bendir Gunnar á.
Ármann hafnar því að þessi
deila hafi áhrif á samstarfið í
meirihlutanum. „Þetta er einangr-
að mál,“ undirstrikar bæjar-
stjórinn.
Eins og Ármann hafn-
ar Gunnar því að þess-
ar væringar breyti
nokkru um samstarf
meirihlutans sem sjálf-
stæðismenn mynda
með bæjar fulltrúum Y-
listans og Framsóknar-
flokks. „Þetta er bara
stormur í vatnsglasi,“
útskýrir Gunnar.
gar@frettabladid.is
Sakar félagana um
pólitískar ofsóknir
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, bókaði í bæjarstjórn að ályktanir
samflokksmanna hans um talningu gesta í íþróttahúsum einkennist af pólitískum
ofsóknum. Misskilningur og stormur í vatnsglasi, segir Gunnar I. Birgisson.
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ KÓRINN Sjálfstæðismennn í bæjarstjórn Kópavogs takast á um
nýtingu Kórsins í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LONDON, AP Metverð fékkst á uppboði hjá Christie‘s í vikunni fyrir
risavaxið egg sem er að hluta til steingert.
Eggið fannst á eyjunni Madagaskar og er undan útdauðri tegund
sem kallast fílsfugl. Það seldist á tæpar tólf milljónir íslenskra
króna, sem er meira en tvöfalt hærra verð en búist var við.
Fílsfuglinn dó út fyrir mörgum öldum og er talið að eggið sé
frá því fyrir sautjándu öld. Fílsfuglar voru ófleygir og nærðust á
ávöxtum. Þeir voru ekki ósvipaðir strútum en gátu náð allt að 3,4
metra hæð. - þj
Merkar fornminjar á uppboði hjá Christie‘s:
Metverð fékkst fyrir risaegg
HUNDRAÐ SINNUM STÆRRA Egg fílsfuglsins er um það bil hundrað sinnum
stærra en hænuegg. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sigurður, vaða KR-ingar bara
í villu?
„Þeir missa reyndar stundum
marks.“
Þjálfari kvennaliðs KR í körfubolta lýsti
undrun sinni á því að ekki hefði verið dæmd
villa á Keflvíkinga sem tekið hefðu of hart
á einum leikmanna KR um liðna helgi.
Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur,
sagði kvartanir KR-inga hlægilegar.
Ég skil bara ekkert í
þeim að setja þetta fram
með þessum hætti þegar
skýrslan sýnir að þetta er
akkúrat þveröfugt.
Ármann Kr.
Ólafsson,
bæjarstjóri í
Kópavogi.
GUNNAR I.
BIRGISSON
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON
BANGLADESS, AP Eigendur verksmiðjuhúsnæðis í
nágrenni Dhaka í Bangladess sem hrundi í gær
eru grunaðir um að hafa virt tilmæli yfirvalda að
vettugi þegar þeir sendu hundruð manna þar til
vinnu í gær.
Um hundrað manns voru taldir af í gær og mörg
hundruð voru sár eftir að húsið hrundi. Talið var
að um tvö þúsund manns hafi verið þar inni þegar
ósköpin dundu yfir. Í húsinu voru fjórar verk-
smiðjur sem framleiddu fatnað, meðal annars
fyrir keðjurnar Benetton og Children‘s Place.
Eftirlitsstofnanir höfðu lokað húsinu vegna þess
að stórar sprungur höfðu myndast í veggjum þess,
en yfirmenn í verksmiðjunum sendu fólkið engu
að síður til vinnu og fullyrtu að engin hætta væri
á ferðum.
Innanríkisráðherra Bangladess lofaði því, í sam-
tali við fjölmiðla á vettvangi, að sökudólgunum
yrði refsað.
Atburðir sem þessir eru nokkuð algengir í
Bangladess, þar sem mörg hús eru byggð í trássi
við byggingarreglugerðir og öryggisstaðla.
Aðstæður í fataverksmiðum landsins komust í
hámæli fyrir um fimm mánuðum þegar 112 manns
létust í eldsvoða í verksmiðju í borginni Tazreen.
- þj
Eigendur átta hæða fataverksmiðju sem hrundi í Bangladess í gær:
Virtu öryggistilmæli að vettugi
HRUN Þúsundir manna þustu á vettvang þar sem átta hæða
hús hrundi. Hátt í hundrað manns höfðu verið úrskurðaðir
látnir í gær en sú tala gæti hafa hækkað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hæstiréttur ómerkti
í gær tveggja ára fangelsisdóm
yfir nuddara sem var sakfelldur
fyrir nauðgun með því að stinga
fingri sínum í leggöng konu sem
hann var að nudda.
Vörn nuddarans í héraðsdómi
var ekki talin fullnægjandi þar
sem kröfu um að matsmenn yrðu
kvaddir fyrir dóminn var hafnað.
Þess í staði fékk dómsformaður
sérfræðinga með sér í dóminn en
Hæstiréttur taldi það ekki jafn-
gilt og ómerkti því dóminn. - sh
Hæstiréttur ómerkir dóm:
Nuddaradómur
aftur í hérað
NOREGUR Talið er að 10 til 15 þús-
und eldislaxar hafi sloppið úr
sjókvíum í Kåfirði við Alta í Nor-
egi í gær. Alta-áin á Finnmörku,
sem er ein mesta stórlaxaá verald-
ar, rennur til sjávar örfáum kíló-
metrum frá þeim stað sem laxarn-
ir sluppu út. Norska ríkisútvarpið
(NRK) greinir frá þessu.
Í gær var hvorki vitað hvað
olli því að laxarnir sluppu né frá
hvaða fiskeldisfyrirtæki þeir eru
en fulltrúar frá Veiðimálastofnun
Finnmörku fylgjast vel með gangi
mála. Þess ber að geta að 15 þús-
und eldislaxar eru um fjórum til
fimm sinnum meira en veiðist í
Alta-ánni árlega.
Hans Kristian Kjeldsberg, hjá
Veiðifélagi Alta-árinnar, segir
í samtali við NRK að þetta sé
grafalvarlegt mál ekki síst þar
sem þetta sé að gerast rétt áður
en villti laxinn gengur upp í ána.
Algengt er að villti laxinn gangi
upp í ána upp úr miðjum maí og
óttast Hans Kristian að eldislaxinn
kunni að fylgja þeim og blandist
síðar meir og þar með sé hinn
heimsfrægi stórlaxastofn Alta-
árinnar í hættu. - th
Norska stórlaxaáin Alta í hættu vegna eldislaxa sem sluppu úr sjókvíum:
10 til 15 þúsund laxar sluppu
LAXELDI Óttast er að eldislaxinn bland-
ist hinum heimsfræga stórlaxastofni
Alta-árinnar. MYND/STÖÐ 2
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær dóm Héraðsdóms Reykjavík-
ur þess efnis að Valitor þurfi að
opna greiðslugátt fyrir Datacell
og Wikileaks. Þá skal fyrirtækið
greiða 800 þúsund króna dagsekt-
ir þar til gáttin hefur verið opnuð.
Forsaga málsins er sú að korta-
fyrirtækin Visa og Mastercard
skipuðu þjónustuaðilum sínum
að loka á fyrirtæki sem taka á
móti greiðslum fyrir Wikileaks.
Því lokaði Valitor á Datacell sem
þjónustar Wikileaks á Íslandi.
Datacell og Wikileaks stefndu
Valitor vegna þessa og dæmdu
bæði dómstig þeim í vil. - mþl
Áfrýjun Valitors mistókst:
Opni greiðslu-
gátt Wikileaks
DÓMSMÁL Davíð Örn Bjarnason,
sem sat í varðhaldi í tyrknesku
fangelsi grunaður um smygl á
fornminjum, reiknar með að
niðurstaða fáist í mál hans fyrir
tyrkneskum dómstólum í dag.
Davíð þarf ekki að fara til
Tyrklands til að fylgjast í réttar-
sal. „Ég fylgist bara með í gegn-
um lögmanninn minn.“
Davíð var handtekinn á flug-
vellinum í Antalya í mars þegar
hann var ásamt sambýliskonu
sinni á leið frá Tyrklandi. Hann
var með stein sem síðar kom í
ljós að var fornmunur í tösku
sinni. - bj
Máli Tyrklandsfanga að ljúka:
Ætlar ekki aft-
ur til Tyrklands
SPURNING DAGSINS
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
Ertu ekki viss um hvað þú ætlar að kjósa?
Viltu fá svör við ákveðnum spurningum?
Hringdu í Vg númerið 863 7038 og tilgreindu
það málefni sem brennur á þér.
Við finnum rétta frambjóðandann til þess að
hafa samband við þig og svara spurningum þínum.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
HVAÐ
VILTU VITA?